
Kannast hvorki við „Latino-hópinn“ né meinta vargöld
Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Brotaþolar í Bankastrætis Club málinu segjast hvorki kannast við svokallaðan „Latino-hóp“ né meinta vargöld sem sakborningar í málinu hafa lýst milli hópsins og hóps sakborninga.
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni yfirkokks á hóteli á Norðvesturlandi sem hafði krafist þess að fá laun á uppsagnarfresti, orlof, orlofsuppbót og desemberuppbót eftir að hafa verið rekinn úr starfi.
Sakborningar í Bankastrætis Club málinu báru um fyrir dómi að um hafi verið að ræða einhvers konar uppgjör við hóp manna sem kallaður hefur verið „Latino-hópurinn“. Sakborningarnir hafi ruðst 25 saman inn á skemmtistað til þess að ógna meðlimum hópsins.
Alexander Máni Björnsson, tæplega tvítugur karlmaður sem sætir ákæru fyrir þrjár tilraunir til manndráps á Bankastræti Club í febrúar í fyrra, segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að játa þrjár hnífstungur við þingfestingu málsins. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki að hafa ætlað að ráða þeim bana.
Skýrslutökur brotaþola og annarra vitna hófust í morgun og því er töluvert fjölmennara í dómsal í Gullhömrum við aðalmeðferð Bankastrætis Club málsins en síðustu daga. Þónokkrir sem sæta ákæru eru mættir til þess að fylgjast með framgangi mála, þar á meðal sá eini sem ákærður er fyrir að hafa reynt að verða brotaþolum að bana.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í fjögurra mánaða fangelsi fyrir röð brota, meðal annars að hafa í nokkrum tilvikum fengið fólk til að afhenda sér vörur eftir samskipti á samfélagsmiðlum, og sýna þeim skjáskot af millifærslum án þess að greiðslurnar hafi raunverulega farið í gegn.
Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að stjórna skipi til hafnar ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa vana-og fíkniefna, en í blóði hans mældist kannabis. Þá stýrði hann skipinu án þess að hafa til þess gild réttindi.
Ellefu ára stúlka frá Portúgal er meðal sex ungmenna sem hafa höfðað mál gegn 32 ríkjum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ungmennin segja ríkin hafa brotið gegn mannréttindum sínum með því að grípa ekki til aðgerða gegn loftslagsvánni.
Aðalmeðferð í Bankastrætis Club málinu svokallaða var haldið áfram í morgun og nú hafa allir sem sæta ákæru fyrir annað en hlutdeild í árásinni gefið skýrslu. Mikið umstang hefur verið í Gullhömrum og laganemar kíktu í heimsókn fyrir hádegi.
Á þriðja tug lögmanna eru saman komnir til þess að verja skjólstæðinga sína í Bankastrætis Club málinu svokallaða í veislusalnum Gullhömrum í dag. Skipuleggjendur aðalmeðferðarinnar virðast hafa gleymt að hella upp á kaffi, verjendum til mikils ama.
Í morgun steig fram Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgisson annars tveggja sakborninga í hinu svokallaða hryðjuverkamáli, og sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann sakar Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón alþjóðasviðs, um að nota hættustig hryðjuverka til að þrýsta á dómara í málinu. Hann sagði brýnasta verkefnið að endurskoða frá grunni starfsemi ríkislögreglustjóra.
Ákveðið var í undirbúningsþinghaldi í Bankastræti-Club málinu í morgun að sakborningar myndu ekki sitja inni í dómsal í Gullhömrum. Þeir munu sitja því frammi og koma inn einn af öðrum. Verjendur mótmæla ákvörðuninni. Á fimmtudag verður fjölmiðlabanni aflétt.
Aðalmeðferð í Bankastræti Club málinu svokallaða hefst í veislusalnum Gullhömrum í dag. Á þriðja tug manna hafa stöðu sakbornings og búist er við því að á annað hundrað verði viðstaddir aðalmeðferðina.
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi sakbornings í svokölluðu hryðjuverkamáli, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann kallar meðal annars eftir því að starfsemi ríkislögreglustjóra verði endurskoðuð frá grunni.
Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið ákærður fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október í fyrra.
Karlmaður hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ýmis brot, þar af fjögur ofbeldisbrot gegn konum. Þá hefur honum verið gert að greiða einni konunni 400 þúsund krónur í miskabætur.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp á Ólafsfirði í október síðastliðnum. Fjögur höfðu stöðu sakbornings í málinu.
Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur.
Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á bestu vinkonu sinni í lok desember árið 2021. Karlmaðurinn „puttaði“ konuna og sleikti á henni kynfærin á meðan hún lá sofandi í sófanum og varð einskis vör vegna ölvunar og svefndrunga.
Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða bílaumboðinu BL um 55 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málskostnað upp á 350 þúsund krónur. Maðurinn neitaði að borga 25 þúsund króna reikning vegna greiningar á bilun.
Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárásir í garð þáverandi sambýliskonu sinnar. Dómari taldi háttsemi hans ekki falla undir nýlegt lagaákvæði um brot í nánu sambandi.
Landsréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að maður skuli sæta nálgunarbanni.
Landsréttur hefur viðurkennt að starfsmaður hafi átt að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð.
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli manns sem kveikti í veitingastað sínum sumarið 2020 og gerði í kjölfarið tilraun til fjárssvika. Manninum er gert að sæta fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði og greiða áfrýjunarkostnað málsins.
Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt.
Lögreglu er heimilt að taka strokusýni úr munni manns sem er grunaður um líkamsárás, frelsissviptingu og fjárkúgunarbrot á heimili sínu á Akureyri í mars á þessu ári. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis.
Maður á fertugsaldri sem er meðal ákærðu í Bankastræti Club-málinu svokallaða neitar því staðfastlega að vera ofbeldismaður og segist ekki hafa haft í hyggju að fara inn hið örlagaríka kvöld þegar hópur veittist að þremur mönnum á skemmtistaðnum.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn barnaverndalögum með því að sýna dreng, sem var gestkomandi á heimili hans, yfirgang og vanvirðandi og ruddalega háttsemi.
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. þessa mánaðar vegna gruns um að hann hafi framið átta refsiverð brot frá 27. júní síðastliðnum. Meðal brotanna er rán fimm þúsund króna af ungum bræðrum sem voru á leið út í sjoppu að kaupa sér nammi.
„Starfsemin er enn þá í gangi á Íslandi. Þetta er það sem ég hef valið mér að gera,“ segir Catalina Ncogo sem var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi.