Akur færir virði fisksalans Gadusar niður um nærri helming Akur fjárfestingarfélag færði niður eignarhlut sinn í belgíska fisksölufélaginu Gadus um 43 prósent milli ára. Árið 2020 var ríflega helmingshlutur í fyrirtækinu metinn á 2,3 milljarða en þemur árum síðar var virði hans yfir 800 milljónir í bókum félagsins sem er í eigu lífeyrissjóða, VÍS og Íslandsbanka. Innherji 12. júlí 2024 10:43
Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Greinandi segir horfur hjá Icelandair ekki endilega jafnslæmar og umræðan virðist benda til. Félagið hafi flutt fleiri farþega á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Framtíðarhorfur ráðist einfaldlega af fjölda ferðamanna hingað til lands. Viðskipti innlent 11. júlí 2024 14:56
Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný Verslun Krónunnar að Þjóðhildarstíg í Grafarholti hefur verið opnuð á ný eftir að hafa verið lokað í lok maí. Síðan þá hafa íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals þurft að leita út fyrir hverfið að matvöru. Viðskipti innlent 11. júlí 2024 11:47
Greinendur vænta þess að afkoma bankanna haldi áfram að versna Greinendur gera að jafnaði ráð fyrir því að hagnaður stóru viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast nokkuð saman milli ára á öðrum ársfjórðungi. Útlit er fyrir að hagnaður bankanna fyrir tekjuskatt dragist saman um 18 til 20 prósent en miðað við þær spár munu þeir ekki ná arðsemismarkmiðum sínum. Innherji 11. júlí 2024 07:54
Festi festi kaup á Lyfju Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna. Viðskipti innlent 10. júlí 2024 16:06
Fá tíu ár til að selja hlut sinn í grænlenskum útgerðum Grænlenska heimastjórnin samþykkti nýlega ný fiskveiðistjórnarlög sem munu knýja erlenda aðila sem eiga í þarlendum sjávarútvegsfyrirtækjum til að selja hlut sinn á næstu tíu árum. Þrjú íslensk félög eiga þriðjungshlut í útgerðum í Grænlandi, þar af tvö útgerðarfélög sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Innherji 9. júlí 2024 12:43
Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Icelandair flutti 514 þúsund farþega í júní, 1 prósent færri en í júní í fyrra. Þar af voru 31 prósent á leið til Íslands, 15 prósent frá Íslandi, 49 prósent voru tengifarþegar og 4 prósent ferðuðust innanlands. Eftirtektarverð breyting hefur orðið í skiptingu á milli markaða en tengifarþegum fjölgaði um 15 prósent í júní á meðan farþegum til landsins hefur fækkað á milli ára. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 17:47
Fleiri farþegar en minni sætanýting Íslenska flugfélagið Play flutti 173.109 farþega í júní 2024, sem er 7,5 prósent meira en í júní í fyrra þegar félagið flutti 160.979 farþega. Sætanýting dróst þó örlítið saman, hún var 86 prósent í júní 2024, en 87,2 prósent á sama tíma í fyrra. Forstjórinn kveðst ánægður að sjá vöxt í farþegatölunum, en hefði viljað sjá hærri sætanýtingu. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 17:24
Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur samið við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf. Viðskipti innlent 8. júlí 2024 08:29
Tveir af stærstu hluthöfunum seldu í Íslandsbanka fyrir vel á annan milljarð Tveir af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Íslandsbanka minnkuðu stöðu sína fyrir samanlagt vel á annan milljarð króna í liðnum mánuði þegar bankinn bauðst til að kaupa bréf hluthafa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi. Hlutabréfaverð bankans hefur rétt úr kútnum undanfarna daga en stjórnvöld áforma að ráðast í tugmilljarða sölu síðar á árinu í gegnum almennt útboð. Innherji 7. júlí 2024 12:24
