Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Allir Bretar fæddir eftir 2008 í líf­stíðar­bann frá tóbaki

Bretar sem verða ekki orðnir átján ára fyrir árslok geta aldrei verslað tóbak löglega í Bretlandi. Frumvarp þess efnis hefur verið samþykkt í báðum deildum breska þingsins. Ráðherrar vona að með lögunum verði til reyklaus kynslóð og að álag á heilbrigðiskerfið minnki til muna. 

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra

Elísabet II hefði orðið hundrað ára í dag. Karl Bretakonungur minntist móður sinnar, af þessu tilefni, með ávarpi til bresku þjóðarinnar í dag. Hann segir að móðir sín hefði haft miklar áhyggjur af stöðu heimsmála en hún hafi haft óbilandi trú á því að gæskan myndi alltaf sigra að lokum.

Lífið
Fréttamynd

Söngvari Massive Attack hand­tekinn á mót­mælum

Söngvari Massive Attack, Robert Del Naja, var handtekinn fyrir að sýna stuðning við samtökin Palestine Action á mótmælum gegn banni gegn samtökunum í miðborg London á laugardag. Handtakan gæti haft áhrif á tónleikaferðalag hljómsveitarinnar. 

Lífið
Fréttamynd

Sak­felldur vegna sjálfs­vígs eigin­konunnar

Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi.

Erlent
Fréttamynd

Bretar hvattir til að taka ís­lenskan þorsk fram yfir breskan

Umhverfisverndarsamtökin Marine Conservation Society hafa hvatt neytendur til að forðast breskan þorsk og kaupa heldur þorsk frá Íslandi, þar sem nóg sé af honum. Samtökin gefa út leiðarvísinn Good Fish Guide, þar sem neytendur og fyrirtæki eru hvött til að haga innkaupum sínum í þágu sjálfbærra veiða.

Erlent
Fréttamynd

Leikarinn Michael Patrick látinn eftir bar­áttu við MND

Norður-írski leikarinn og handritshöfundurinn Michael Patrick er látinn, 35 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við taugasjúkdóminn MND. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut sem byggðu á hans eigin reynslu, lék á sviði og smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum, þar á meðal í sjöttu seríu Krúnuleikanna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hór­dómur vin­sældanna: Núll stjörnur

Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur.

Lífið
Fréttamynd

Segir NATO „pappírstígur“ og í­hugar að hætta

Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur.

Erlent
Fréttamynd

Í bataferli frá fíkninni

Breska ungstirnið Lola Young skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf út smellinn Messy árið 2024 en lagið náði gríðarlegum vinsældum um allan heim. Lola seldi upp á tónleika víða og kom fram á ýmsum tónlistarhátíðum en þurfti að draga sig í hlé eftir að hafa misst meðvitund á sviði.

Lífið
Fréttamynd

Sjálf­skipaður Yoda okkar Ís­lendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Lífið
Fréttamynd

Tveir hand­teknir vegna sjúkrabílabrennu

Breska lögreglan handtók tvo karlmenn í tengslum við íkveikju í fjórum sjúkrabílum á vegum góðgerðasamtaka gyðinga í London. Yfirvöld rannsaka íkveikjurnar sem hatursglæp gegn gyðingum.

Erlent