
Mótleikur úr Efstaleitinu
Hefð hefur skapast fyrir því að Útvarpsleikhúsið flytji sakamálaleikrit að sumarlagi en um fimmtán þúsund Íslendingar hlýddu á spennuseríu leikhússins síðasta sumar.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Hefð hefur skapast fyrir því að Útvarpsleikhúsið flytji sakamálaleikrit að sumarlagi en um fimmtán þúsund Íslendingar hlýddu á spennuseríu leikhússins síðasta sumar.
Enginn Íslendingur verður meðal þátttakenda í sjónvarpsþættinum On the Lot þrátt fyrir auglýsingar þess efnis á Skjá einum. Dagskrárstjóri sjónvarpsstöðvarinnar segir um leiðinleg mistök að ræða.
Í gær hófst kvikmyndahátíðin í Cannes, sem óhætt er að segja að sé ein virtasta kvikmyndahátíð heims, ef ekki sú virtasta. Hátíðin í ár er sú sextugasta sem haldin er í strandbænum sólríka. Því er ekki úr vegi að seilast í verkfærakistu kvikmyndagerðarmannanna og nýta sér endurlitið til að líta yfir farinn veg.
Um helgina verður spennutryllirinnn Zodiac frumsýndur en þetta er nýjasta kvikmynd leikstjórans David Fincher. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum sem gerðust í Norður-Kaliforníu undir lok sjöunda áratugarins.
Jerry Bruckheimer hefur ekki útilokað að kvikmyndahúsagestir fái meira af sjóræningjunum á Karíbahafinu. Þriðja myndin um Jack Sparrow og félaga verður frumsýnd í lok þessa mánaðar en þær hafa allar rakað inn peningum. Bruckheimer segir að þrátt fyrir að næsta mynd verði lokakaflinn um ævintýri Sparrows útilokar hann ekki að búnar verði til svokallaðar „spin-off“ myndir um aðrar persónur myndarinnar.
Cameron Diaz og Ashton Kutcher eru í viðræðum um að leika í rómantísku myndinni What Happens in Vegas ... Myndin fjallar um tvær ókunnugar manneskjur sem vakna með mikla timburmenn í Vegas eftir að hafa gift sig kvöldið áður. Einnig uppgötva þau að annað þeirra hefur unnið stóran vinning með smápeningum hinnar manneskjunnar. Skapar þetta vitaskuld mikil vandamál.
Leikstjórarnir Steven Spielberg og Peter Jackson ætla að kvikmynda þríleik um teiknimyndapersónuna vinsælu Tinna. Ætla þeir að leikstýra hvor í sínu lagi fyrstu tveimur myndunum en enn á eftir að ákveða hver leikstýrir þriðju myndinni.
Antonio Banderas er svekktur yfir því að fá ekki hlutverk í næstu Sin City-mynd en hann hafði gert sér vonir um að blása nýju lífi í feril sinn eftir frekar mögur ár með þátttöku í henni.
Fimmtíu og tvær stuttmyndir bárust í stuttmyndasamkeppnina Stuttmyndadagar í Reykjavík að þessu sinni en það er metfjöldi. Þetta er í ellefta skiptið sem hátíðin er haldin en hún fer fram að þessu sinni í Tjarnarbíói 23. og 24. maí.
Á föstudag og laugardag sýndu nemendur Kvikmyndaskóla Íslands lokaverkefni sín í Bæjarbíói í Hafnarfirði og húsakynnum skólans að Lynghálsi: átta lokaverkefni nemenda sem unnin voru undir stjórn Ágústs Guðmundssonar og enn fleiri áfangaverkefni sem unnin voru undir handleiðslu Maríönnu Friðjónsdóttur, Viðars Víkingssonar, Þorgeirs Guðmundssonar og Hilmars Oddssonar.
„Synir mínir eiga safnið og hafa skyldað mig til að horfa á það allt,“ segir leikarinn Ellert Ingimundarson en hann hefur verið ráðinn til að tala fyrir hinn guðhrædda Ned Flanders í Simpson-myndinni sem frumsýnd verður í sumar.
Star Wars og Dirty Dancing eru þær myndir sem fólk hefur mest gaman af að horfa á aftur og aftur. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar á vegum bresku sjónvarpsstöðvarinnar Sky.
Star Wars hefur verið kjörin sú mynd sem hefur haft mest áhrif á tæknibrellur annarra mynda í gegnum tíðina. Star Wars, sem kom út 1977, hvatti marga til að starfa við tæknibrellur í kvikmyndum, að því er kom fram niðurstöðum könnunar Samtaka tæknibrellna í Bandaríkjunum.
Fyrsta kvikmynd leikstjórans Francis Ford Coppola í tíu ár verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Róm í október. Myndin nefnist Yout Without Youth og gerist í seinni heimsstyrjöldinni. Með aðalhlutverk fer Tim Roth. Leikur hann prófessor sem verður að skotmarki nasista eftir að hann kemst yfir formúlu fyrir ódauðleika.
