Hafnar fyrirliðasæti í Ryder-bikarnum PGA lýsti því yfir í gær að Tiger Woods hafi hafnað þátttöku og fyrirliðasæti Ryder-liðs Bandaríkjanna fyrir Ryder-bikarinn milli úrvalsliða Bandaríkjanna og Evrópu sem fram fer á Írlandi á næsta ári. Woods er á leið í meðferð eftir bílslys í síðustu viku. Golf 2. apríl 2026 12:31
Fékk leyfi til að fara í meðferð utan Bandaríkjanna Tiger Woods hefur ákveðið að leita sér hjálpar og fengið formlegt leyfi fyrir því að sækja sér meðferðarúrræði utan Bandaríkjanna, sem hann gerir af ótta við trúnaðarbrest. Golf 1. apríl 2026 22:34
Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur neitað sök í ákærum á hendur honum í kjölfar handtöku á föstudaginn í síðustu viku. Golf 31. mars 2026 22:21
Ópíóðar í vasa Woods sem segist hafa verið í símanum Tiger Woods sagði bandarískum lögregluyfirvöldum að hann hafi verið í símanum og að skipta um útvarpsstöð sem olli því að hann lenti í bílslysi í síðustu viku. Ópíóðar fundust í vasa Woods. Golf 31. mars 2026 16:05
„Erum heppin að Tiger Woods hafi ekki drepið einhvern“ Álitsgjafinn Stephen A. Smith segir að fólk verði að hætta meðvirkninni með Tiger Woods og biðlar til hans að hætta að aka undir áhrifum. Hætt sé við að það endi illa. Golf 31. mars 2026 09:32
Fyrrverandi eiginkonan hefur áhyggjur af Tiger Elin Nordegren, fyrrverandi eiginkona Tigers Woods, hefur áhyggjur af kylfingnum eftir að hann var handtekinn fyrir að aka undir áhrifum. Golf 31. mars 2026 07:32
Talar hreint út um Tiger: „Líf hans er í algjörri óreiðu á þessum tímapunkti“ Paul McGinley, atvinnukylfingur og fyrrverandi fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-bikarnum á ekki von á því að Tiger Woods mæti til leiks á komandi Mastersmóti í golfi. Woods olli sínu fjórða bílslysi á ferlinum á dögunum og er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum. Golf 30. mars 2026 19:46
Vann fyrsta titilinn eftir aðgerð á heila: „Ég var ekki einn í dag“ Engum duldist hversu mikla þýðingu sigurinn á Houston Open hafði fyrir bandaríska kylfinginn Gary Woodland. Hann hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika undanfarin misseri. Golf 30. mars 2026 09:32
Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn. Golf 28. mars 2026 12:15
Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods hefur verið ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að bíll hans valt á Jupiter Island í Flórída í dag. Golf 27. mars 2026 21:34
Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt. Golf 27. mars 2026 19:47
Tiger fékk skell í endurkomunni en útilokar ekki þátttöku á Masters Eftir rúmlega árs fjarveru sneri Tiger Woods aftur á golfvöllinn í úrslitum TGL-deildarinnar í gær. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg fyrir Tiger. Golf 25. mars 2026 08:30
Tiger snýr aftur eftir þrettán mánaða fjarveru Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods spilar í dag keppnisgolf í fyrsta sinn í rúmt ár þegar hann keppir í úrslitum TGL-deildarinnar. Golf 24. mars 2026 14:32
Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Ungur áhorfandi lenti í slysi á Valspar-meistaramótinu á PGA-mótaröðinni í golfi um helgina. Ekið var yfir viðkomandi á golfbíl. Golf 23. mars 2026 12:30
Guðrún Brá náði þriðja sætinu í Suður-Afríku Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði jöfn í þriðja sæti á Platinum Ladies Open-mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag. Guðrún lék frábært golf í mótinu og spilaði hringina þrjá á fjórtán höggum undir pari. Golf 20. mars 2026 17:03
