

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við
„Viðmót flugmálayfirvalda olli okkur verulegum vonbrigðum. Kannski eru þetta mannleg viðbrögð. En þetta sýnir að þetta getur rist djúpt, að einhverjir almennir borgarar geti farið að veita kerfinu aðhald, spyrja spurninga og efast um vinnubrögð þeirra,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson.

Telur að aukið vægi tengiflugs muni setja þrýsting á EBIT-hlutfall Icelandair
Þótt sumt vinni með flugfélögunum til skamms tíma, eins og meðal annars lækkandi þotueldsneytisverð, er meiri óvissa um langtímahorfurnar vegna launahækkana og lakari samkeppnisstöðu Íslands, að mati greinanda, sem tekur nokkuð niður verðmat sitt á Icelandair. Útlit er fyrir bætta afkomu á komandi árum, einkum með nýjum og sparneytnari þotum, en aukið vægi tengiflugs þýðir að langtímamarkmið flugfélagsins um átta prósenta EBIT-hlutfall er ekki innan seilingar.

Samkeppni eykst í Grænlandsflugi
Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi.

Play – hagsmunamál heimilanna?
Ráðgjafanum brá í brún þegar bóka átti skíðafrí fjölskyldunnar þetta árið. Sama flug og í fyrra, bókað á sama árstíma en ríflega tvöfalt dýrara. Ástæðan er einföld – breytingar á leiðarkerfi Play sem valda því að Icelandair situr eitt að mörgum af helstu skíðaleggjum Evrópu.

Sækja óreiðumenn í flugrekstur?
Ef boðið er flugfargjald, sem er aðeins brot af kostnaði við flugið, vakna forvitnilegar spurningar um hver borgar það sem á vantar og af hverju hann gerir það. Gerir farþeginn það alfarið sjálfur eins og hjá dæmigerðu lággjaldaflugfélagi, hluti af þjóðinni eða jafnvel öll þjóðin? Stóð ekki annars til að flugfélagið bæri sig?

Þotur ráðherranna í krefjandi lendingum
Þrír af forsætisráðherrum Norðurlandanna flugu til Íslands á einkaþotum og lentu þær með fárra mínútna millibili á Reykjavíkurflugvelli síðdegis.

Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman
Flugmenn tveggja flugvéla sem rákust saman í samflugi yfir Vestmannaeyjum ætluðu að fljúga í hring yfir Vestmannaeyjar þegar vélarnar rákust saman. Þeir létu flugumferðarstjórn ekki vita af árekstrinum fyrr en skemmdir á vélunum komu í ljós á Keflavíkuflugvelli.

Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík
Það var ekki Boeing 727-þotan Gullfaxi sem varð fyrsta þotan til að lenda á Reykjavíkurflugvelli sumarið 1967. Sex árum áður hafði nefnilega önnur farþegaþota orðið fyrri til að lenda á flugvelli höfuðborgarinnar. Sú var ekki bandarísk heldur frönsk.

Togað hafi verið í stýrið og afturhluti vélar strokið flugbrautina
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að togað hafi verið í hæðarstýrið eftir að lyftispillar virkjuðust sjálfvirkt í lendingu, þegar stél á flugvél Icelandair straukst við flugbraut í Indlandi í fyrra.

Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta
Gengi bréfa í Play féll um tæp þrettán prósent í dag og verð á bréfum í félaginu er nú 0,82 krónur á hlut. Sú var staðan þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf í Kauphöllinni á fjórða tímanum í dag. Í gær birti félagið uppgjör þar sem kom fram að hagnaður á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman um þriðjung milli ára. Forstjóri félagsins kynnti grundvallarbreytingar á rekstrarmódeli félagsins á fundi í gær.

Viðgerðin á flugvél Gæslunnar kostaði 350 milljónir króna
Lagt er til að fjárveitingar til landhelgismála verðir auknar um 350 milljónir króna í ár vegna kostnaðar við viðgerð á hreyflum TF-SIF, flugvélar Landhelgisgæslunnar. Forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur kvartað undan því að stofnunin geti ekki rekið flugvél til að fylgjast með landhelginni.

Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar
Fjögur erlend fyrirtæki keppast um að fá rekstur Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í sínar hendur og er reiknað með niðurstöðu í útboði fyrir áramót. Núverandi innviðaráðherra styður útboðið en fyrrverandi innviðaráðherra var alfarið á móti þessum áætlunum.

Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu
Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi.

Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar
Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi.

Starfsmenn Boeing hafna 35 prósent launahækkun
Starfsmenn Boeing, sem nú hafa verið í verkfalli í rúman mánuð, hafa hafnað nýjasta tilboði flugvélaframleiðandans sem hljóðaði upp á 35 prósent launahækkun á fjórum árum.

Afkoma Icelandair var vel undir spám greinenda og gengið lækkaði skarpt
Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin.

Isavia sækir um leyfi til að færa flugvallargirðingu
Isavia undirbýr núna afhendingu flugvallarlands í Skerjafirði til Reykjavíkurborgar með færslu flugvallargirðingar í samræmi við tilmæli Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi innviðaráðherra, frá því í síðasta mánuði.

Hagnaður dregst saman um tæpa tvo milljarða króna
Hagnaður Icelandair eftir skatta var 9,5 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi og dregst saman um 1,7 milljarða á milli ára. Heildarfjöldi farþega var 1,7 milljónir og jókst um 200 þúsund á milli ára.

Skorað á Sigurð Inga að afturkalla tilmæli Svandísar
Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra að afturkalla tilmæli Svandísar Svavarsdóttur, fyrrverandi innviðaráðherra, til Isavia um að færa girðingu Reykjavíkurflugvallar í Skerjafirði.

Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli
Bilun var í brunaboða á Keflavíkurflugvelli í morgun og þurfi að rýma hluta flugvallarins í stutta stund. Samkvæmt upplýsingum frá Davíð Heimissyni varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja varði hún í aðeins stutta stund.

Play í frjálsu falli
Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur.

Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum
Nýtt frumvarp fjármálaráðherra kveður á um að tollgæslu verði heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að eigandanum fjarstöddum.

Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi
Icelandair skrifaði undir tvo samstarfssamninga um sammerkt flug á Hringborði Norðurslóða í dag, við Air Greenland og færeyska flugfélagið Atlantic Airways. Með þessum samningum geta félögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiða í gegnum Ísland.

Reykjavík er þriðja hávaðamengaðasta flugvallaborg í Evrópu
Árið 2014 var gefin út skýrsla af Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) um hávaða frá flugumferð í Evrópu (EEA, 2014). Í þeirri skýrslu kemur fram að Reykjavík er í þriðja sæti yfir borgir í Evrópu þar sem íbúar verða fyrir mestri hávaðamengun frá flugi.

Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play
Sérfræðingur með áratuga reynslu úr flugmálaheiminum segir erfitt að segja til um hvort að umfangsmiklar breytingar á rekstri flugfélagsins Play muni koma til með að bjarga rekstri félagsins og tekur fram að vendingarnar komi honum ekki á óvart. Tíminn muni leiða í ljós hvort að Play neyðist til að ráðast í uppsagnir. Gengi bréfa í félaginu hefur fallið um tuttugu prósent í dag.

„Play verður áfram íslenskt“
Flugfélagið Play mun ráðast í umfangsmiklar breytingar og dregur úr verulega úr tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma verður aukin áhersla sett á sólarlandaferðir. Vélum og starfsfólki á Íslandi mun fækka, og sótt um flugrekstrarleyfi erlendis.

Sækja um leyfi á Möltu
Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis.

Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga
Bandaríska ríkið hefur sektað flugfélagið Lufthansa um fjórar milljónir dala fyrir að hafa bannað gyðingum að ganga um borð í vél félagsins árið 2022 þar sem sumir þeirra neituðu að bera sóttvarnagrímu.

Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals
Icelandair og portúgalska þjóðarflugfélagið TAP hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug. Undirritunin fór fram á skrifstofum TAP á Lissabon flugvelli fyrr í dag.

Opið bréf til ríkis- og borgarstjórnar
Hvað með sjúkraflugið? Skortur á röddum landsbyggðar í mikilvægum innviðamálum.