Hluthafar Íslandsbanka koma úr ólíkum áttum Björn Bragi Arnarson, sjónvarpsmaður og grínisti, er á meðal þeirra fjárfesta sem fengu boð um að kaupa í Íslandsbanka. Björn Bragi keypti fyrir sautján og hálfa milljón króna í Íslandsbanka í gegnum félag sitt Bananalýðveldið. Hann er einn af fjölmörgum sem keyptu hlut í bankanum í nýafstöðunu útboði. Viðskipti innlent 7. apríl 2022 10:06
Ásgeir nýr forstjóri SKEL og Iða Brá tekur við sem aðstoðarbankastjóri Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason lætur af störfum sem aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion banka og tekur við sem nýr forstjóri SKEL fjárfestingarfélags, sem áður hét Skeljungur. Viðskipti innlent 7. apríl 2022 09:25
Stjórnendakapall í Kauphöllinni: Ásgeir og Magnús taka við stjórn SKEL Fjárfestingafélagið SKEL hefur ráðið Ásgeir Helga Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóra Arion banka, í starf forstjóra og Magnús Inga Einarsson, framkvæmdastjóra bankasviðs Kviku banka, í starf fjármálastjóra félagsins. Þetta kemur fram í tilkynning fjárfestingafélagsins til Kauphallarinnar. Innherji 7. apríl 2022 09:18
Fjarskiptastofa herðir tökin fyrir söluna á Mílu Fjarskiptastofa hefur að undanförnu leitast við að setja meiri kvaðir á Símasamstæðuna þrátt fyrir að salan á Mílu sé langt á veg komin og þrátt fyrir að markaðshlutdeild samstæðunnar hafi farið minnkandi á síðustu árum. Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir óviðunandi að Fjarskiptastofa vinni út frá úreltum forsendum um markaðsstyrk samstæðunnar. Stofnunin sé föst í fortíðinni. Innherji 6. apríl 2022 06:00
Umsækjendur látnir byggja flugvél með legókubbum undir dúndrandi tónlist Hátt í fimm þúsund manns sóttust eftir því að verða flugmenn og flugliðar hjá flugfélaginu Play, þegar auglýst var eftir umsóknum fyrr á þessu ári. Umsækjendur voru látnir byggja flugvél með legókubbum með háværa tónlist í eyrunum og spurðir í hvaða hljómsveit forstjórinn hefði spilað á trommur. Innlent 5. apríl 2022 20:01
Ný flokkun hjá FTSE skilar fjölbreyttari flóru og ýtir undir skráningar „Það hefur sárvantað fjölbreytni í fjárfestaflóruna. Við höfum náð árangri þegar kemur að innlendum einstaklingum en erlenda innflæðið hefur ekki verið eins mikið og maður hefði viljað. Með breiðari flóru styrkist verðmyndun og við fáum betri markað,“ segir Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar. Innherji 5. apríl 2022 14:01
Munu fljúga til Liverpool og Genfar næsta vetur Flugfélagið Play hyggst fljúga til Liverpool í Englandi og Genf í Sviss næsta vetur. Flogið verður tvisvar í viku til beggja áfangastaðanna. Viðskipti innlent 5. apríl 2022 08:04
Íslensk félög í sigti margfalt stærri fjárfesta eftir nýja flokkun hjá FTSE Flokkun Íslands sem nýmarkaðsríki hjá FTSE Russell laðar tugi milljarða króna af erlendu fjármagni að íslenska hlutabréfamarkaðinum og eykur sýnileika markaðarins á erlendri grundu. Tímasetningin er hagstæð í ljósi þess að innflæði kemur á sama tíma og innlendir fjárfestar beina fjármagni, sem þeir hafa fengið útgreitt í formi arðs á síðustu vikum eða tekið frá fyrir hlutafjárútboð Íslandsbanka, aftur inn á markaðinn. Þetta segja viðmælendur Innherja á fjármálamarkaði. Innherji 5. apríl 2022 07:00
Lífeyrissjóðir minnka enn við sig í Skel en sjóðir Stefnis kaupa fyrir 700 milljónir Íslensku lífeyrissjóðirnir halda áfram að losa um stóran hluta bréfa sinna í Skel fjárfestingafélagi, sem áður hét Skeljungur, en Gildi og Lífsverk seldu samanlagt um þriggja prósenta eignarhlut í fyrirtækinu í síðasta mánuði. Á sama tíma komu tveir hlutabréfasjóðir í stýringu Stefnis nýir inn í hlutahafahóp Skel með kaupum á tæplega 2,2 prósenta hlut sem má ætla að þeir hafi greitt tæplega 700 milljónir fyrir. Innherji 4. apríl 2022 18:21