Kostnaðaraðhald Heima er til „fyrirmyndar“ Kostnaðarstjórnun Heima er til „fyrirmyndar,“ að mati hlutabréfagreinanda sem verðmetur fasteignafélagið mun hærra en markaðsvirði. Tekjuspá félagsins hefur verið hækkuð og er nú miðað við efri mörk væntinga stjórnenda í ár en áður var reiknað með miðspá þeirra. Innherji 5. júlí 2024 11:21
Úr boltanum í tryggingarnar Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS. Hann kemur til félagsins frá KR þar sem hann hefur verið framkvæmdastjóri undanfarin þrjú ár. Viðskipti innlent 5. júlí 2024 10:49
Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Ölgerðin hefur ráðið Ernu Hrund Hermannsdóttur verkefnastýru útflutnings á virknidrykknum Collab og sölustjóra Collab á Norðurlöndunum. Ölgerðin reiknar með því að tapa þrjú hundruð milljónum króna á útflutningi Collab á árinu. Viðskipti innlent 5. júlí 2024 10:22
Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Námafyrirtækið Amaroq Minerals Ltd. hefur ráðið Ellert Arnarson sem fjármálastjóra félagsins og hann hefur störf í ágúst. Viðskipti innlent 5. júlí 2024 08:56
Stærstu einkafjárfestarnir selja sig út úr Festi fyrir nærri þrjá milljarða Tveir umsvifamestu einkafjárfestarnir í hluthafahópi Festi, sem rekur meðal annars eldsneytisstöðvar undir merkjum N1 og verslanir Krónunnar og Elko, hafa losað um allan eignarhlut sinn í smásölufyrirtækinu fyrir samtals nálægt þrjá milljarð króna. Salan kemur aðeins nokkrum mánuðum eftir að stórir lífeyrissjóðir beittu sér gegn því að fulltrúi einkafjárfestanna færi í stjórn fyrirtækisins. Innherji 4. júlí 2024 20:55
Hagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af aukinni útgáfu ríkisbréfa Aðalhagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af fjármögnun ríkissjóðs og það hafi því komið honum um „örlítið spánskt fyrir sjónir“ hvað markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu skarpt þegar ríkið upplýsti um 30 milljarða aukna útgáfu af ríkisbréfum. Hann telur „fjármögnunarbrekkuna“ framundan ekki líta út fyrir að vera óyfirstíganleg. Innherji 4. júlí 2024 15:44
Lokunaruppboð í Kauphöllinni Síðastliðinn föstudag var slegið met í Nasdaq kauphöllinni í New York. Metið sneri ekki að hlutabréfaverði eða þróun vísitalna heldur hafði aldrei áður annað eins magn viðskipta átt sér stað í svokölluðu lokunaruppboði á einum degi. Skoðun 4. júlí 2024 07:01
Ferðatryggingar og val á kreditkorti Stundum er ég spurð að því hvort ferðatryggingar kreditkorta séu ekki óþarfi þar sem margir eru með heimilistryggingar sem fela einnig í sér tryggingavernd á ferðalögum. Skoðun 3. júlí 2024 20:01
Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hafi brotið gegn ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Margvíslegar athugasemdir eru gerðar við starfshætti í tengslum við áhættumat bankans, áreiðanleikakannanir og rekjanleika í upplýsingakerfum. Viðskipti innlent 3. júlí 2024 18:11
Reitir hrista upp í skipuritinu Reitir fasteignafélag hefur innleitt nýtt skipurit sem felur í sér að tveir framkvæmdastjórar kveðja félagið og aðrir hækka í tign eða færa sig um set. Þá kemur liðsstyrkur frá HS Orku. Viðskipti innlent 3. júlí 2024 16:30
