City að vinna United í slagnum um Anderson Enski miðjumaðurinn Elliot Anderson er í sigti beggja Manchester-félaganna en Manchester City er fremst í kapphlaupinu um þennan 23 ára gamla leikmann Nottingham Forest. Enski boltinn 26.5.2026 17:38
Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Eftir að hafa verið orðuð við brottför til Chelsea tilkynnti markadrottningin Khadija Shaw um nýjan samning sinn við Manchester City í miðri skrúðgöngu liðsins. Hún verður áfram hjá Englandsmeisturunum, sem launahæsta knattspyrnukona heims. Fótbolti 26.5.2026 09:03
Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær. Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár, nýliðar eru á leið í Evrópu og þekkt lið á leiðinni niður. Deildin kveður goðsagnir í lifanda lífi. Enski boltinn 25.5.2026 10:31
Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Enski boltinn 20.5.2026 07:03
Arsenal er Englandsmeistari Arsenal er Englandsmeistari í fótbolta tímabilið 2025/2026. Þetta varð ljóst eftir jafntefli Manchester City gegn Bournemouth á útivelli í kvöld. Um fyrsta Englandsmeistaratitil Arsenal er að ræða síðan árið 2004, sá fjórtándi í röðinni og sá fyrsti undir stjórn Mikel Arteta. Tuttugu og tveggja ára bið á enda. Enski boltinn 19. maí 2026 20:24
Segja Maresca taka við af Guardiola Enzo Maresca er sagður taka við þjálfarastöðu Manchester City af Pep Guardiola. Fótbolti 19. maí 2026 10:00
Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Arsenal er einu skrefi frá Englandsmeistaratitlinum eftir 1-0 sigur gegn Burnley í kvöld. Allt annað en sigur Manchester City á morgun tryggir Arsenal titilinn en ef ekki mun sigur í lokaumferðinni gegn Crystal Palace gulltryggja titilinn. Enski boltinn 18. maí 2026 20:56
Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Breski miðillinn Daily Mail heldur því fullum fetum fram í kvöld að Pep Guardiola muni yfirgefa Manchester City eftir yfirstandandi tímabil. Styrktaraðilum Manchester City hafi verið greint frá fyrirætlunum Spánverjans. Enski boltinn 18. maí 2026 20:15
Haaland verður víkingur í teiknimynd Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur ákveðið að láta reyna á leikhæfileika sína því hann talar inn á norska teiknimynd sem frumsýnd verður um næstu jól. Enski boltinn 18. maí 2026 11:32
Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var að vonum ánægður eftir að hans menn unnu Chelsea, 1-0, í bikarúrslitaleiknum á Englandi í dag. Eftir leik gaf hann í skyn að hann yrði áfram með City-liðið. Enski boltinn 16. maí 2026 22:18
Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna Manchester City varð í dag bikarmeistari í áttunda sinn eftir 1-0 sigur á Chelsea á Wembley. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með hælspyrnu. Enski boltinn 16. maí 2026 20:45
Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Manchester City er FA bikarmeistari eftir 1-0 sigur gegn Chelsea í úrslitaleik. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins með afar laglegri hælspyrnu. Enski boltinn 16. maí 2026 13:30
Heskey yngri tryggði City titil gegn United Reigan Heskey tryggði U18 ára liði Manchester City unglingabikar Englands er hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri liðsins á Manchester United í úrslitaleik keppninnar í gærkvöld. Enski boltinn 15. maí 2026 09:31
Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Manchester City fagnaði feykilega mikilvægum 3-0 sigri gegn Crystal Palace í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mörkin má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 14. maí 2026 08:01
City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Manchester City vann 3-0 sigur gegn Crystal Palace í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og er nú tveimur stigum frá toppliði Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir. Antoine Semenyo, Omar Marmoush og Savinho skoruðu mörkin en Pep Guardiola hvíldi marga lykilmenn City. Enski boltinn 13. maí 2026 18:30
Dagskráin í dag: Allt undir hjá City og Benóný í umspili Enski fótboltinn rúllar á rásum Sýnar Sport þennan miðvikudaginn. Mikilvægir leikir eru í ensku úrvalsdeildinni og ensku C-deildinni. Enski boltinn 13. maí 2026 06:01
Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Eftir jafnteflið gegn Everton í síðustu umferð kom Manchester City sér aftur á sigurbraut í dag og minnkaði forskot Arsenal í tvö stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 9. maí 2026 16:01
City varð Englandsmeistari heima í sófanum Manchester City er Englandsmeistari kvenna í fótbolta en það varð ljóst eftir 1-1 jafntefli Arsenal gegn Brighton í kvöld. Enski boltinn 6. maí 2026 21:52
Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Manchester City fór illa að ráði sínu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið glutraði niður forystu endaði á því að gera 3-3 jafntefli gegn Everton á útivelli. Arsenal er í bílstjórasætinu, með örlögin í sínum höndum, fyrir lokaumferðir deildarinnar en jöfnunarmark Doku á lokasekúndunum gæti skipt miklu máli. Enski boltinn 4. maí 2026 21:00
Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Pep Guardiola, stjóri Manchester City, sló á létta strengi á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Manchester City við Everton í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á mánudagskvöld. Hann skýrði hvers vegna hann var staddur á leik í ensku neðri deildunum á kostnað þess að sjá stórleik í Meistaradeildinni. Enski boltinn 1. maí 2026 23:15
Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Manchester City-menn eru sagðir argir yfir því hvernig leikjadagskrá þeim er boðið upp á nú í lok tímabilsins, þegar þeir freista þess að vinna þrennuna á Englandi. Enski boltinn 28. apríl 2026 23:16
Stones rifar seglin hjá City Enski landsliðsmaðurinn John Stones mun yfirgefa herbúðir Man. City í sumar eftir tíu ára dvöl hjá félaginu. Enski boltinn 28. apríl 2026 15:02
Fá leyfi til að leika sér í fríinu Pep Guardiola hefur gefið leikmönnum sínum þriggja daga frí eftir sigur á Southampton í undanúrslitum enska bikarsins um helgina. Þeir fái leyfi til að gera hvað sem þeim sýnist í fríinu áður en undirbúningur fyrir lokakafla tímabilsins hefst. Enski boltinn 27. apríl 2026 16:01
Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Manchester City er komið í úrslitaleik enska bikarsins í fótbolta eftir 2-1 torsóttan sigur gegn Southampton á Wembley í dag. Það skýrist á morgun hverjum City mætir í úrslitaleiknum. Enski boltinn 25. apríl 2026 18:16
Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Manchester City tyllti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í gær með 1-0 sigri gegn Burnley á Turf Moor. Sjáðu öll mörk gærkvöldsins í ensku úrvalsdeildinni hér neðar í fréttinni. Enski boltinn 23. apríl 2026 08:02