

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Misjafnt gengi Íslendinganna í Evrópu
Það var nóg um að vera hjá landsliðsmönnum Íslands í körfubolta í kvöld. Þeir Martin Hermannsson, Tryggvi Snær Hlinason og Elvar Már Friðriksson kepptu allir með liðum sínum í Evrópu.

Lakers mun spila heimaleiki sína í Rafmyntar-höllinni
Hin goðsagnarkennda Staples Center, þar sem Los Angeles Lakers og Clippers, hafa leikið heimaleiki sína í NBA-deildinni fær nýtt nafn um jólin. Mun höllin bera heitið Crypto.com Arena.

ÍR fær liðsstyrk frá Króatíu
Króatinn Igor Marić hefur samið við ÍR og mun leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta út þetta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild ÍR.

Staples Center í Los Angeles fær nýtt nafn
Nafni íþróttahallarinnar Staples Center í Los Angeles í Bandaríkjunum verður breytt á jóladag í Crypto.com Arena.

Curry glansaði í stórleiknum á meðan Durant átti sinn versta leik í vetur
Stephen Curry skoraði 37 stig þegar Golden State Warriors vann öruggan sigur á Brooklyn Nets, 99-117, í stórleik næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta.

AD rekinn út úr húsi þegar hann var að reyna að klæða sig aftur í skóinn
Það gengur flest á afturfótunum þessa dagana hjá Los Angeles Lakers liðinu í NBA-deildinni í körfubolta og enn eitt dæmið um það var í tapleik á móti Chicago Bulls í nótt.

Valin í WNBA nýliðavalinu í apríl en er nú komin í Breiðablik
Kvennalið Breiðabliks hefur samið við nýjan bandarískan leikmann en Micaela Kelly mun leysa af Chelsey Shumpert.

Nautin ráku hornin í Lakers
Chicago Bulls vann öruggan sigur á Los Angeles Lakers, 103-121, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Meira en eitt heilt ár á milli leikja íslenska kvennalandsliðsins í riðlinum
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði í gær á móti Ungverjalandi í undankeppni EM og hefur nú leikið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum. Það er aftur á móti mjög langt í næsta leik hjá íslensku stelpunum.

Bragi skiptir í Hauka eins og faðir sinn, móðir og bróðir forðum
Grindvíkingurinn Bragi Guðmundsson verður ekki meira með Grindvíkingum í Subway-deild karla í körfubolta því hann hefur skipt í 1. deildarlið Hauka.

Býflugurnar stungu Curry og félaga
Charlotte Hornets varð í nótt aðeins annað liðið til að vinna Golden State Warriors í NBA-deildinni á tímabilinu. Lokatölur í leik liðanna í Charlotte, 106-102.

Stórleikur Davis sá til þess að Lakers fór með sigur af hólmi
Fyrsti leikur kvöldsins í NBA-deildinni í körfubolta var léttur spennutryllir. Los Angeles Lakers vann átta stiga sigur á San Antonio Spurs, lokatölur 114-106. Lakers var nálægt því að missa leikinn frá sér en stórar körfur undir lok leiks tryggðu sigurinn.

„Ég kvíði ekki fyrir framtíðinni.“
Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, var óánægður með 57 stiga tap gegn Ungverjum á heimavelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Ungverjaland 58-115 | Íslenska liðið sá aldrei til sólar
Ísland mátti þola stórt tap gegn Ungverjalandi í fyrsta heimaleik sínum í undankeppni EM 2023 í körfubolta kvenna í kvöld. Liðið stóð í Rúmeníu í Búkarest á fimmtudaginn var en mátti þola stórt tap í kvöld, lokatölur 58-115.

Slæmur þriðji leikhluti varð Jóni Axeli og félögum að falli
Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Fortitudo Bologna þurftu að sætta sig við 14 stiga tap er liðið tók á móti Venezia í ítalska körfuboltanum í dag, 77-91.

Breytt dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á dagskrá Stöðvar 2 Sports í kvöld þar sem að viðureign Portúgals og Serbíu í undankeppni HM 2022 var bætt við dagskrána.

Reif niður frákast númer tvö þúsund í sigri Tindastóls á Vestra
Miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson tók átta fráköst í sigri Tindastóls á Vestra í Subway-deild karla í körfubolta á dögunum. Þar með hefur hann tekið 2004 fráköst í efstu deild hér á landi.

