Skoða enn hvort Samherji og Síldarvinnslan séu sama fyrirtækið Samkeppniseftirlitið hefur hafið athugun á því hvort samband Samherja og Síldarvinnslunnar sé svo náið að félögin jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta. Viðskipti innlent 28. febrúar 2024 11:30
Ótímabær birting innherjaupplýsinga Pólitísk samstaða náðist nýlega á vettvangi Evrópusambandsins um aðgerðir sem ætlað er að skjóta styrkari stoðum undir evrópska verðbréfamarkaði sem hafa átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við bandaríska markaði undanfarin ár. Umræðan 28. febrúar 2024 09:03
Sýnileikadagur FKA: „Mikið er hún góð þessi!“ „Ein sem ég þekki ákvað til dæmis eitt sinn að taka svolítið karlana á þetta, bjóða þeim í einn og einn golfhring. Og hvað gerðist? Jú, strax eftir fyrsta höggið var viðmótið öðruvísi og hún sá hvernig svipurinn á andlitinu á þeim breyttist í: Mikið er hún góð þessi!“segir Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir og hlær. Atvinnulíf 28. febrúar 2024 07:01
Lækkaði um átta prósent eftir mikla hækkun í gær Virði hlutabréfa í Alvotech lækkuðu um 7,76 prósent í dag. Velta dagsins var um 1,3 milljarðar króna. Verð hlutar í félaginu stendur nú í 2.260 krónum og á síðastliðnu ári hefur verðið hækkað um 42,6 prósent. Viðskipti innlent 27. febrúar 2024 20:01
Hagnaður Nova tók stökk Nova Klúbburinn hf. hagnaðist um 729 milljónir á síðasta ári og var það aukning um 35 prósent milli ára. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir þrettán milljarðar og jukust um þær um 2,8 prósent frá 2023. Viðskipti innlent 27. febrúar 2024 18:57
Tíðinda af hugsanlegri sölu miðla að vænta á vormánuðum Rekstrarhagnaður samstæðu Sýnar nam 3.544 milljónum króna árið 2023. Að teknu tilliti þriggja milljarða króna sölu á stofnneti félagsins og tiltekinna einskiptisliða og afskrifta tengdum rekstrarhagræðingu nam rekstrarhagnaður 1.945 milljónum króna. Viðskipti innlent 27. febrúar 2024 17:09
Forstjóri Alvotech væntir þess að stórir sölusamningar klárist „á næstu vikum“ Alvotech og samstarfsaðili þess í Bandaríkjunum, lyfjarisinn Teva, eru núna í „virkum viðræðum“ vegna stórra samninga um sölu á líftæknilyfjahliðstæðu íslenska fyrirtækisins við eitt mesta selda lyf í heimi, að sögn forstjóra félagsins, og ættu þær að klárast á næstu vikum. Eftir að samþykki fékkst um markaðsleyfi vestanhafs áformar Alvotech að auka umsvif sín í Vatnsmýrinni með því að efla framleiðslugetuna og fjölga enn frekar starfsfólki. Innherji 27. febrúar 2024 14:29
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. Innherji 26. febrúar 2024 17:58
Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26. febrúar 2024 17:07
Kristín kveður Sýn Sýn og Kristín Friðgeirsdóttir hafa gert samkomulag um að Kristín láti af störfum sem fjármálastjóri félagsins. Kristín hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2021. Viðskipti innlent 26. febrúar 2024 16:12
Ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka Halldór Þór Snæland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans. Viðskiptabankasviðið þjónustar viðskiptavini með almennri bankaþjónustu, fjölbreyttum fjártæknilausnum og í gegnum sérhæfð vörumerki og dótturfélög. Á meðal vörumerkja sem heyra undir viðskiptabankasviðið eru Auður, Aur, Lykill, Netgíró og Straumur. Viðskipti innlent 26. febrúar 2024 15:26
Verðmetur Play svipað og í yfirstandandi útboði Jakobsson Capital metur virði hlutafjár Play svipað og gert er í yfirstandandi hlutafjárútboði flugfélagsins. „Helsti munur á Play og Icelandair liggur í rekstrarstöðugleika og fjármögnunaráhættu,“ segir í nýju verðmati, en greinandi telur áætlanir félaganna um að vera með samanlagt yfir 60 flugvélar í rekstri innan fimm ára vera óraunhæfar. Innherji 26. febrúar 2024 13:24
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26. febrúar 2024 11:07
Tóku 23 milljarða tilboði í morgunsárið Alvotech gekk í morgun að tilboði frá hópi fagfjárfesta og viðurkenndra gagnaðila um sölu á 10.127.132 almennum hlutabréfum í félaginu að verðmæti um 22,8 milljarðar króna. Tilboðið er jafnvirði 166 milljóna dala miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands síðastliðinn fösudag á genginu 2.250 krónur á hlut, 16,41 dalir á hlut. Verð á bréfum í félaginu hækkaði um þrettán prósent eftir fyrstu viðskipti dagsins. Viðskipti innlent 26. febrúar 2024 09:31
