Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Hamilton vann í viðburðarríkri keppni

Bretinn Lewis Hamilton á McLaren tók forystu í stigamóti ökumanna með sigri á Spa brautinni í Belgíu í dag. Hann varð á undan Mark Webber á Red Bull, en Robert Kubica varð þriðji.

Formúla 1
Fréttamynd

Meistarinn telur McLaren liðið hraðskreiðast

Fimm ökumenn berjast af krafti í Formúlu 1 á Spa-brautinni í dag, en Mark Webber er fremstur á ráslínu, á undan Lewis Hamilton, Robert Kubica og Sebastian Vettel. Bein útsending hefst kl. 11.30 á Stöð 2 Sport í opinni dagskrá.

Formúla 1
Fréttamynd

Veðurguðirnir hjálpuðu Webber

Mark Webber er fyrstur á ráslínu í Spa kappakstrinum sem er á sunnudag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. Webber náði besta tíma við erfiðar aðstæður og skákaði keppinautum sínum með aðstoð veðurguðanna.

Formúla 1
Fréttamynd

Rásröð á Spa breytt vegna refsinga

Nokkrir ökumenn hafa verið færðir aftur á ráslínu eftir tímatökuna á Spa í dag og þekktastur er Michael Schumacher sem var færður aftur um 10 sæti, vegna þess að hann braut af sér í Ungverjalandi gegn Rubens Barrichello. Dómarar þar dæmdu hann í tíu sæta refsingu. Schumacher ræsir af stað í 21. sæti.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber sá við Hamilton í tímatökum á Spa

Mark Webber sem er efstur að stigum í stigamóti ökumanna verður fremstur á ráslínu í kappakstrinum á Spa brautinni á morgun. Hann náði besta tíma í tímatökum í dag á Red Bull bíl á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Robert Kubica á Renault varð þriðji, en Sebastian Vettel fjórði.

Formúla 1
Fréttamynd

Toppmennirnir í titilslagnum fljótastir

Forystumaðurinn í stigamótinu í Formúlu 1, Mark Webber hjá Red Bull var fljótastur allra á lokaæfingu keppnisliða á Spa brautinni í Belgíu í morgun. Hann varð á undan Lewis Hamilton hjá McLaren.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso rétt á undan Sutil

Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á seinni æfingu keppnisliða á Spa brautinni í Belgíu í dag. Adrian Sutil á Force India varð í öðru sæti, 0.125 sekúndum á eftir, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji, 0,216 á eftir.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso stakk af á fyrstu æfingu á Spa

Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari varð 0.770 sekúndum fljótari en næstu ökumaður á fyrstu æfingu keppnisliða á Spa brautinni í Belgíu í morgun. Lewis Hamilton á McLaren varð annar og Robert Kubica á Renault þriðji.

Formúla 1
Fréttamynd

Rubens Barrichello ekur í 300 mótinu

Rubens Barrichello keppir í sínu 300 Formúlu 1 móti um helgina að eigin sögn, en tölfræðin virðist ekki alls staðar sú sama hjá fræðingum í greininni. En Williams og Barrichello segja í tilkynningu að mótið sé það 300 sem hann tekur þátt í á Spa um helgina.

Formúla 1
Fréttamynd

Schumacher bað Barrichello afsökunar

Michael Schumacher hefur beðið Rubens Barrichello afsökunar á atvikinu í Ungverjalandi, þar sem hann ók í veg fyrir Barrichello á mikilli ferð á beinasta kafla brautarinnar. Autosport.com greindi frá þessu eftir hádegi í dag, en Barrichello fagnar því að mæta í sitt 300 mót um helgina á Spa brautinni um helgina.

Formúla 1
Fréttamynd

Varla hægt að endurtaka 2009 ævintýrið

Vijay Mallaya hjá Force India liðinu telur ólíklegt að liðið nái aftur besta tíma í tímatökum á Spa brautinni í Belgíu, eins og gerðist í fyrra. Þá varð Giancarlo Fisichella fljótastur og lauk keppni í öðru sæti á eftir Kimi Raikkönen hjá Ferrari.