SKEL, Stálskip og BYGG meðal stórra fjárfesta í útboði Íslandsbanka Í hópi þeirra 140 einkafjárfesta sem tóku þátt í útboði ríkissjóðs á stórum hlut í Íslandsbanka og keyptu hvað mest, eða fyrir á bilinu um 200 til 500 milljónir hvor um sig, voru meðal annars Ólafur D. Torfason, aðaleigandi Íslandshótela, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG), fjárfestingafélagið Stálskip, útgerðarfélagið Jakob Valgeir, Hannes Hilmarsson, stjórnarformaður Air Atlanta, og eignarhaldsfélagið Kadúseus sem er í meirihlutaeigu Sveins Valfells. Innherji 4. apríl 2022 06:00
Hagnaður Íslandssjóða meira en tvöfaldaðist og nam yfir einum milljarði Sjóðastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir skilaði hagnaði upp á 1.028 milljónir króna á árinu 2021 og jókst hann um 113 prósent á milli ára. Samtals námu eignir í stýringu Íslandssjóða, sem er í eigu Íslandsbanka, 410 milljörðum króna í árslok 2021 og hækkuðu þær um rúmlega 60 milljarða í fyrra. Innherji 3. apríl 2022 13:33
Ísland fært upp um flokk hjá FTSE, „gríðarlega stór tímamót“ fyrir markaðinn Alþjóðlega vísitölufyrirtækið FTSE Russell ákvað í gær að færa íslenska hlutabréfamarkaðinn upp í flokk nýmarkaðsríkja (e. Secondary Emerging Markets) og tekur sú breyting gildi við opnun markaða 19. september á þessu ári. Uppærslan mun greiða fyrir innflæði „verulegs fjármagns“ inn í íslenskt efnahagslíf sem getur stutt við fjármögnunarmöguleika skráðra félaga, að sögn Kauphallarinnar. Innherji 2. apríl 2022 11:23
Lífeyrissjóðir keyptu fyrir 20 milljarða, einkafjárfestar með þriðjung útboðsins Íslenskir lífeyrissjóðir fengu úthlutað meira en þriðjung þeirra eignarhluta í Íslandsbanka sem ríkissjóður seldi í hlutafjárútboðinu sem kláraðist í síðustu viku. Samtals keyptu 23 lífeyrissjóðir, sem áttu fyrir útboðið samanlagt um 16 prósenta hlut í bankanum, fyrir 19,5 milljarða króna, eða sem jafngildir liðlega 8,5 prósenta eignarhlut. Innherji 1. apríl 2022 12:17
Bóksal selur í skráðum félögum til að minnka áhættu og skuldsetningu Fjárfestingafélagið Bóksal, sem er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og hefur verið afar umsvifamikið á hlutabréfamarkaði undanfarin misseri, seldi í liðnum mánuði hluta bréfa sinna í Icelandair, Arion banka og Kviku banka þar sem það hefur um nokkurt skeið verið á meðal stærstu hluthafa. Innherji 31. mars 2022 11:31
Verðmetur Alvotech á 540 milljarða skömmu fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknifyrirtækisins Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi, er metið á um 90 prósent hærra gengi í nýju verðmati miðað við þann verðmiða sem var sett á félagið þegar það lauk um 60 milljarða króna fjármögnun undir lok síðasta ár. Innherji 30. mars 2022 10:07
Íslandssjóðir keyptu fyrir um 1.400 milljónir í útboði Íslandsbanka Sjóðastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir er á meðal tíu stærstu hluthafa Íslandsbanka eftir að sala ríkissjóðs á hlutum í bankanum kláraðist í síðustu viku og nemur hlutur þess nú 1,55 prósentum. Íslandssjóðir, sem er dótturfélag Íslandsbanka, átti undir eins prósenta hlut þegar útboðið hófst en í lok árs stóð hann í 0,94 prósentum. Innherji 29. mars 2022 09:53
Hagnaður Stefnis tvöfaldast og var yfir 1.600 milljónir Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir skilaði hagnaði upp á 1.618 milljónir króna á árinu 2021, sem einkenndist af verðhækkunum í Kauphöllinni og aukinni ásókn almennings í hlutabréfafjárfestingar, og jókst hann um 93 prósent frá fyrra ári. Eignir í virkri stýringu Stefnis, sem er í eigu Arion banka, jukust um 58 milljarða og námu 288 milljörðum í árslok. Innherji 28. mars 2022 17:00
Breyttir tímar hjá byggingarvörurisa Húsasmiðjan opnaði nýja verslun og þjónustumiðstöð við Freyjunes á Akureyri nýverið, en lokaði verslunum sínum á Dalvík og á Húsavík. Innherji 28. mars 2022 15:00
Fótboltakempa ráðin sölustjóri gæðalausna Origo Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sölustjóri gæða- og innkaupalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo og verður hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar. Viðskipti innlent 28. mars 2022 13:59
