

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Vigdís hafði lög að mæla um Íslandspóst og Isavia
Hinn umdeildi borgarfulltrúi segir engan spámann í sínu föðurlandi.

Landsréttur úrskurðar öðru sinni vegna kyrrsettu vélarinnar
Landsréttur úrskurðaði í málinu í dag.

Bjóða 64 flugmönnum Icelandair hálft starf í stað uppsagnar
Icelandair mun ekki segja upp flugmönnum fyrir veturinn heldur bjóða á sjöunda tug flugmanna að minnka starfshlutfall sitt í 50 prósent yfir vetrartímann.

Stefna Isavia og vilja lægri greiðslur
Kynnisferðir vilja að greiðslur þeirra til Isavia verði lækkaðar vegna ákvörðunar ríkisfyrirtækisins um að stöðva tímabundið gjaldtöku á fjarstæðum við Keflavíkurflugvöll. Hafi leitt til mismununar og röskunar á samkeppni.

Könnunin staðfesti stöðug viðhorf um staðsetningu flugvallarins
"Stuðningur við að hafa flugvöllinn í Vatnsmýri hefur verið langvarandi og stöðugur,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýrinni.

Neituðu að hlutast til um ákvarðanir Isavia
Tveimur dögum áður en WOW fór í þrot höfnuðu fulltrúar þriggja ráðuneyta óskum stjórnar WOW um að "hlutast til um“ að Isavia félli frá heimild til að kyrrsetja leiguþotur. Átti sú ákvörðun að gilda í næstu þrjátíu daga

Telja lík vera laumufarþega sem féll úr flugvél yfir London
Maðurinn er talinn hafa falist í lendingarbúnaðarrými vélarinnar.

Fækka flugferðum milli Keflavíkur og London
Ungverska félagið Wizz air dregur saman seglin í flugferðum milli London og Keflavíkur.

Hannaði kolefnisjöfnunarreiknivél til að losna við flugviskubit
Íslenskur doktorsnemi í tölvunarfræði hefur gert forrit sem reiknar út hve mörgum trjám ferðalangar þurfa að planta til að kolefnisjafna flugferðir sínar.

100 ára flugsaga Íslands
Þann 3. september árið 1919 hóf fyrsta flugvélin sig til lofts á Íslandi og gerðist það í Vatnsmýrinni. Flugmálafélagið, Þristavinafélagið og Isavia hafa minnst þessara tímamóta en fjölmenni var á hinum árlega flugdegi.

Þriðjungs samdráttur í útleigu með Airbnb á Íslandi
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí dróst saman um rúmlega tíu prósent milli áranna 2018 og 2019. Munaði þar mestu um heimagistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður en þar var fækkunin 29%. Kortavelta útlendinga hefur hins vegar dregist minna saman en fjöldi þeirra og þeir ferðamenn sem koma verja hærri fjárhæðum í landinu.

Sendir mál ALC aftur til Landsréttar
Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Landsréttar í máli ALC gegn Isavia.

Sveitarfélög lengi þrýst á nýtingu fjármuna Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar
Þegar bandaríski herinn fór frá Íslandi fyrir þrettán árum var félagið Kadeco stofnað, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Markmið félagsins var að stýra því hvernig svæðinu yrði breytt og eignir nýttar. Nú hefur félagið selt síðustu eignirnar á svæðinu.

Segist ekki hafa þekkt dóttur ráðherra þegar hann var skipaður stjórnarformaður
Ísak Ernir vill alls ekki að umræðan um samband hans við Margréti trufli með neinum hætti hið mikilvæga verkefni.

14 milljarðar ávinningur ríkisins af sölu eigna á Ásbrú
Fjárhagslegur ávinningur ríkissjóðs af sölu eigna á Ásbrú er um 14 milljarðar króna en síðustu eignirnar sem heyrðu áður undir gamla varnarliðssvæðið voru seldar á árinu.

Fundu annan galla í stýrikerfi Boeing 737 MAX
Samkvæmt heimildum CNN hefur fundist annar galli í stýrikerfi Boeing 737 MAX.