Guðrún Brá í góðri stöðu eftir einn besta hringinn á ferlinum Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék einn besta golfhringinn á sínum ferli í Suður-Afríku í dag og kom sér í góða stöðu fyrir lokadaginn á Platinum Ladies Open mótinu. Golf 19. mars 2026 16:52
Leitaði í uppskriftabók mömmu fyrir Masters Eitt af því sem Rory McIlroy græðir á því að hafa unnið Masters-mótið virta í golfi í fyrra er það að hann fær að ráða matseðlinum í sérstökum hátíðarkvöldverði í aðdraganda mótsins. Golf 19. mars 2026 09:30
Tiger Woods gefur ekkert upp ennþá Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods vill ekki gefa neitt upp um stöðu sína fyrir Masters-mótið í golfi í næsta mánuði. Golf 18. mars 2026 18:32
Sló í fugl en það dugði ekki til Austurríkismaðurinn Sepp Straka átti ansi slæma lokaholu á The Players mótinu í golfi í gær en minnstu munaði að afslappaður fugl á svæðinu tryggði honum 20-30 milljónir króna aukalega. Golf 16. mars 2026 08:03
Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players Eftir að hafa verið með þriggja högga forystu fyrir lokadag Players-meistaramótsins í golfi fór Ludvig Åberg illa að ráði sínu þegar allt var undir. Cameron Young nýtti sér mistök Svíans og tryggði sér sigurinn. Golf 15. mars 2026 22:50
Åberg leiðir með þremur höggum fyrir lokahring Players meistaramótsins Svíinn Ludvig Åberg leiðir Players meistaramótið í golfi með þremur höggum á TPC Sawgrass vellinum fyrir lokahring mótsins í dag. Golf 15. mars 2026 11:02
Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Tveir eru látnir eftir skotárás sem átti sér stað nærri TPC Sawgrass golfvellinum í gær þar sem Players meistaramótið í golfi fer nú fram Golf 14. mars 2026 18:02
Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Annar dagur Players meistaramótsins á Sawgrass vellinum í Flórída í Bandaríkjunum fór fram í dag. Vallarmet féll en ríkjandi meistarinn Rory McIlroy og efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, stóðu í ströngu. Golf 13. mars 2026 23:20
Hulda Clara best í lokin og grátlega nærri bráðabana Kylfingurinn Hulda Clara Gestsdóttir lék best allra á þriðja og síðasta hring golfmóts í Jóhannesarborg í Suður-Afríku sem lauk í dag. Hún var aðeins einu höggi frá því að fara í bráðabana um sigur á mótinu. Golf 13. mars 2026 15:15
Hætti keppni á Players-mótinu eftir aðeins eina holu Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa dró sig úr keppni á Players-meistaramótinu í golfi vegna bakmeiðsla. Golf 13. mars 2026 08:03
„Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Bandaríski atvinnukylfingurinn Gary Woodland hefur opinberað glímu sína við áfallastreituröskun. Golf 11. mars 2026 09:30
Gæti misst af titilvörninni Rory McIlroy neyddist til að draga sig úr keppni á Arnold Palmer-boðsmótinu í golfi um helgina vegna bakmeiðsla. Óvíst er með þátttöku hans á Players-móti helgarinnar. Golf 10. mars 2026 13:15
Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Áhugi á golfi virðist takmarkalaus með öllu. Golfforystan leggur allt í að draga alla og ömmu þeirra í golf og sú virðist nú raunin. Flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru hvellsprungnir, þar er uppselt, langir biðlistar hafa myndast og verðið fylgir eftirspurninni. Innlent 9. mars 2026 14:51
Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, hafði samband við Sorpu í gær og gekkst fúslega við því að hafa tekið golfkylfu úr nytjagámi Sorpu eins og fjallað var um á Vísi í fyrradag. Innlent 5. mars 2026 10:39
Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Ítalski kylfingurinn Andrea Pavan hefur verið útskrifaður af spítala, viku eftir að hann slasaðist alvarlega í furðulegu lyftuslysi. Golf 5. mars 2026 06:30