Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Rafn Ágúst Ragnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa 1. ágúst 2026 21:57 Slökkvilið náði að hefta útbreiðslu eldsins. Aðsend Eldur kviknaði í sumarhúsi við Þingvallavatn á laugardagskvöld og varð húsið fljótt alelda. Greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi lokið um eittleytið í nótt. Húsið er talið gjöreyðilagt.
Dvalið var í sumarhúsinu þegar eldurinn kom upp en allir komust út og enginn er talinn slasaður. Um er að ræða sumarhúsið við Birkilund 12 í landi Miðfells. Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir lítið vitað um eldsupptök á þessu stigi og þau verði rannsökuð af lögreglu. RÚV hefur eftir sumarbústaðaeiganda við Þingvallavatn sem staddur var niðri við vatnið þegar hann tók eftir reyknum að hann hafi heyrt „frá fyrstu hendi“ að kolagrill hafi farið á hliðina í vindhviðu og orðið til þess að húsið varð alelda á mjög skömmum tíma. Búið var að slökkva í glóðum um klukkan eitt en tilkynning barst um eldinn um klukkan 21:20, að sögn Lárusar slökkviliðsstjóra. Húsið var alelda þegar slökkvilið kom á staðinn. „Það þurfti að flytja vatn þangað og við þurftum að sækja það með tankbílnum en það gekk bara mjög vel,“ segir Lárus. Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Laugarvatni tóku þátt í slökkvistarfinu. Sumarhúsið stóð um tíma í ljósum logum. Lárus beinir því til sumarhúsaeigenda að huga að almennum eldvörnum og fjarlægð frá gróðri. „Þarna var stutt í gróður en slökkviliðsmenn náðu að halda því niðri.“ Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um lok slökkvistarfs.
Slökkvilið Bláskógabyggð Þingvellir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira