Neita öll sök í Reykholtsmálinu Öll sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans. Innlent 16.3.2026 13:41
Rúta út af og Þingvallavegi lokað Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu. Innlent 15.3.2026 15:58
Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Það er mikill gauragangur á meðal nemenda Menntaskólans að Laugarvatni þessa dagana en ástæðan er sú að þau eru að frumsýna í kvöld leikritið Gauragang í félagsheimilinu Aratungu í Bláskógabyggð. Lífið 12.3.2026 20:04
Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Innlent 4.3.2026 18:49
Skautafjör á Laugarvatni í dag Fjöldi fólks er nú kominn saman á Laugarvatni því þar fer fram svokallað „Skautafjör” þar sem ungir sem aldnir koma saman og skauta á vatninu. Skautar verða til útláns fyrir þá, sem ekki eiga skauta. Lífið 17. janúar 2026 12:01
Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Öryrkjar eru að fá mun hærri laun frá Tryggingastofnun en eldri borgarar eða um 51 þúsund krónur meira á mánuði miðað við lágmarkslífeyri eldri borgara eins og staðan er í dag. Innlent 16. janúar 2026 22:00
Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu Mikill hugur er í þeim, sem stunda ferðaþjónustu í uppsveitum Árnessýslu á nýju ári, árinu 2026, enda alltaf ný og ný fyrirtæki að bætast í hóp ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Innlent 21. desember 2025 13:03
Önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga Í nóvember mældist önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga. Rúmmál jökulsins hefur á 38 árum rýrnað úr um 200 rúmkílómetrum í um 165 rúmkílómetra, sem jafngildir um 17 prósenta minnkun. Flatarmálið hefur dregist saman um 15 prósent á sama tímabili og er nú komið niður fyrir 790 km2. Innlent 5. desember 2025 12:19
Orðin hluti af mannlífinu: „Án okkar væri heldur tómlegt að vera til“ Það verður mikið um að vera í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð í dag því þar fagnar verslun sveitarinnar, Bjarnabúð 40 ára afmæli. Eigandi verslunarinnar segist vera kaupfélagsstjóri og bensínafgreiðslumaður staðarins og að pylsur séu vinsælasta vara verslunarinnar. Viðskipti innlent 30. nóvember 2025 13:04
Reistu vörðu til minningar um Sigurð Kristófer við slysstað Í gær var vígður minnisvarði til minningar um Sigurð Kristófer McQuillan Óskarsson, formann Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem lést við æfingar í straumvatnsbjörgun í Tungufljóti þann 3. nóvember 2024. Innlent 24. nóvember 2025 15:03
80% nemenda á Laugarvatni eru í kór menntaskólans Sjaldan eða aldrei hafa nemendur Menntaskólans að Laugarvatni hafi eins mikinn áhuga á að syngja í kór skólans eins og núna því 119 nemendur af 152 nemendum skólans eru í kórnum. Lífið 21. nóvember 2025 20:04
Innlit í ævintýralega baðlónið Laugarás Lagoon Nýjasta baðlón landsins er Laugarás Lagoon er alveg einstakt. Lífið 19. nóvember 2025 12:03
70 ára afmæli Tónlistarskóla Árnesinga fagnað Það var líf og fjör á Laugarvatni um helgina þegar um 200 nemendur Tónlistarskóla Árnesinga komu saman til að spila á hljóðfæri sín í tilefni af 70 ára afmæli skólans fyrir gesti á sérstökum afmælistónleikum í íþróttahúsinu á Laugarvatni í gær, 15. nóvember. Innlent 16. nóvember 2025 20:05
Hvatningarverðlaun gegn einelti afhent á Laugarvatni Gunnlaugur Víðir Guðmundsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Gleðibankans í Reykjavík hlaut í dag hvatningarverðlaun gegn einelti en hann hefur lagt sig fram af miklum krafti að draga úr einelti og samskiptaerfiðleikum ungs fólks. Um er að ræða verðlaun Heimilis og Skóla en athöfnin fór fram á Laugarvatni í morgun. Innlent 10. nóvember 2025 21:04
Ný heilsugæslustöð tekin í notkun á Flúðum Ný heilsugæslustöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Flúðum í Hrunamannaheppni, Heilsugæsla Uppsveita, opnaði í vikunni. Fjölmennt var á opnunarhátíð en nýja stöðin leysir af hólmi gömlu heilsugæslustöðina í Laugarási. Innlent 7. nóvember 2025 14:21
„Alla mína ævi var ég að reyna að verja hann fyrir kynþáttafordómum“ Karin Agnes McQuillan, móðir Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, sem lést í fyrra á björgunarsveitaræfingu, segist hafa fengið áfall þegar hún las fréttir um það í gær að björgunarsveitarfólk hafi ítrekað fengið að heyra niðrandi athugasemdir um húðlit Neyðarkalls Landsbjargar. Innlent 7. nóvember 2025 11:02
Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Mest starfsánægja er í Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þetta eru niðurstöður árlegrar könnunar Gallups. Verðlaunin Sveitarfélag ársins voru veitt í gær. Sagt er frá á heimasíðu stéttarfélagsins Kjalar. Innlent 31. október 2025 12:32
Sá látni var á rjúpnaveiðum þegar hann varð fyrir voðaskotinu Karlmaður á sextugsaldri sem lést nærri Apavatni á föstudag var á rjúpnaveiðum við annan mann þegar hann varð fyrir voðaskoti. Enn er unnið að því að safna gögnum af vettvangi á meðan veður leyfir. Innlent 27. október 2025 14:53
Fimmtíu ný störf í Bláskógabyggð vegna nýs baðlóns Fimmtíu ný störf urðu til í Bláskógabyggð í dag þegar nýtt baðlón var opnað í Laugarási. Bygging lónsins kostaði um þrjá milljarða króna en það er allt hið glæsilegasta. Innlent 15. október 2025 19:17
Barneignir og sauðfjárrækt á sviðinu í Aratungu Það gengur mikið á í félagsheimilinu Aratungu í Biskupstungum þessa dagana því þar eru barneignir og sauðfjárrækt í aðalhlutverki, sem leiðir til hvers konar misskilnings eins og vera ber í góðum gamanleik, sem leikdeildin í sveitinni er að setja upp. Lífið 11. október 2025 20:06
Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Búið er að opna veitingastaðinn Ylju í nýju baðlóni í Laugarási í Biskupstungum. Baðlónið opnar síðar í þessum mánuði. Matreiðslumaðurinn Gísli Matthías Auðunsson er yfirkokkur og hannaði matseðil veitingastaðarins. Baðlónið er sjálft á tveimur hæðum og er aldursviðmið átta ára. Viðskipti innlent 4. október 2025 14:01
Hraðamyndavélar settar upp við Þingvelli Tvær hraðamyndavélar verða teknar í notkun á Þingvallavegi austan þjónustumiðstöðvar á morgun, þann 3. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni þar sem segir að markmiðið sé að auka umferðaröryggi. Innlent 2. október 2025 13:47
Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Leiðsögukonan Jessica Zimmerman varð fyrir fantalegri árás af hendi ferðamanns sem snöggreiddist þegar hún tók mynd af ökutæki hans sem hann hafði lagt ólöglega. Maðurinn þröngvaði sér inn í rútu Jessicu og reyndi að hrifsa af henni spjaldtölvu með valdi. Hún lýsir vonbrigðum yfir sinnuleysi lögreglu. Innlent 27. september 2025 11:21
Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Erlendur ferðamaður slasaðist alvarlega í vélsleðaslysi á Langjökli um miðjan dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um korter í þrjú vegna slyssins og flutti manninn á bráðamóttökuna á Landspítalanum í Fossvogi. Innlent 19. september 2025 17:23
Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Sundlauginni í Reykholti í Biskupstungum í Bláskógabyggð hefur verið lokað í eitt ár. Ástæðan er sú að það á að taka laugina og svæði hennar allt í gegn fyrir um 800 milljónir króna. Innlent 14. september 2025 20:04