Bandaríska hljómsveitin Green Day kemur fram í gestahlutverki í kvikmyndinni The Simpsons sem kemur út í sumar eftir margra ára bið. Koma söngvarinn Billie Joe og félagar fram í stuttu atriði skömmu áður en myndin endar. Öskrar barþjónninn Moe á þá og biður um að spila ekki svona hátt.
Ár er nú liðið frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni eru aðdáendur afmæla og einkum þeir yngstu boðnir sérstaklega velkomnir í setrið.
Kvikmyndaframleiðandinn The Halcyon Co. hefur keypt sýningarréttinn að kvikmyndunum um Tortímandann og ætlar sér að búa til þrjár myndir til viðbótar þannig að úr verði sexalógía.
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir leikskáld á heiðurinn að verkinu Listin að lifa sem var valið áhugaverðasta áhugaleiksýning leikársins 2006-2007. Þetta er í annað sinn sem höfundinum hlotnast þessi heiður en verkið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í júní.
Michael Imperioli er staddur hér á landi til að leika í kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Stóra planið, þar sem hann fer með hlutverk glæpaforingjans Alexanders. Freyr Gígja Gunnarsson hitti leikarann við sjávarsíðuna á Seltjarnarnesi.
Borgarleikhúsið og Edda Björgvinsdóttir standa fyrir styrktarsýningu á leikritinu Alveg Brilljant Skilnaður á miðvikudag 16. maí kl. 20:00 á Nýja Sviði Borgarleikhússins og mun allur ágóði sýningarinnar renna til leikkonunnar Eddu Heiðrúnar Backman sem stríðir nú við alvarlegan sjúkdóm.
„Skjótt skipast veður í þessum bransa. Þetta er vissulega súrt í broti en svona getur þetta verið," segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi hjá Kvikmyndafélagi Íslands.
Þrjár þáttaraðir til viðbótar af hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lost verða teknar upp. Eftir það ljúka þættirnir göngu sinni, árið 2010. Að sögn framleiðenda mun lokaþátturinn sem svo margir hafa beðið eftir koma fólki gjörsamlega í opna skjöldu.
Vinkonurnar Skoppa og Skrítla hafa snúið aftur í Ævintýraland Þjóðleikhússins. Leikkonurnar Hrefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir eru í hlutverkum Skoppu og Skrítlu en Hrefna gerir einnig handritið. Hallur Ingólfsson semur tónlistina og búninga og leikmynd gerir Katrín Þorvaldsdóttir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Margverðlaunuð kvikmynd leikstjórans Florians Henckel von Donnersmarck, Líf annarra, gerist í sundruðu Þýskalandi árið 1984, austanmegin í Berlín hefur öryggislögreglan Stasi nef sitt í hvers manns koppi og vænisýkin er í hámarki.
Þorleifi Erni Arnarssyni hafa borist fimm tilboð frá þýskum leikhúsum í kjölfar sýninga á Eilífri hamingju í Berlín í febrúar. Þorleifur er leikstjóri sýningarinnar og stundar nú leikstjóranám í Berlín. „Leikhúsin eru öll að ákveða hvað þau ætla að gera næsta vetur. Það á eftir að koma í ljós hvað passar inn og hvað ég get tekið að mér,“ sagði Þorleifur og bendir á að staðan sé enn nokkuð óljós.
Spiderman 3 sló heldur betur í gegn hér heima eins og víðast hvar um heiminn. Myndina sáu hátt í 15 þúsunds manns á aðeins þremur dögum og er þetta því stærri opnun en bæði Spiderman 1 og Spiderman 2.
Sam Raimi mætir til leiks nú um helgina með þriðju myndina um Köngulóarmanninn Peter Parker en kvikmyndahúsagestir hafa bundist þessum veggjaklifrara og ofurhuga miklum tryggðarböndum.
Japanskur dreifingaraðili kvikmyndarinnar Babel hefur varað fólk við því að því gæti liðið illa við að horfa á myndina. Að sögn dreifingaraðilans hafa fimmtán manns kvartað undan ógleði eftir að hafa horft á myndina. Um er að ræða atriði þar sem persóna japönsku leikkonunnar Rinko Kikuchi fer á næturklúbb með ljósum sem blikka ákaft. Hefur áhorfendum orðið óglatt við það að horfa á ljósin.
John Cusack er fyrsti leikarinn sem skrifar undir samning um að leika í kvikmyndinni Stoppin Power en henni er leikstýrt af Jan De Bont. Íslendingar eiga sinn hlut í myndinni en tökumaður myndarinnar verður Óttar Guðnason.
Sena hefur tekið við rekstri Háskólabíós af Sambíóunum og hyggst gera kvikmyndahúsið að heimavelli íslenskrar kvikmyndagerðar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að bjóða upp á „tveir fyrir einn“-tilboð á spennumyndirnar Köld slóð og Mýrina.