

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
ÍBV vann þriggja marka sigur á Aftureldingu í Olís-deild kvenna í kvöld, 31-28.
Grótta hafði ekki tapað í síðustu fimm leikjum sínum í Olís-deild karla í handbolta og með sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, í næstsíðustu umferðinni, hefði liðið átt góða möguleika á sæti í úrslitakeppninni.
Nýjar stórstjörnur virðast vera að fæðast í handboltanum. Þetta eru Costa-bræðurnir ungu frá Portúgal, Martim og Francisco. Þeir sýndu snilli sína í leik gegn Magdeburg í Evrópudeildinni í gær.
Mikið er undir fyrir næstsíðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta sem fer fram í kvöld. Valur og Haukar mætast í hálfgerðum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn og baráttan um sæti í úrslitakeppninni verður í algleymingi.
Danski landsliðsmarkvörðurinn Niklas Landin er á leiðinni til danska félagsins Aalborg Håndbold og komu félagsskiptin mikið á óvart ekki síst þar sem hann átti eftir þrjú ár af nýjum samningi sínum við Kiel.
Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram, snýr aftur í íslenska landsliðið sem mætir Svíþjóð og Serbíu í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM 2022.
Selfyssingurinn Ómar Ingi Magnússon var allt í öllu er Magdeburg tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld. Liðið vann dramatískan eins marks sigur á Sporting, 36-35, en Ómar kom með beinum hætti að 15 mörkum heimamanna.
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í danska liðinu GOG eru komnir í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handbolta eftir samanlagðan tveggja marka sigur gegn Bidasoa Irun í kvöld, 33-31. Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo féllu hins vegar úr leik eftir jafntefli gegn Wisla Plick frá Póllandi.
Viggó Kristjánsson meiddist í ökkla þegar íslenska landsliðið kom saman til æfinga hér á landi í síðasta mánuði en reiknar með því að geta látið til sín taka í landsleikjunum mikilvægu gegn Austurríki.
Sú sérstaka staða kom upp í viðureign KA/Þórs og HK í Olís-deild kvenna í handbolta að annar dómara leiksins dæmdi hjá systur sinni.
„Þeir höfðu vit fyrir dómurunum í 25 ár. Nú sitja þeir hinu megin við borðið,“ segir Guðjón Guðmundsson, Gaupi, um þá Vilhelm Gauta Bergsveinsson og Ólaf Víði Ólafsson sem í dag starfa sem handboltadómarar.
Fram fékk heldur betur búbót fyrir lokasprett tímabilsins þegar Steinunn Björnsdóttir sneri aftur á völlinn í stórsigri liðsins á Aftureldingu, 20-39.
Jóhanni Gunnari Einarssyni þykir leiðinlegt að sjá hvernig komið er fyrir Aftureldingu, hans gamla liði. Theodór Ingi Pálmason segir það skandal ef Mosfellingar komast ekki í úrslitakeppnina.
Haukur Þrastarson snýr aftur í íslenska handboltalandsliðið fyrir leikina gegn Austurríki í umspili um sæti á HM 2023.
Niklas Landin, fyrir danska landsliðsins og besti handboltamaður heims 2021, gengur í raðir danska meistaraliðsins Álaborgar frá Kiel eftir næsta tímabil.
Arri Freyr Þorkelsson, Aron Dagur Pálsson og félagar þeirra í Elverum eru enn með fullt hús stiga þegar aðeins ein umferð er eftir af norsku deildinni í handbolta, en liðið vann fimm marka sigur gegn Kristiansand fyrr í dag, 38-33.
Valur lagði Hauka að velli 28-26 eftir jafnan og spennandi leik liðanna í Olísdeild kvenna í handbolta í Origo-höllinni að Hlíðarenda í dag. Valsliðið hefur farið með sigur af hólmi í níu síðustu leikjum sínum í deild og bikarkeppni.
Íslendingar voru í eldlínunni í þrem af þeim fjórum leikjum sem fram fóru í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Lemgo tapaði afar óvænt með 12 mörkum gegn fallbaráttu liði Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 20-32.
FH og Fram skildu jöfn í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 24-24, en sú úrslit þýða að FH á ekki lengur möguleika á deildarmeistaratitlinum.
Ýmir Örn Gíslason og Teitur Örn Einarsson tóku eitt stig hvor með sér heim er Rhein-Neckar Löwen og Flensburg skildu jöfn í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 29-29.
Selfoss vann eins marks sigur á ÍBV 32-31. Selfoss er eina liðið sem hefur unnið ÍBV á árinu 2022 og það tvisvar.
Selfoss vann eins marks sigur 32-31 í spennutrylli. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var afar ánægður með sigurinn.
Tveir leikir voru á dagskrá í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Íslandsmeistarar KA/Þórs unnu þriggja marka sigur gegn HK, 26-23, og topplið Fram vann afar sannfærandi 18 marka sigur gegn botnliði Aftureldingar.
Íslendingaliðin tvö á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar unnu góða sigra í dag.
ÍBV vann fimm marka sigur á Stjörnunni í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 29-24.
Guðjón Guðmundsson tók KA fyrir í nýjasta Eina innslagi sínu í Seinni bylgjunni. Gaupi ræddi þá við Heimi Örn Árnason sem hefur spilað fyrir KA, þjálfað KA sem og stjórnað málunum utan vallar hjá KA í gegnum tíðina.
Haukarnir náðu að klára KA í kvöld með góðum endaspretti og Aron Kristjánsson þjálfari liðsins var ánægður með viljastyrj sinna manna.
Sebastian Alexandersson var allt annað en sáttur eftir tap HK á móti Stjörnunni í Olís deild karla í handbolta í kvöld. HK tapaði leiknum á endanum með sex mörkum, 27-21.
Haukar voru sterkari á lokakaflanum og unnu þriggja marka sigur á KA á Ásvöllum, 27-24, í Olís deild karla í handbolta í kvöld eftir að norðanmenn voru með frumkvæðið fram eftir leik og voru meðal annars 13-11 yfir í hálfleik.