Gott gengi Wizards heldur áfram
Washington Wizards halda áfram að gera góða hluti í NBA-deildinni í körfubolta en alls fóru fram sex leikir í nótt.

Framlengingin: Hvaða lið verður á toppnum eftir fyrri umferðina?
Hinn sívinsæli liður, Framlengingin, var á sínum stað í Subway Körfuboltakvöldi á föstudagskvöldið. Sérfræðingar þáttarins, Jón Halldór Eðvaldsson og Sævar Sævarsson þurftu meðal annars að spá fyrir um hvað lið yrði á toppnum eftir fyrri umferðina í Subway deildinni.

Ísland mætir Ungverjalandi á Ásvöllum á morgun | Ekki krafist hraðprófs
Það er frítt inn á leik íslenska kvennalandsliðsins á morgun gegn Ungverjalandi í undankeppni EuroBasket 2023. Leikurinn fer fram í Ólafssal á Ásvöllum. Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, birti þetta á svæði sínu á facebook í dag.

Tryggvi öflugur í tapi Zaragoza
Casademont Zaragoza, sem Tryggvi Hlinason leikur með, tapaði í jöfnum leik gegn Joventut Badalona í spænsku úrvalsdeildinni í dag, 84-78.

Körfuboltakvöld um Þóri: „Fáir íslenskir leikmenn með sama vopnabúr“ | „Eins og hálfgerð ofurhetja“
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, eða Tóti Túrbó eins og hann er betur þekktur sem vestur í bæ, fór mikinn er KR lagði Stjörnuna í framlengdum leik í Subway-deild karla í körfubolta í gærkvöld.

Bucks tapaði, Warriors óstöðvandi, Lakers ömurlegt og Evrópumenn í þrennuham
Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem alls fóru fram 11 leikir.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 98-90 | KR-ingar unnu í framlengingu
KR tók á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn var hin mesta skemmtun. KR leiddi í fyrri hálfleik, Stjarnan í þeim síðari en að lokum voru það KR-ingar sem unnu leikinn með átta stiga mun eftir framlengingu, 98-90.

Helgi Már Magnússon: Þetta er bara risastór sigur fyrir okkur
KR vann dramatískan sigur á Stjörnunni er liðin mættust á Meistaravöllum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. KR leiddi í fyrri hálfleik, Stjarnan í þeim síðari en að lokum voru það KR-ingar sem unnu leikinn með átta stiga mun eftir framlengingu, 98-90. Helgi Már, þjálfari KR, var virkilega ánægður með sigurinn í leikslok.

„Þetta ferli kenndi mér að láta vaða“
„Erum við ekki flest rithöfundar inn við beinið?“ segir fjölmiðlamaðurinn og körfuboltaþjálfarinn Kjartan Atli Kjartansson sem var að gefa út sína fyrstu barna- og unglingabók, Saman í liði.

Töpuðu naumlega annað kvöldið í röð í Staples Center
Los Angeles Clippers hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt eftir sigur á liði Miami Heat í æsispennandi leik.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍR 92-79 | Sterkur heimasigur á Hlíðarenda
Valur fékk ÍR í heimsókn á Hlíðarenda í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR-ingar frumsýndu nýjan þjálfara því hinn margreyndi Friðrik Ingi Rúnarsson tók að sjálfsögðu við liðinu í vikunni. Heimamenn fóru rólega af stað en tóku fljótt yfir leikinn. Að lokum vann Valur 13 stiga sigur, 92-79. Valsmenn með sinn þriðja deildarsigur í röð.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Vestri 92-81 | Góð byrjun gestanna dugði ekki til
Tindastóll fékk Vestra í heimsókn í Síkið í kvöld. Vestri byrjaði leikinn mun betur en Tindastóll komu sér aftur inn í leikinn og sigruðu að lokum. Lokatölur 92 – 81.

Finnur Freyr: Við eigum ennþá mörg vopn inni sem við getum nýtt betur
Valur fékk ÍR í heimsókn á Hlíðarenda í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Heimamenn fóru rólega af stað en tóku fljótt yfir leikinn. Að lokum vann Valur 13 stiga sigur, 92-79, og Finnur Freyr, þjálfari Vals, var að vonum sáttur í leikslok.