Chelsea FC

Chelsea FC

Fréttir af enska fótboltaliðinu Chelsea FC frá London.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Verður Kepa aftur skúrkurinn?

„Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sagði 35 sinnum fyrir­gefðu við boltastrákinn

Chelsea tapaði með þriggja marka mun í fyrri leik sínum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og pirringurinn fór vel yfir mörkin þegar Chelsea-maðurinn Pedro Neto hrinti boltastrák.

Enski boltinn
Fréttamynd

Arsenal vann hornspyrnukonsert

Arsenal bætti stöðu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Chelsea á Emirates-vellinum síðdegis. Öll þrjú mörk dagsins komu eftir hornspyrnur.

Enski boltinn
Fréttamynd

Chelsea setti enskt met í taprekstri

Chelsea er enn á ný í umræðunni vegna reksturs félagsins og nú hefur forráðamönnum félagsins tekist að setja nýtt met í taprekstri samkvæmt upplýsingum frá Knattspyrnusambandi Evrópu.

Enski boltinn
Fréttamynd

Á nær­buxunum úti í snjó­komunni

Senegalski knattspyrnumaðurinn Nicolas Jackson er á láni hjá þýska liðinu Bayern München í vetur og er að upplifa nýja hluti þar.  Jackson setti inn sérstakt myndband af sér á samfélagsmiðla.

Fótbolti
Fréttamynd

„Mér býður við þessu, satt best að segja“

Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, ræddi kynþáttafordóma í fótbolta á blaðamannafundi sínum en hann var spurður út í atvikið þegar Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, varð fyrir meintu kynþáttaníði í Meistaradeildinni í vikunni og hann gaf afdráttarlaust svar.

Enski boltinn