

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið
Eftir að hafa flutt aftur heim til Englands er fótboltamaðurinn Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið.

„Passar fullkomlega við svona félag“
Portúgalski fótboltamaðurinn Diogo Dalot er sannfærður um að landi hans, Ruben Amorim, eigi eftir að spjara sig vel sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Man. Utd kynnir nýja stjórann til leiks
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur nú staðfest komu portúgalska stjórans Ruben Amorim. Hann mun taka formlega við liðinu mánudaginn 11. nóvember.

Ten Hag niðurbrotinn þrátt fyrir milljarðana
Erik ten Hag var rekinn sem knattspyrnustjóri Manchester United á mánudagsmorgun. Hann fær veglegan starfslokasamning en er engu að síður í öngum sínum.

Jürgen Klopp enn fúll út í Sergio Ramos
Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, er enn fúll yfir tapinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2018 og þá sérstaklega út í einn mann.

Láki samdi við strák sem er nú einn heitasti framherji Evrópu
Viktor Gyökeres er eftirsóttasti framherji heims um þessar mundir og Þorláki Árnasyni óraði ekki fyrir því á sínum tíma, þegar að hann samdi við kappann í Svíþjóð, að hann myndi ná svona langt á sínum ferli.

Van Nistelrooy til í öll störf og vill vera áfram hjá Man. United
Ruud van Nistelrooy verður knattspyrnustjóri Manchester United í næstu leikjum liðsins en hann mun stýra liðinu þar til að Ruben Amorim tekur við eftir landsleikjahlé um miðjan nóvember.

Guardiola segist bara vera með þrettán heilbrigða leikmenn
Englandsmeistarar Manchester City glíma við mikil meiðsli þessa dagana en liðið datt út úr enska deildabikarnum í gærkvöldi eftir tap á móti Tottenham.

Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“
Bandaríkjamaðurinn Antonee Robinson, vinstri bakvörður Fulham, fékk hart nei frá tölvuleikjaframleiðandanum EA þegar hann bað um að fá að spila sjálfum sér.

Jürgen Klopp: Ég vil ekki stíga á neinar tær
Jürgen Klopp hefur komið fram og varið þá ákvörðun sína að taka við starfi hjá Red Bull fótboltasamsteypunni. Hann hefur fengið hörð viðbrögð og mikla gagnrýni í heimalandi sínu ekki síst frá stuðningsmönnum hans gömlu félaga í heimalandinu, Mainz og Dortmund.

Lítur út fyrir að United þurfi að bíða eftir Amorim
Manchester United stefndi á það að Ruben Amorim myndi stýra liðinu á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Það er hins vegar mjög ólíklegt úr þessu.

Liverpool, Arsenal og Manchester United sluppu við hvert annað
Sextán liða úrslit enska deildabikarsins í fótbolta kláruðust í gærkvöldi þar sem lið eins og Manchester City og Chelsea duttu út úr keppni. Það var líka dregið í átta liða úrslitin.

Ruud sagði heppnina loks með sínum mönnum í liði
„Ég verð að segja að við vorum með heppnina með okkur í liði á köflum,“ sagði Ruud van Nistelrooy, tímabundinn þjálfari Manchester United eftir 5-2 sigur liðsins á Leicester City í 16-liða úrslitum enska deildarbikarsins. Rauðu djöflarnir mæta Tottenham Hotpsur í 8-liða úrslitum.

Markadrottningin Miedema undir hnífinn á nýjan leik
Hin hollenska Vivianne Miedema, framherji Manchester City, verður frá keppni um ótilkominn tíma eftir aðgerð á hné.

Tottenham henti Man City úr keppni
Tottenham Hotspur lagði Manchester City 2-1 í síðasta leik 16-liða úrslitum enska deildarbikarsins.

Stefán Teitur átti ekki möguleika gegn Arsenal | Newcastle lagði Chelsea
Arsenal er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir þægilegan 3-0 útisigur á Stefáni Teiti Þórðarsyni og félögum í Preston North End. Newcastle United er sömuleiðis komið áfram eftir góðan 2-0 sigur á Chelsea.

