Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í evrópskum borgum í Frakklandi, Ítalíu og í Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum. Erlent 20.10.2026 10:43
Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, „valda skaða“. Ummælin lét hann falla í tengslum við mótmæla- og óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland. Innlent 20.10.2026 09:48
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. Erlent 19.10.2026 23:36
Flúði táragas lögreglu í Nice Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. Innlent 18. október 2026 12:02
Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt. Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum. Erlent 18. október 2026 07:52
Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa. Erlent 17. október 2026 22:25
Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Meira en 160 manns hafa verið handteknir víðs vegar um Frakkland á mótmælum sem fara fram víða um land. Hópur mótmælenda braust um stundarsakir inn í ráðhúsið í Marseille og kveiktu í ferðaskrifstofu í Lyon. Búist er við því að tugir þúsunda taki þátt í mótmælum gegn versnandi gæðum menntunar og háum framfærslukostnaði. Erlent 17. október 2026 13:37
Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Engar tilkynningar hafa borist um að íslenskar matvöruverslanir hafi orðið fyrir barðinu á tölvuárásum á kæla sem leiddu til þess að miklu magni matvæla var hent í Frakklandi í vikunni. Íslensk fyrirtæki virðast þó hafa brugðist við tíðindunum með því að taka kæla af netinu. Innlent 15. október 2026 11:13
Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Franskir menntaskólanemendur héldu áfram mótmælum í dag og kalla nú eftir stuðningi háskólanema og gulvestunga þar sem haustfrí skólanna nálgast. Innanríkisráðuneytið telur 161.500 hafa mótmælt á landsvísu en samtök nemenda segja þátttakendur hafa verið 480 þúsund. Erlent 13. október 2026 23:16
„Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Við eigum mjög margt sameiginlegt en erum líka mjög ólík á ákveðinn hátt; ég er fiðrildið sem fær yfirleitt 150 hugmyndir daglega, fylgi innsæinu og sköpunarkraftinum, en hann er ótrúlega góður í að koma hlutunum niður á jörðina og keyra þá áfram án þess að gefast upp. Það er samspil sem virkar alveg ótrúlega vel,“ segja hjónin Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson sem giftu sig með pomp og prakt í Frakklandi í haust. Lífið 13. október 2026 20:02
Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Tvenn málverk eftir listmálarann Pierre-Auguste Renoir er fundin eftir að þeim var stolið af safni til heiðurs málaranum. Málverkin fundust falin fyrir aftan vegg. Erlent 12. október 2026 18:02
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Töluvert magn af matvælum fór til spillis þegar tölvuárás slökkti á kælum stórra franskra matvöruverslanakeðja í dag. Franskar og evrópskar netöryggissveitir rannsaka árásina sem beindist að dönskum kælum. Erlent 12. október 2026 15:15
Elma seld til útlanda Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi. Bíó og sjónvarp 9. október 2026 10:55
Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri. Erlent 9. október 2026 07:39
Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Henry Kagan og Kenso Soai skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði fyrir uppgötvun ólínulegra áhrifa og sjálfhvötunar í ósamhverfri lífrænni efnasmíð. Erlent 7. október 2026 10:02
Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Íslensk hönnun var í hávegum höfð í sjóðheitu teiti í París á dögunum í tilefni af tískuvikunni þar. Þrír íslenskir listamenn komu þar saman að sýningunni „Reykjavík“ sem haldin var í Le Marais-hverfinu, sem er þekkt fyrir tísku, sjarma og töffara. Tíska og hönnun 6. október 2026 14:26
Missti hönd í mótmælunum Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi. Erlent 6. október 2026 06:52
Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hundruðum menntaskóla víðs vegar í Frakklandi verður lokað á mánudag vegna mótmæla menntaskólanema sem snúist hafa í óeirðir. Að minnsta kosti fimm þúsund hafa verið handteknir, flestir unglingar. Erlent 4. október 2026 13:26
Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Þegar ég var tólf ára byrjaði ég að segja fólki að ég væri fyrirsæta þó að það væri ekkert til í því þá. Ég vissi bara að þetta væri það sem ég vildi gera,“ segir Alísa Helga Svansdóttir sem er í dag ein vinsælasta fyrirsæta sem Ísland hefur alið af sér. Lífið 3. október 2026 07:02
G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum. Viðskipti erlent 2. október 2026 15:14
Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Aniella Lóa, dóttir Ásdísar Ólafsdóttur listfræðings, varð fyrir táragasi þegar hún sótti stúdentamótmæli í Frakklandi. Töluverð harka er komin í mótmæli menntaskólanema sem krefjast bætinga á skólaumhverfinu. Erlent 2. október 2026 12:24
Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka. Erlent 2. október 2026 06:45
Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag. Erlent 30. september 2026 09:11
Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Hundruð þúsunda lögðu leið sína í miðborg Parísar til að berja páfann augum. Hann ók í gegnum fjöldann og messaði utandyra. Erlent 26. september 2026 16:25