Árangur Repúblikana skekur Demókrataflokkinn Demókratar hafa áhyggjur af því að niðurstöður ríkisstjórakosninga í Virginíu gefi til kynna að þingkosningarnar á næsta ári muni reynast flokknum erfiðar. Ríkisstjóri Virginíu, sem er Demókrati, tókst ekki að halda embættinu og það þrátt fyrir að Joe Biden, forseti, hafi sigrað Donald Trump með tíu prósentustigum í Virginíu í fyrra. Erlent 3. nóvember 2021 14:12
Allar líkur á óvæntum sigri Repúblikana í vígi Demókrata Repúblikaninn Glenn Youngkin verður að öllum líkindum næsti ríkisstjóri Virginíu í Bandaríkjunum en kosningar fóru fram í ríkinu í gær. Hann er tæpum þremur prósentum á undan frambjóðanda Demókrata þegar 95 prósent atkvæða hafa verið talin. Erlent 3. nóvember 2021 07:23
Biden gagnrýndi fjarveru leiðtoga Kína og Rússlands Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi leiðtoga Kína og Rússlands fyrir að láta ekki sjá sig á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í dag. Sakaði hann Kína um að snúa baki við vandamálinu og Rússland sömuleiðis. Erlent 2. nóvember 2021 23:09
Taka fyrir mál sem gæti bundið hendur Bidens í umhverfismálum Hæstiréttur Bandaríkjanna samþykkti í gær að taka fyrir mál sem gæti bundið hendur Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum. Einnig verður mál tekið fyrir sem gæti haft mikil áhrif á málefni innflytjenda í Bandaríkjunum. Erlent 30. október 2021 14:01
Áætlun Biden felur í sér stærstu fjárfestingu í loftslagsaðgerðum í sögu Bandaríkjanna Frumvarp sem Hvíta húsið kynnti í gær felur í sér stærstu fjárfestingu í endurnýjanlegum orkugjöfum í sögu Bandaríkjanna. Enn liggur þó ekki fyrir hvort að samstaða náist innan Demókrataflokkinn um frumvarpið. Erlent 29. október 2021 11:56
Biden sækir G20-fund og hittir páfann fyrir loftslagsráðstefnuna Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til Evrópu þar sem hann verður viðstaddur tvo fundi á næstu dögum. Forsetinn byrjar í Róm þar sem G20 ríkin hittast til að ræða skattamál og þá mun hann hitta Frans Páfa í Vatíkaninu en Biden er aðeins annar kaþólikkinn í sögu Bandaríkjanna sem sest á forsetastól. Erlent 29. október 2021 07:01
Frestar útgáfu Kennedy-skjalanna aftur Hvíta húsið tilkynnti á föstudaginn að skjöl sem snúa að morði John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, verði ekki opinberuð strax. Opinberuninni verði frestað vegna Covid-19 þar sem sérfræðingar þurfi meiri tíma til að fara yfir skjölin og tryggja að þau innihaldi engin leyndarmál. Erlent 25. október 2021 14:52
Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Erlent 20. október 2021 23:25
Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. Erlent 18. október 2021 23:31
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 16. október 2021 12:58
Vilja vindorkugarða við nær alla strandlengju Bandaríkjanna Ríkisstjórn Joes Biden vill láta reisa vindorkuver við nærri alla strandlengju Bandaríkjanna á næstu árum. Stefnt er að því að vindorkuframleiðendur geti byrjað að sækja um leyfi til að reisa vindtúrbínur fyrir utan ströndina fyrir árið 2025. Erlent 14. október 2021 10:39
Eygja samkomulag til að forðast efnahagslegar hörmungar Demókratar og repúblikanar á Bandaríkjaþingi færðust nær samkomulagi um tímabundna hækkun skuldaþaks ríkissjóðs. Bandaríkin gætu lent í sögulegu greiðsluþroti síðar í þessum mánuði sem er talið myndu hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér verði þakið ekki hækkað. Erlent 6. október 2021 23:55
Biden segir repúblikana í „rússneskri rúllettu“ með hagkerfið Repúblikanar á Bandaríkjaþingi bera ábyrgðina á því ef ríkissjóður Bandaríkjanna getur ekki staðið við skuldbindingar sínar síðar í þessum mánuði, að sögn Joes Biden Bandaríkjaforseta. Flokkarnir tveir deila enn hart um svonefnt skuldaþak sem verður að hækka ef Bandaríkin ætla ekki að lenda í sögulegum vanskilum. Erlent 4. október 2021 20:20
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Erlent 28. september 2021 13:07