Fjórir lífeyrissjóðir meðal sex stærstu hluthafa Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group er ekki lengur annar stærsti hluthafi Íslandsbanka heldur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins með 5,23 prósenta hlut. Áætlað er að Bankasýsla ríkisins birti uppgjör á útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka í dag. Viðskipti innlent 28. mars 2022 13:00
Fjárfestar minnka lítillega við sig í hlutabréfasjóðum í skugga stríðsátaka Innlausnir fjárfesta í innlendum hlutabréfasjóðum voru rúmlega 840 milljónum krónum meiri en sem nam fjárfestingum þeirra í slíkum sjóðum í febrúar. Þetta er í fyrsta sinn frá því þegar faraldurinn stóð hvað hæst á fyrri hluta ársins 2020 sem merkja má útflæði úr hlutabréfasjóðum en markaðir, bæði hér heima og erlendis, einkenndust af mikilli óvissu í liðnum mánuði vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Innherji 28. mars 2022 11:21
Áhættan af sambandsrofi við kerfi Nasdaq innan „ásættanlegra marka“ Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að áhættan af því að samband rofni við verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq, sem geymir nær öll íslensk verðbréf og er hýst í gagnaverum í Svíþjóð, sé innan „ásættanlegra marka“ eins og staðan er í dag. Ef stríðið í Úkraínu breiðist út gæti Seðlabankinn hins vegar þurft að endurmeta stöðuna. Innherji 28. mars 2022 08:51
Óábyrgt að bregðast ekki við hækkandi olíuverði, segir forstjóri PLAY Forstjóri PLAY segir óhjákvæmilegt að sérstakt eldsneytisálag sé greitt ofan á farmiða félagsins, líkt og tilkynnt var um í síðustu viku. Innherji 28. mars 2022 07:01
Icelandair hækkar farmiðaverð 1. apríl Sérstakt eldsneytisálag, sem er hluti af farmiðaverði Icelandair, verður hækkað frá og með 1. apríl. Hækkar það úr 5.100 krónum í 6.900 krónur þegar flogið er til Evrópu og úr 8.900 í 12.300 krónur fyrir þegar flogið er til áfangastaða í Norður-Ameríku. Neytendur 25. mars 2022 14:49
Aðfangaverð flækist fyrir uppbyggingu húsnæðis, stálvirki upp um 65 prósent Miklar hækkanir á aðfangaverði munu hækka byggingarkostnað almennt, þar með talið á íbúðahúsnæði, og líklega leiða af sér tafir í uppbyggingu. Jafnframt gætu þær fælt verktaka frá þátttöku í útboðum. Þetta segir Þorvaldur H. Gissurarson, eigandi og forstjóri ÞG Verks. Innherji 25. mars 2022 12:45
Keldan setur nýja og uppfærða útgáfu í loftið Upplýsinga- og fréttaveitan Keldan setti nýja og uppfærða útgáfu í loftið í dag sem miðar að því að bæta notendaupplifun og virkni í farsímum og spjaldtölvum. Innherji 24. mars 2022 12:17
Tilboð frá 430 fjárfestum og minni afsláttur en í samskonar útboðum Meginþorri verðbréfasjóða, fjársterkra einstaklinga og tryggingafélög, sem voru metnir langtímafjárfestar af hálfu Bankasýslunnar, fengu úthlutað bréfum í Íslandsbanka sem nam yfir 40 prósentum af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í lokuðu útboði til fagfjárfesta sem lauk í gærkvöldi þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut fyrir 53 milljarða. Innherji 23. mars 2022 20:15
Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum. Viðskipti innlent 23. mars 2022 12:02
Ríkið felldi tillögu um að jafnræði sé tryggt við endurkaup á Íslandsbankabréfum Stór hópur hluthafa í Íslandsbanka, annarra en Bankasýslunnar sem heldur utan um 65 prósenta hlut ríkissjóðs, lagðist gegn því að stjórn bankans fengi heimild til kaupa á eigin hlutum sem opnar á að félagið geti gert einstökum hluthöfum, eins og til dæmis íslenska ríkinu, tilboð um kaup á bréfum þeirra án þess að aðrir hluthafar hafi möguleika á þátttöku í slíkum endurkaupum. Innherji 22. mars 2022 16:00
Nýsköpunarfyrirtækið Curio metið á fjóra milljarða við kaup Marels í fyrra Marel greiddi 408 milljónir króna þegar félagið bætti við sig um 10,7 prósenta hlut í íslenska hátæknifyrirtækinu Curio, sem framleiðir fiskvinnsluvélar, í byrjun síðasta árs en eftir þau kaup fór Marel með helmingshlut. Miðað kaupverðið á þeim hlut var Curio því verðmetið á samtals rúmlega 3,8 milljarða króna í viðskiptunum. Innherji 21. mars 2022 18:03