Marel mun greiða JP Morgan yfir þrjá milljarða vegna samruna við JBT Marel áætlar að félagið muni greiða bandaríska stórbankanum JP Morgan samtals ríflega þrjá milljarða króna í þóknun vegna fjármálaráðgjafar í tengslum við áformaðan samruna við JBT. Þá er ráðgert er að þrír núverandi íslenskir stjórnarmenn í Marel muni sitja í tíu manna stjórn sameinaðs félags. Innherji 3. júlí 2024 15:04
Samkeppni í nýju ljósi Eimskip hefur ráðið alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki, Portwise, til að útskýra fyrir þjóðinni að núverandi tvíkeppni í gámaflutningum um Sundahöfn er það allra besta sem til er. Framkvæmdastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins taka þátt í þessari krossferð, þar sem skrítnum rökum er beitt í nafni (frjálsrar) samkeppni. Skoðun 3. júlí 2024 10:00
Gefa út afkomuspá eftir allt saman Stjórn Sýnar hefur ákveðið að gefa út afkomuspá fyrir árið 2024 en ákveðið var samhliða útgáfu ársreiknings félagsins í febrúar að gera það ekki. Það var meðal vegna óvissu um framtíðareignarhald vefmiðla og útvarpsstöðva, sem nú hefur verið eytt. Spáin gerir ráð fyrir rekstrarhagnaði upp á um einn milljarð króna. Viðskipti innlent 3. júlí 2024 07:02
Íslandsbankahúsið rústir einar Íslandsbankahúsið á Kirkjusandi er rústir einar. Unnið hefur verið að niðurrifi hússins í rúma tvo mánuði. Innlent 2. júlí 2024 19:42
Karen Ýr ráðin gæðastjóri Karen Ýr Jóelsdóttir hefur tekið við starfi gæðastjóra Ölgerðarinnar og dótturfélaga þess. Hún tekur við starfinu af Guðna Þór Sigurjónssyni, sem nýverið var ráðinn forstöðumaður vaxtar og þróunardeildar félagsins. Viðskipti innlent 2. júlí 2024 09:58
Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Þá er ég loksins búinn að klára skiptin úr Arion banka í ríkisbankann Íslandsbanka og ég vill endilega hvetja fólk til þess að sniðganga Arion banka. Skoðun 2. júlí 2024 07:31
Aukin útgáfa ríkisbréfa kom markaðnum í „opna skjöldu“ sem taldi árið tryggt Fyrirhuguð aukin útgáfa á ríkisbréfum í ár kom markaðnum í „opna skjöldu“ og markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu því skarpt við tíðindin. Sjóðstjórar töldu að ríkið væri búið að fjármagna útgjöld vegna kjarasamninga og jarðhræringa á Reykjanesi að minnsta kosti fram á næsta ár. Spurningin „hver á að fjármagna ríkissjóð í þetta skiptið?“ veldur mörgum skuldabréfafjárfestum áhyggjum. Innherji 2. júlí 2024 06:31
Árið fór vel af stað hjá Högum og aðstæður fara batnandi Árið fór vel af stað hjá fyrirtækjum í samstæðu Haga með aukinni framlegð og bættri afkomu milli ára, að sögn forstjóra móðurfélagsins, sem nefndi að tekjur væru að aukast en verðbólga hefði í þeim efnum æ minni áhrif. „Stór skýring á bættri afkomu liggur í sterkari rekstri Olís á fjórðungnum.“ Innherji 1. júlí 2024 15:57
Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Alvotech reiknar með að heildartekjur annars ársfjórðungs verði á bilinu 196 til 201 milljón dala. Áætlaðar heildartekjur á fyrri helmingi ársins eru þá 233 til 238 milljónir dala sem eru um tífaldar tekjur sama tímabils í fyrra. Viðskipti innlent 1. júlí 2024 10:05
CAPE-hlutfall Úrvalsvísitölunnar lækkaði milli mánaða í júní Undanfarna mánuði hefur gildi CAPE, hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði, fikrað sig nær sögulegu meðaltali, að sögn hagfræðings. Umræðan 1. júlí 2024 07:42