Man Utd örugglega áfram í fyrsta leik Nistelrooy sem þjálfara
Manchester United fékk Leicester City í heimsókn í 16-liða úrslitum deildarbikarsins. Um var að ræða fyrsta leik liðsins undir stjórn Ruud van Nistelrooy en hann tók við eftir að Erik ten Hag var látinn taka poka sinn. Nistelrooy byrjar vel en Rauðu djöflarnir unnu þægilegan 5-2 sigur í galopnum leik á Old Trafford.

Liverpool áfram eftir fjörugan síðari hálfleik
Liverpool er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-0 útisigur á Brighton & Hove Albion. Hollendingurinn Cody Gakpo skoraði bæði mörk gestanna.

Ten Hag vildi fá Welbeck til United
Fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, Erik ten Hag, vildi fá Danny Welbeck aftur til liðsins í sumar og fyrrasumar.

Scholes segir að Amorim minni sig á Ten Hag
Paul Scholes, einn leikja- og markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, er ekki alveg sannfærður um ágæti Rúbens Amorim sem félagið vill fá sem næsta knattspyrnustjóra.

Mourinho var bara að segja brandara
Jose Mourinho heldur því fram að hann fái ekki sanngjarna meðferð hjá Knattspyrnusambandi UEFA. Mourinho fékk rauða spjaldið í síðasta Evrópuleiknum sínum sem var á móti hans gömlu lærisveinum í Manchester United.

Tónlistarkonan Olivia Rodrigo fékk að heyra það út af kjöri Rodri
Nettröllin lentu í ákveðnu vandamáli þegar þau vildu herja á spænska miðjumanninn Rodri eftir að hann fékk Gullhnöttinn, Ballon d'Or, á mánudagskvöldið.

Hefur ekki tekið ákvörðun um að taka við Man. Utd
Ruben Amorim stýrði Sporting til sigurs í portúgalska deildabikarnum í gærkvöldi en fyrr um daginn höfðu margir helstu fjölmiðlar Evrópu staðfest hann sem næsta knattspyrnustjóra Manchester United.

Willum Þór með stoðsendingaþrennu í stórsigri
Willum Þór Willumsson lagði upp þrjú mörk þegar Birmingham City lagði U-21 lið Fulham 7-1 í EFL-bikarnum á Englandi. Alfons Sampsted lagði upp sjöunda mark Birmingham.

Luke Shaw verður lengur frá keppni en talið var fyrst
Luke Shaw, vinstri bakvörður enska landsliðsins í knattspyrnu og Manchester United, hefur lent í enn einu bakslaginu og verður lengur frá keppni en spáð var til um. Upprunalega átti hann að snúa aftur í september, svo október en nú er alls óljóst hvenær þessi meiðslahrjáði leikmaður mun snúa aftur á völlinn.

Sonur Dagnýjar leiddi Bowen inn á fyrir leikinn gegn United
Brynjar Atli Ómarsson, sonur Dagnýjar Brynjarsdóttur, fyrirliða kvennaliðs West Ham United, leiddi fyrirliða karlaliðs félagsins inn á fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn. West Ham vann leikinn og daginn eftir var knattspyrnustjóri United, Erik ten Hag, svo rekinn.

Sporting staðfestir áhuga United á Amorim
Manchester United ætlar sér að ráða Rúben Amorim sem næsta knattspyrnustjóra liðsins. Sporting hefur staðfest áhuga United á honum og að félagið sé tilbúið að greiða tíu milljóna evra riftunarákvæði í samningi hans.

Hver er þessi Rúben Amorim?
Rúben Amorim virðist vera líklegastur til að taka við sem knattspyrnustjóri Manchester United. En hver er maðurinn?

Sá besti ekki einu sinn tilnefndur í ensku úrvalsdeildinni
Rodri fékk í gær Gullhnöttinn, Ballon d'Or, sem besti knattspyrnumaður ársins. Spænski miðjumaðurinn átti magnað ár og hafði betur í baráttunni við Vinícius Júnior.

Haaland skrópaði líka og fór frekar á leik í Svíþjóð
Það voru ekki bara Real Madrid leikmennirnir Vinícius Júnior og Jude Bellingham sem skrópuðu á verðlaunahátíð Ballon d'Or í gær.