

Kauphöllin
Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Fyrirtæki skila uppgjörum seint og illa
„Íslensk fyrirtæki hafa komist upp með það í mörg herrans ár að skila ársreikningum seint og illa. Það er til skammar," segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi.

Tyrkneskt vatn flutt inn í plastflöskum
„Þetta vakti forvitni mína því að ég hef aldrei skilið hvers vegna Íslendingar ættu að flytja inn vatn en mér finnst eiginlega liggja miklu beinna við að flytja það út," segir Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur í Borgarnesi. Hann keypti nýlega hálfs lítra vatnsflösku undir merkjum Pinar frá Tyrklandi í Krónunni í Mosfellsbæ.

Samdráttur í Japan
Stjórnvöld í Japan hafa fært efnahagsspá sína fyrir árið úr núlli í samdrátt upp á 3,3 prósent. Fjárlagaárið þar í landi hófst um mánaðamótin.

Skúli í Oz enn í símanum
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Oz, hefur tekið sæti í stjórn kanadíska tæknifyrirtækisins Airborne Technology Ventures ásamt því að fjárfesta í því fyrir hálfa milljón Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 65 milljóna króna að núvirði.

Íslendingar vinna gegn svínaflensunni
„Við erum á fullu að vinna í því að setja gáttina upp og fara að vinna gegn svínaflensunni í Mexíkó,“ segir Magnús Ingi Stefánsson, verkefnastjóri hjá TM Software, dótturfélagi Nýherja.

Símtöl dýrari eftir breytingar
Miðað við almennar verðskrár símafyrirtækja má gera ráð fyrir að dulin verðhækkun felist í breyttri gjaldtöku eftir lengd símtala. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) vekur athygli á þessu á vef sínum.

Sex málum hefur verið vísað til FME
Frá því lög um gjaldeyrishöft tóku gildi í lok nóvember síðastliðins hefur sex málum verið vísað til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) vegna gruns um brot á þeim.

Gera út frá Danmörku
„Flugfélagið er að vinna að því að tryggja sér flugrekstrarleyfi í Danmörku vegna þess að Ísland stendur utan Evrópusambandsins," segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Primera Air.

Smáralind vantar 5,3 milljarða
„Reksturinn er traustur og við höfum gert mikið til að styðja við bakið á verslunum hér,“ segir Helgi M. Magnússon, framkvæmdastjóri eignarhaldsfélags Smáralindar.

Frumtak fjárfestir í AGR
Frumtak hefur keypt hlut í birgðastýringarfyrirtækinu AGR - Aðgerðagreiningu fyrir hundrað milljónir króna. Þetta er önnur fjárfesting sjóðsins í sprotafyrirtæki á árinu. Ekki liggur fyrir hversu stór hluturinn er en hann er árangurstengdur. Hin fjárfesting Frumtaks fyrir jafn háa upphæð var í hugbúnaðarfyrirtækinu Trackwell í febrúar.

TellMeTwin vinnur Red Herring 100
Samskipta- og meðmælavefurinn TellMeTwin.com er vinningshafi Red Herring 100 í Evrópu, en viðskipta- og tækniritið Red Herring útnefnir árlega hundrað efnilegustu tæknifyrirtækin.

Bankar mega ekki lenda í höndum auðmanna
Það er ágæt hugmynd að selja bankana aftur. En það kann ekki góðri lukku að stýra að selja þá auðmönnum. Slíkt hefur ekki skilað góðum árangri í öðrum löndum, hvorki í Mexíkó né í Rússlandi fyrir áratug,“ segir David O. Beim, prófessor í hagfræði við Columbia-háskóla í New York í Bandaríkjunum.

Skilanefndir banka og kröfuhafar í uppnámi
„Með frumvarpi um slitameðferð fjármálafyrirtækja er verið að setja greiðslustöðvun þeirra í lögformlegt ferli byggt á gjaldþrotaskiptalögum. Við höfum fengið álit við það og umsagnir og skoðum málið þegar það kemur aftur til okkar eftir aðra umræðu á Alþingi," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Viðskiptanefndar Alþingis.

MP með mesta veltu
Fyrstu þrjá mánuði ársins var MP Banki með mesta markaðshlutdeild í viðskiptum með skuldabréf í Kauphöllinni, samkvæmt nýju yfirliti Nasdaq OMX Iceland. Markaðshlutdeild MP Banka var 24,4 prósent á tímabilinu. Í öðru sæti var Íslandsbanki með 21,29 prósenta hlutdeild og Straumur í því þriðja með 17,35 prósent.

Kreppan ekki látin fara til spillis
„Synd væri að láta kreppuna fara til spillis,“ segir Barbara Gordon, aðstoðarforstjóri sölusviðs Microsoft til fyrirtækja og samstarfsaðila (Enterprise & Partner Group, EMEA).

Vaxandi óþol gagnvart varkárni Seðlabankans
„Miðað við aðstæður á markaði og ástand efnahagslífsins eiga vextir að fara mjög hratt niður í eins stafs tölu,“ segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA).

Mikilvægt að halda höfuðstöðvum heima
„Þið verðið að ákveða hvaða leið þið viljið fara. Hagkerfi Finna hefur lengi verið opið fyrir fjárfestingu erlendra aðila,“ segir Ilkka Mytty, fjármálaráðgjafi í finnska fjármálaráðuneytinu.

Mannauður á krepputímum
Nú þegar efnisleg verðmæti fyrirtækja á Íslandi hafa gufað upp eins og dögg fyrir sólu er vert að hugsa til þess að það sem byggir upp framtíðarverðmæti liggur enn innan veggja fyrirtækisins – mannauðurinn. Núvirði slíkrar eignar er ekki hægt að færa til bókar né meta samkvæmt hefðbundnum, fjárhagslegum mælitækjum og hæfir stjórnendur vita að mannauðurinn er ekki jafn hverfull og efnislegar eignir.

Beðið er sprotafregna
„Áhættufjárfestingar eru mun þróaðri í Bandaríkjunum en í Evrópu. Evrópskir fjárfestar eru varfærnari en kollegar þeirra vestan hafs og fréttir af góðu gengi sprotafyrirtækja þar eru sömuleiðis mun fleiri en í Evrópu. Síðasta stóra jákvæða fréttin af sprotafyrirtæki í Evrópu var af kaupum eBay á Skype. En það var fyrir fjórum árum!“ segir Kimberly Romaine, aðalritstjóri breska fréttablaðsins Unquote. „Alltaf þegar jákvæðar fréttir berast úr ranni sprotafyrirtækja tekur fjárfestingamarkaðurinn við sér,“ segir hún.

Hverjum bjallan glymur
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, lokuðu fyrir viðskipti á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í Bandaríkjunum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi.

Á hverju er nú von?
Þegar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, lokaði Nasdaq-markaðnum minntist hann á gott gengi íslensks efnahagslífs, sem hann sagðist vilja að héldi áfram á sömu braut. Hann sagðist vona að nú sæi fram á betri tíma þegar ný löggjöf um aðgerðir gegn fjármálakreppunni færi í gegn á Bandaríkjaþingi til hagsbóta fyrir fyrirtæki í Bandaríkjunum og um allan heim.

Mikil viðbrögð við kaupum
Samkeppniseftirlitið hefur veitt MP Banka undanþágu frá samkeppnislögum vegna kaupa bankans á útibúaneti SPRON og Netbankanum, sem gera mun bankanum kleift að opna útibúin næstkomandi mánudag.

Eimskip tapar 6,6 milljörðum
Tap Eimskips á fyrsta ársfjórðungi nam 40,2 milljónum evra, eða tæpum 6,6 milljörðum króna miðað við gengi Seðlabankans í gær. Á sama tíma í fyrra nam tapið 38,9 milljónum evra.

Vatnið á Skotaleiknum
„Allt sem við gerum tengist Íslandi á einn eða annan hátt,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður átöppunarfyrirtækisins Icelandic Water Holdings. Fyrirtækið hefur keypt auglýsingu á leik Skota og Íslendinga í undankeppni fyrir HM 2010 sem fram fer á Hamden Park í Glasgow í Skotlandi í dag.

Verðmat á áætlun
Verðmat endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte Touche á efnahagsreikningi nýju bankanna er á áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Stefnt var að því að skila verðmatinu inn í síðasta lagi í gær.

Sprotarnir kynna sig
„Við erum ekki endilega að leita að fjármagni en erum opin fyrir því,“ segir Ásta Kristjánsdóttir, einn eigenda tískuvörumerkisins E-label.

Græða þrátt fyrir samdrátt í sölu
Bílaframleiðandinn Porche hefur tilkynnt um stórkostlega hagnaðaraukningu á mánuðunum sex fram til janúarloka. Aukningin er til komin vegna eignarhlutar fyrirtækisins í Volkswagen Group.

Verklagsreglum ýtt til hliðar eftir hryðjuverk
Áhugaleysi virtra erlendra fjármálafyrirtækja á fjárfestingum á Íslandi í einkavæðingarferli bankanna kemur ekki á óvart að mati Kaarlos Jännäris, finnska bankasérfræðingsins sem í byrjun vikunnar kynnti skýrslu um íslenskt fjármálaeftirlit.

Nýtt félag stofnað um víðtæka ráðgjöf
Capacent Glacier heitir nýtt ráðgjafarfyrirtæki með átján starfsmenn sem einbeitir sér að fjármálaráðgjöf hér innanlands og ráðgjöf á sviði sjávarútvegs og jarðvarma á erlendri grundu.

Rangri eða slæmri ráðgjöf fylgt
Kröfuhafar SPRON töldu stjórnvöld fylgja rangri eða gallaðri ráðgjöf í aðdraganda þess að Fjármálaeftirlitið (FME) greip inn í rekstur SPRON og Sparisjóðabankans um síðustu helgi.