Fjárfest fyrir milljarða á svæði við Keflavíkurflugvöll
Svæðið er um sextíu ferkílómetrar að stærð.

Rúmlega þúsund kröfur vegna Gaman ferða
Ferðamálastofa áætlar að nokkurn tíma muni taka að fara yfir þann mikla fjölda krafna sem gerður var í tryggingafé ferðaskrifstofunnar Gaman ferða, sem lögðu upp laupana í vor.

Íslenskt flugfélag flutti evrópska nashyrninga til heimahaganna
Íslenska fragtflugfélagið Air Atlanta Icelandic flutti fimm svarta nashyrninga frá Evrópu til nýju heimkynna þeirra í þjóðgarði í Rúanda.

Tæknileg vandamál öngruðu SAS í dag
Tæknileg vandamál í flugi frá Osló og Kaupmannahöfn urðu til þess að flugum flugfélagsins til og frá borgunum var aflýst.

Annar flugmannanna lést eftir árekstur orrustuþotanna
Annar flugmannanna sem talið var að komist hefði frá árekstri orriustuþotna í Þýskalandi í dag hefur nú fundist, látinn.

Orrustuþotur skullu saman í háloftunum
Tvær þýskar Eurofighter-orrustuþotur brotlentu í dag yfir norðausturhluta Þýskalands eftir að hafa skollið saman í loftinu.

Harma misskilning við landamæraeftirlit
Ari Edwald, forstjóri MS, vakti athygli á því í færslu á Facebook-síðu sinni í gær að tveimur börnum hans sem eru 7 ára og 13 ára hafi verið meinað að fara í gegnum landamærahlið fyrir borgara EES, ESB og Sviss.

Flugi SAS til og frá Keflavík í dag aflýst
Flugi norræna flugfélagsins Scandinavian Airlines eða SAS, til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur öllu verið aflýst.

Skilin eftir sofandi í flugvélinni eftir lendingu
Flugfélagið Air Canada rannsakar nú hvernig það skeði að farþegi var skilinn eftir sofandi í vél félagsins eftir að allir höfðu farið frá borði.

Þúsundir mótmæltu flugbanni Rússa
Þúsundir mótmælenda komu saman þriðja daginn í röð í Tblisi, höfuðborg Georgíu, til þess að mótmæla afskiptum Rússa af málefnum Georgíu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti á föstudag að búið væri að aflýsa öllum flugferðum frá Rússlandi til Georgíu sem er vinsæll áfangastaður rússneskra ferðamanna.

Flug til Íslands efst á blaði yfir hagkvæmasta kostinn fyrir bandaríska ferðalanga
Samkvæmt könnun bandarísku ferðaleitarvélarinnar Kayak er flug til Íslands oftar en ekki hagkvæmasti kosturinn fyrir bandaríska ferðalanga sem eru að leita sér að ferð til Evrópu.

Framkvæmdir á Íslandi sagðar liður í uppsetningu færanlegrar herstöðvar
Alþingi samþykkti á dögunum að 300 milljónum króna verði varið í viðhald mannvirkja NATO á Íslandi.

WOW-hjólin keypt úr þrotabúinu og viðræður um nýja hjólaleigu
Ferðavenjur í Reykjavík eru ört að breytast að sögn ráðgjafa um vistvæna ferðamáta. Hann spáir því að rafdrifnum hjólum fjölgi um allt að helming á árinu miðað við innflutningstölur. Deilihjólin hafa verið keypt úr þrotabúi WOW air og til stendur að flytja inn rafdrifin deilihlaupahjól á næstunni. Hann segir borgina taka vel á móti þeim sem vilja stofna þjónustur sem þessar.

Biskupsstofa flytur í gamla húsnæði WOW air
Biskupsstofa hefur tekið á leigu 3. hæð að Katrínartúni 4 á Höfðatorgi í Reykjavík og mun flytja þangað úr Kirkjuhúsinu að Laugavegi 31, að því er fram kemur í tilkynningu á vef þjóðkirkjunnar.