Formúla 1
Fréttamynd

Massa: Endaspretturinn verður spennandi

Felipe Massa hjá Ferrrari vann mótið á Spa brautinni árið 2008, sem keppt verður á um næstu helgi og Kimi Raikkönen sem var hjá Ferrari vann mótið í fyrra, en keppir ekki lengur í Formúlu 1.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber og Vettel spenntir fyrir Spa

Forystumaður stigamótsins, Mark Webber hjá Red Bull segir að ökumönnum hlakkii til að takast á við Spa brautina í Belgíu um næstu helgi, sem er uppáhaldsbraut margra keppenda og áhorfenda.

Formúla 1
Fréttamynd

Schumacher tekur út refsingu í Belgíu

Michael Schumacher þarf að ræsa 10 sætum aftar en tími hans í tímatökum á Spa brautinni í Belgíu um næstu helgi segir til um. Hann braut á Rubens Barricehllo í síðustu keppni, ók í veg fyrir hann og fékk dæmt á sig víti.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen gengur vel í rallakstri

Finnanum Kimi Raikkönen gekk ágætlega í þýska rallinu sem er liður í heimsmeistaramótinu í rallakstri, en keppt var um helgina. Sebastian Loeb frá Frakklandi vann mótið á Citroen, en Raikkönen varð sjöundi á Citroen.

Formúla 1
Fréttamynd

Button vill komast í fremstu röð á ný

Heimsmeistarinn Jenson Button hjá McLaren segir að lið sitt hafi verið skrefi á eftir toppliðunum í síðustu keppni, sem var í Ungverjalandi. Keppnisliða koma úr sumarfríi í næstu viku og keppa á Spa brautinni í Belgíu um aðra helgi.

Formúla 1
Fréttamynd

Pedro de la Rosa aldrei betri

Spánverjinn Pedro de la Rosa sneri aftur í Formúlu 1 sem keppnis ökumaður í ár rétt eins og Michael Schumacher. Pedro ekur hjá Sauber liðinu og er spænskur að uppruna, en var lengi vel þróunarökumaður McLaren og mikils metinn sem slíkur.

Formúla 1
Fréttamynd

Spennandi þróunarvinna framundan hjá Heidfeld

Paul Hembrey hjá Pirelli segir að koma Nick Heidfeld til fyrirtækisins sé mikill fengur og reynsla hans eigi eftir að koma Pirelli til góða á næsta ári. Þá hefur fyrirtækið formlegt samstarf við keppnisliðin um að útvega dekk í stað Bridgestone í mótum.

Formúla 1
Fréttamynd

Mercedes setur stefnuna á 2011

Lið Mercedes í Formúlu 1 með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg innanborðs ætlar ap setja meiri kraft í hönnun bíls næsta árs, heldur en framþróun 2010 bílsins. Þetta sagði Ross Brawn í frétt á autosport.com.

Formúla 1
Fréttamynd

Formúla 1 í Bandaríkjunum næstu 40 ár

Tavo Hellmund er á bakvið Formúlu 1 mótshald í Bandaríkjunum sem hefst á næsta ári á ný, í Austin í Texas. Hann segir að mótið sem hann skipuleggur gæti hæglega verið á dagskrá næstu 40 árin.

Formúla 1
Fréttamynd

Framtíð Hispania liðsins óljós

Þrjú ný Formúlu 1 lið voru stofnuð fyrir þetta tímabil og eitt þeirra er Hispania á Spáni. Liðið hefur haft lítið fé til að þróa bíla sína og Bruno Senna, annar ökumanna liðsins segir stöðu liðsins óljósa hvað framtíðina varðar.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber spáð meistaratitlinum

Flavio Briatore, umbosðsmaður Flavio Briatore spáir honum meistaratitlinum í Formúlu 1 og telur að hann geti staðið af sér atlögur Sebastian Vettel og Jenson Button , Lewis Hamilton og Fernando Alonso.

Formúla 1