Passar að eiginmannsefnið gangi ekki fram af fólki Nadine Guðrún Yaghi er landsmönnum að góðu kunn en hún starfaði sem fréttakona á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni um árabil. Í dag starfar hún sem forstöðumaður hjá Play ásamt því að stýra einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Eftirmálum, ásamt fjölmiðlakonunni Þórhildi Þorkelsdóttur. Lífið 26. febrúar 2024 07:00
Alvotech fær langþráð grænt ljós í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur veitt Alvotech leyfi til sölu og markaðssetningar í Bandaríkjunum á Simlandi (adalimumab-ryvk) sem líftæknilyfjahliðstæðu við Humira. Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 24. febrúar 2024 03:00
Milljarðatjón vegna umfjöllunar um jarðhræringar við Grindavík Forstjóri Play segir fréttir heimsfjölmiðla af umbrotunum í Grindavík fyrr í vetur hafa valdið íslenskri ferðaþjónustu milljarðatjóni. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að líta í eigin barm um hvað megi gera betur. Viðskipti innlent 23. febrúar 2024 22:18
Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23. febrúar 2024 12:16
Vill heimild til að selja Íslandsbanka í útboði með áherslu á almenning Drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði og að sala til einstaklinga hafi forgang. Viðskipti innlent 22. febrúar 2024 16:59
Síðasta vonin gæti verið Húnaflóatorfa Eftir árangurslausar tilraunir til að finna loðnuna hefur verið ákveðið að efna til nýs leitarleiðangurs í von um að afstýra loðnubresti. Skammur tími er til stefnu áður en loðnan drepst og verður lagt í hann strax á morgun. Viðskipti innlent 21. febrúar 2024 20:40
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21. febrúar 2024 17:34
Tóku þátt í leit að tveimur skipverjum en án árangurs Að morgni þriðjudagsins 7. febrúar síðastliðnum fékk færeyska línuskipið Kambur á sig brotsjó suður af Suðurey í Færeyjum og lagðist á hliðina. Á skipinu var 16 manna áhöfn, 14 komust upp á skipið þar sem það flaut á hliðinni og var þeim bjargað um borð í þyrlu. Tveggja var hins vegar saknað. Innlent 21. febrúar 2024 16:21
Töskugjöldin hjá Icelandair og Play hækka Töskugjöld hjá íslensku flugfélögunum hafa hækkað nokkuð undanfarin tvö ár. Töskugjaldið hjá Play er komið upp í 6.715 krónur fyrir aðra leið á meðan töskugjald með ódýrasta fargjaldi Icelandair er komið í 6.600 krónur. Neytendur 21. febrúar 2024 10:15
Hagnaður Símans dróst saman um tæpan þriðjung milli ára Rekstarhagnaður Símans var 2.079 milljónir króna árið 2023 samanborið við 2.945 milljónir króna árið 2022. Viðskipti innlent 20. febrúar 2024 22:38
Forstjóri Play segir gott að fá sterka traustsyfirlýsingu Forstjóri Play segir stærstu hluthafa flugfélagsins hafa sent traustsyfirlýsingu með vilyrðum um 2,6 milljarða króna nýtt hlutafé. Hann segir að þótt umræðan um fjárhagsstöðuna hafi verið óþægileg hafi hún hvorki skaðað félagið né komið niður á bókunum. Viðskipti innlent 20. febrúar 2024 21:21
„Það hefur nákvæmlega enginn komið að máli við mig“ Magnús Ragnarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir góðan tímapunkt að hætta núna eftir tíu ár í starfi og gott að hætta á eigin forsendum. Þá segir hann engan hafa komið að máli við hann varðandi neitt framboð. Viðskipti innlent 20. febrúar 2024 17:56
Magnús hættur hjá Símanum Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Símanum. Magnús hefur setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Viðskipti innlent 20. febrúar 2024 16:52
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20. febrúar 2024 16:13
Síminn greiðir Sýn sautján milljónir í bætur Síminn þarf að greiða Sýn á sautjándu milljón króna í bætur vegna brots á fjölmiðlalögum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Viðskipti innlent 20. febrúar 2024 13:22
Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20. febrúar 2024 13:00