Bandaríkin skrefinu nær vanskilum Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins felldu í gær frumvarp sem ætlað var að tryggja áframhaldandi rekstur Bandaríkjastjórnar og koma í veg fyrir vanskil ríkisins. Til stendur að reyna aftur að koma frumvarpinu í gegn í vikunni. Erlent 28. september 2021 11:04
Umdeild endurskoðun í Arizona staðfestir sigur Biden Sex mánaða löng og afar umdeild endurskoðun einkafyrirtækis á úrslitum bandarísku forsetakosninganna í Arizona sem repúblikanar létu fara fram sýndi að opinber úrslit voru rétt. Stofnað var til könnunarinnar vegna samsæriskenninga um að stórfelld svik hefðu kostað Donald Trump sigurinn í Arizona og fleiri ríkjum. Erlent 24. september 2021 09:00
Skera upp herör gegn öflugum gróðurhúsalofttegundum í kælibúnaði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um verulega hertar reglur um framleiðslu svonefndra vetnisflúorkolefna, öflugra gróðurhúsalofttegunda sem eru notaðar í ískápum og loftkælitækjum. Erlent 23. september 2021 15:41
Segir af sér vegna „ómannúðlegrar“ brottvísunar Biden-stjórnarinnar á Haítum Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar. Erlent 23. september 2021 14:11
Biden og Macron vilja byggja upp traust aftur Sendiherra Frakklands mun snúa aftur til Washington DC í næstu viku. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallaði sendiherrann heim eftir að Bandaríkjamenn, Ástralar og Bretar tilkynntu nýjan varnarsáttmála. Erlent 22. september 2021 18:35
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. Erlent 21. september 2021 14:52
Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé. Erlent 20. september 2021 14:55
Líkti bandarískum öfgamönnum við hryðjuverkamennina frá 2001 George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti ofbeldisfullum bandarískum öfgaöflum við hryðjuverkamennina sem gerðu árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 11. september 2001. Hann sagði að heimaræktaðir hryðjuverkamenn gætu ógnað Bandaríkjunum eins og erlendir hryðjuverkamenn. Erlent 12. september 2021 07:58
Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll. Erlent 11. september 2021 08:12
Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu. Erlent 9. september 2021 21:25
Dómsmálaráðuneytið fer í hart við Texas vegna „hjartsláttarlaganna“ Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt yfirvöldum í Texas-ríki Bandaríkjanna vegna umdeildra laga um þungunarrof sem nýlega tóku gildi í ríkinu. Ráðuneytið segir lögin vera andstæð stjórnarskrá Bandaríkjanna. Erlent 9. september 2021 20:31
Leynd verður aflétt af rannsóknargögnum FBI vegna hryðjuverkanna 11. september 2001 Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að leynd skuli aflétt af nær öllum rannsóknargögnum sem urðu til við upprunalega rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI á hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Erlent 4. september 2021 23:21
Biden ver ákvörðunina um að yfirgefa Afganistan Joe Biden Bandaríkjaforseti varði þá ákvörðun að kalla alla hermenn heim frá Afganistan í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Erlent 1. september 2021 07:37
„Við munum finna ykkur og láta ykkur gjalda“ Joe Biden Bandaríkjaforseti var harðorður í garð hryðjuverkasamtakanna ISIS-K, sem stóðu að baki mannskæðri sprengjuárás á flugvellinum í Kabúl í dag, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í kvöld. Erlent 26. ágúst 2021 23:02
Gripið til aðgerða til að flýta brottflutningi fólks Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir að gripið hafi verið til aðgerða til að flýta flutningi flóttafólks frá Afganistan og hafi bandarískar hersveitir útvíkkað öryggissvæði í kring um flugvöllinn í Kabúl í því augnamiði. Erlent 23. ágúst 2021 06:36
Íbúar Kabúl óttaslegnir Þótt Talibanar hafi gefið út almenna sakaruppgjöf í Afganistan og skorað á fólk að halda til vinnu eru margir íbúar höfuðborgarinnar Kabúl óttaslegnir og halda sig heima. Erlent 19. ágúst 2021 06:29
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent