Bílstjóri Angjelins segist hafa komið fullkomlega af fjöllum Shpetim Qerimi, sem er sakaður um að eiga hlutdeild í morðinu á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar, neitaði sök við skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Shpetim er sagður hafa ekið Angjelin Sterkaj í Rauðgerði kvöldið sem Angjelin skaut Armando til bana. Innlent 13. september 2021 16:21
Hló og sagðist halda að Angjelin væri undir áhrifum fíkniefna „Armando var vinur minn,“ sagði Murat Selivrada við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Armando var skotinn til bana af Angjelin Sterkaj í Rauðagerði 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 13. september 2021 15:10
Átti að senda „hæ sexy“ ef annar bíllinn yrði hreyfður Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu var framhaldið eftir hádegi í dag þar sem tekin var skýrsla af Claudiu Sofiu Coehlo Carvalho, unnustu Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum. Innlent 13. september 2021 14:08
Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. Innlent 13. september 2021 10:34
Skýrslutaka í Rauðagerðismálinu hefst í héraðsdómi í dag Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og munu skýrslutökur standa yfir fram á fimmtudag. Málflutningur fer fram fimmudaginn 23. september næstkomandi. Innlent 13. september 2021 07:11
Arion mátti krefjast fjárnáms hjá forstjóra United Silicon Héraðsdómur Reykjavíkur gaf Arion banka grænt ljóst á að krefjast fjárnáms í fasteign Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, í mars. Bankinn hefur freistað þess að fá greidda skuld félags í meirihlutaeigu Magnúsar upp á tæpar fimm milljónir króna. Viðskipti innlent 8. september 2021 18:47
Sjómaður lagði Sjóvá vegna spriklandi stórþorsks sem skar hann á þumal Tryggingafélagið Sjóvá hefur verið dæmt til að greiða sjómanni 5,1 milljón vegna slyss sem varð um borð í togara útgerðarfélagsins Brims árið 2018, þegar sjómaðurinn skarst illa á hendi þegar stórþorskur sem hann var að gera að, spriklaði í höndum hans með þeim afleiðingum að sjómaðurinn skarst illa á hendi. Innlent 8. september 2021 18:25
Dómsmálaráðherra gagnrýnir Helga Magnús vararíkissaksóknara Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir vararíkissaksóknara fyrir framgöngu hans á samfélagsmiðlum. Hann megi ekki rýra traust og trú almennings með framgöngu sinni á opinberum vettvangi. Innlent 8. september 2021 12:21
Sveik út vörur fyrir 2,3 milljónir króna með kreditkorti mömmu Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa svikið út vörur frá hinum ýmsu fyrirtækjum vörur að andvirði rúmra tveggja milljóna króna, með því að hafa við kaupin notað kreditkort móður sinnar og þriggja annarra. Innlent 6. september 2021 13:55
Sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þarf að koma fyrir dóm Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis að sautján ára brotaþoli í kynferðisbrotamáli þurfi að koma fyrir dóm sem vitni. Innlent 4. september 2021 18:00
Þrjátíu daga fangelsi fyrir að stórslasa barn í bílslysi Karlmaður var í dag dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekið á barn á Hörgársbraut á Akureyri með þeim afleiðingum að það stórslasaðist. Innlent 3. september 2021 19:10
Missti níu bjóra og sterkt í hendur lögreglu en slapp við refsingu Ungur maður var í dag sýknaður af kröfum ákæruvaldsins um refsingu vegna brots á áfengislögum. Hann var hins vegar dæmdur til að sæta upptöku á níu bjórum og einni flösku af sterku áfengi. Innlent 3. september 2021 18:29
Arnþrúður og Reynir mætast í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs í máli hans gegn Arnþrúði Karlsdóttur, útvarpskonu. Reynir fær því að áfrýja dómi Landsréttar í málinu. Innlent 1. september 2021 12:09
Ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann er ákærður fyrir að hafa meðal annars staðið að innflutningi tæpra 660 gramma af kókaíni, fyrir vörslu fíkniefna og peningaþvætti. Innlent 1. september 2021 09:21
Gripinn með kíló af kókaíni í ferðatöskunni Þýsk-rússneskur karlmaður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi hér á landi fyrir innflutning á rétt tæpu kílói af kókaíni. Maðurinn játaði sök þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Innlent 30. ágúst 2021 10:33
Slökkviliðsmanni sem sagt var upp fyrir einelti dæmdar bætur Sveitarfélagið Fjarðabyggð var í byrjun júlí dæmt til að greiða fyrrverandi slökkviliðsmanni fjórar og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Manninum var sagt upp eftir ítrekaðar kvartanir samstarfskvenna hans um einelti. Innlent 29. ágúst 2021 17:33
