

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna reynir að ná til Trump
Antonio Guterres óttast að það skapist raunveruleg hætta á stríði.

Trump endurgreiddi lögmanninum þagnargreiðsluna
Rudy Giuliani segir að Donald Trump hafi endurgreitt lögmanni sínum, Michel Cohen, þá 130 þúsund dali sem varið var til að þagga niður í klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels.

Nýr lögmaður tekur við teymi Trump
Emmet Flood varði Bill Clinton þegar hann var kærður fyrir embættisbrot.

Cambridge Analytica hættir starfsemi
Fyrirtækið Cambridge Analytica hefur hætt starfsemi í kjölfar ásakana um misferli varðandi persónuupplýsingar 87 milljóna Facebook notenda í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum 2016.

Iowa stefnir að ströngustu fóstureyðingarlögum Bandaríkjanna
Samkvæmt frumvarpinu verður konum bannað að fara í fóstureyðingar eftir að hjartsláttur fósturs verður greinanlegur, sem er eftir um sex vikur.

Vilja móta risavaxna andlitsmynd af Trump í bráðnandi jökul
Hópur Finna sem berst gegn loftslagsbreytingum hyggst safna fé til þess að móta risavaxna andlitsmynd af Donald Trump, forseta Bandaríkjanna í einn af jöklum norðurslóða

Mueller sagður hafa hótað Trump með stefnu
Eftir spennufund saksóknara Mueller og lögmanna Trump er einn lögmannanna sagður hafa skrifað upp lista um 49 spurningar. Þeim hefur verið lekið í fjölmiðla.

Segir Trump hafa skrifað bréf um eigið heilsufar
Fyrrverandi læknir Bandaríkjaforseta segist ekki bera ábyrgð á meðmælabréfi frá árinu 2015 sem gaf til kynna að heilsa Donalds Trump væri „ótrúlega frábær“

Koma umdeildustu konu Bandaríkjanna til varnar
Háðfuglarnir og stjórnendur helstu spjallþátta Bandaríkjanna komu Michelle Wolf til varnar í gær.

Trump allt annað en sáttur vegna spurningalekans
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að það sé "til skammar“ að listi yfir spurningar sem Robert Mueller, sérstakur saksóknari, vill spyrja forsetann að hafi verið lekið í fjölmiðla.

Spurningalisti sérstaks saksóknara birtur - vill leggja á fimmta tug spurninga fyrir Trump
Robert Mueller, sérstakur saksóknari í málum tengdum meintum afskiptum Rússa af síðustu forsetakosningum vestanhafs, vill leggja á fimmta tug spurninga fyrir Donald Trump forseta og hefur spurningalistanum verið lekið til dagblaðsins New York Times.

Kelly sagður kalla Trump „fífl" og á leið úr Hvíta húsinu
John Kelly, starfsmannastjóri Hvíta hússins, er sagður telja sig sig vera að bjarga Bandaríkjunum frá Donald Trump, forseta, og hefur gert lítið úr gáfnafari hans.

Stefnir Trump fyrir meiðyrði
Klámleikkonan Stormy Daniels, hefur stefnt Donald Trump fyrir tíst um skissu.

Trump leggur til að þeir Kim hittist í Kóreu
Trump, Bandaríkjaforseti, lagði til að fundur hans og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, yrði haldinn í Kóreu.

Merkel heimsótti Trump
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kom í dag til Washington í opinbera heimsókn þar sem hún fundaði með Trump Bandaríkjaforseta.

Repúblikanar skamma leyniþjónustuna í skýrslu um afskipti Rússa
Framboð Trump fær skammir fyrir að lofa og eiga í samskiptum við uppljóstranavefinn Wikileaks í skýrslu leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.

Diplómatísk handalögmál
Fundur þeirra Donalds Trump og Emmanuels Macron í Washington í vikunni vakti mikla athygli um heim allan.

Bandaríkjaþing staðfesti Pompeo sem utanríkisráðherra
Í yfirlýsingu hvatti Trump Bandaríkjaþing til þess að staðfesta tilnefningu Pompeo hratt.

Trump heitt í hamsi í viðtali við vinina á Fox
Bandaríkjaforseti fór mikinn um meinta spillingu innan FBI og hagsmunaárekstra saksóknara í viðtalið við Fox og vini. Hótaði hann því að grípa inn í hjá dómsmálaráðuneytinu vegna Rússarannsóknarinnar.

Lögmaður Trump neitar að bera vitni
Í ljósi rannsóknar alríkislögreglunnar FBI vill lögmaðurinn ekki þurfa að bera vitni sem gæti bendlað hann við glæp í einkamáli klámmyndaleikkona gegn honum.

Íranir hafa engan áhuga á að breyta kjarnorkusamningnum
Forsetar Bandaríkjanna og Frakklands hafa sagst vinna að nýjum og breyttum samningi um kjarnorkufrmaleiðslu Írana.

Trump gerður afturreka með afnám á vernd innflytjenda
Áætlun sem varði innflytjendur sem voru fluttir ólöglega til Bandaríkjanna sem börn fyrir brottvísun var felld úr gildi í mars.

Hundruð vísindamanna saka Trump-stjórnina um að sverta vísindi
Vísindamennirnir segja höfnun ríkisstjórnar Trump á vísindum sérstaklega svívirðilega í tilfelli loftslagsbreytinga.

Trump talaði um að þurrka flösu af öxl Macron
Á meðan hann ræddi um sérstakt samband sitt við forseta Frakklands sagðist Trump ætla að þurrka af honum svolitla flösu.

Rússneskur lögmaður frá umtöluðum fundi hefur ekki verið yfirheyrður
Lögmaðurinn sat fundinn fræga í Trump-turninum með syni, tengdasyni og kosningastjóra Donalds Trump. Þeim hafði verið lofað skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton.

Íran gæti hætt þátttöku í banni við útbreiðslu kjarnavopna
Íranskir ráðamenn vara við alvarlegum afleiðingum ef Trump Bandaríkjaforseti riftir kjarnorkusamningnum sem heimsveldin gerðu við Írani árið 2015.

Trump laug og villti á sér heimildir til að komast hærra á Forbes-lista
Allt sem Trump sagði blaðamanni Forbes um meint auðæfi sín á 9. áratugnum reyndist ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum.

Hvetja Trump til að rifta ekki kjarnorkusamkomulaginu
Trump hefur ítrekað hótað því að ef bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu lagi ekki „hræðilega galla“ í samkomulaginu fyrir 12. maí muni hann beita viðskiptaþvingunum gegn Íran aftur.

Ráðgjafi Trump stýrði hugveitu með áróður gegn múslimum
Hugveita Johns Bolton birti greinar um yfirvofandi yfirtöku "jíhadista“ á Evrópu.

Leiðtogar heimsins fagna fregnum frá Norður-Kóreu
Donald Trump og aðrir ráðamenn víða um heim fagna því að Norður-Kórea hyggst hætta tilraunum með kjarnorkuvopn.