Sveik út vörur og þjónustu í gegnum reikninga Eimskips og Brims Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa í nokkrum tilfellum svikið út vörur og þjónustu í verslunum og hjá einni bílaleigu með því að nýta sér vitneskju um viðskiptareikning hjá Eimskip og Brim til úttektar í eigin þágu. Innlent 27. ágúst 2021 07:57
Tæpar þrjár vikur í aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu Stefnt er á að aðalmeðferð í hinu svokallaða Rauðgerðismáli fari fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. september. Fjórir eru ákærðir í málinu vegna morðsins á Armando Beqiri, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar. Innlent 26. ágúst 2021 13:30
Skiptu á strikamerkjum til að greiða tvö þúsund fyrir vörur að andvirði sjötíu þúsund Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt erlend hjón í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið vörum úr Ikea með því að hafa tekið strikamerki af ódýrari vörum og sett á dýrari vörur. Innlent 24. ágúst 2021 14:09
Anton Kristinn játar brot og fær 175 þúsund króna sekt Aðalmeðferð í máli Antons Kristins Þórarinssonar fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Anton játaði brot í tveimur af þremur ákæruliðum og var þar dæmdur til að greiða 175 þúsund króna sekt fyrir að hafa brotið fíkniefna- og vopnalagabrot. Innlent 23. ágúst 2021 12:50
Fatlaður maður dæmdur til að leita sér hjálpar við kynferðislegum tilhneigingum sínum Fatlaður Íslendingur var í síðasta mánuði fundinn sekur um að hafa brotið kynferðislega á öðrum yngri fötluðum manni í gegnum netsamskipti þeirra – hann þarf að greiða fórnarlambi sínu 250.000 krónur í miskabætur vegna þessa. Innlent 19. ágúst 2021 21:22
Síbrotamaður dæmdur í þriggja ára fangelsi Tómas Helgi Jónsson var á þriðjudag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og ævilangrar sviptingar ökuréttinda fyrir umferðar- og fíkniefna- og vopnalagabrot auk eldri brota. Tómas Helgi á að baki áralangan brotaferil. Innlent 19. ágúst 2021 11:18
Deiluaðilar sitja á fundi í von um lausn Deiluaðilar í Húsafellsmálinu svokallaða sitja nú á fundi til þess að fresta þess að gera lokatilraun til að ná sáttum. Niðurrif á Legsteinasafninu sem deilan snýst um átti að hefjast í dag. Skessuhorn greinir frá. Innlent 12. ágúst 2021 10:47
Björn Ingi hlýtur ekki náð fyrir augum Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað því að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar gegn þrótabúi Pressunnar ehf. Björn Ingi hafði óskað eftir málskotsleyfi eftir að Landsréttur dæmdi hann til að greiða 80 milljóna skuld til þrotabúsins. Viðskipti innlent 28. júlí 2021 13:43
Afturkalla kyrrsetningarbeiðnir vegna uppbyggingar á Kirkjusandi Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) og 105 Miðborg slhf. hafa náð samkomulagi um að afturkalla kyrrsetningarbeiðnir gagnvart hvort öðru og að uppgjöri vegna ágreiningsmála þeirra verði lokið með hefðbundnum hætti fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 25. júlí 2021 23:16
Arnar kærir forstjóra ÁTVR til lögreglu Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisverslunarinnar Santewines, hefur lagt fram kæru á hendur Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. ÁTVR hefur kært Arnar og fyrirtæki hans Sante ehf. og Santewines SAS til lögreglu og skattayfirvalda fyrir stórfelld skattaundanskot. Arnar hefur alfarið hafnað ásökununum. Viðskipti innlent 21. júlí 2021 15:44
Mannréttindadómstóllinn tekur mál Nöru fyrir Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka mál Nöru Walker gegn Íslenska ríkinu til efnismeðferðar. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. Innlent 21. júlí 2021 08:26
Krónan vill rúman milljarð króna í bætur frá ríkinu Krónan fer fram á ríflega milljarð króna í bætur frá íslenska ríkinu út af meintum hagnaðarmissi á árunum 2015 til 2018 af völdum innflutningshamla sem brutu gegn EES-samningnum. Málið á sér langan aðdraganda og varðar innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvörum. Viðskipti innlent 20. júlí 2021 16:37
Hjalti Úrsus heldur því fram að lögregla ljúgi til um blóðprufu í máli sonar hans Hjalti Úrsus Árnason segir að vænta megi skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu af áður óþekktri stærðargráðu í hliðstæðum málum. Innlent 20. júlí 2021 12:53
Dæmdur nauðgari í sex mánaða gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna Joshua Ikechukwu Mogbolu, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í sex mánaða gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 20. júlí 2021 11:13