

Neytendur
Neytendafréttir af íslenskum markaði.

Ákvörðun verðlagsnefndar búvara skilað sér í hærra verði til neytenda
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í sex verslunum af átta síðasta hálfa árið. Mest hækkaði vörukarfan í Heimkaup eða 3,4% en minnst í Krambúðinni og Kjörbúðinni, 0,5% í hvorri verslun fyrir sig.

Óttast skort á vetrardekkjum á landinu
Sumir á landinu gætu lent í að fá ekki vetrardekk í ár vegna skorts á sendingum frá Asíu, að sögn Jóhanns Jónssonar, markaðs- og birgðastjóra Dekkjahallarinnar. Flestir dekkjasalar landsins hafa lent í einhverjum vandræðum með pantanir sínar í ár og fá hluta þeirra annaðhvort seint eða ekki.

Eldsneytisverð ekki verið hærra á Íslandi frá árinu 2014
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað skarpt seinustu mánuði og hefur sú þróun skilað sér greinilega til íslenskra neytenda.

Svona er að fá heita máltíð senda heim með dróna
Flutningafyrirtækið Aha.is hlaut á dögunum verðlaun fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála. Flotinn rafvæddur og ýmislegt göfugt í þeim dúr, en það sem er meira um vert: Þeir senda heim mat með dróna.

Fær ekki vaskinn endurgreiddan vegna vinnu við upphækkun jeppa
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu manns um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við upphækkun jeppa og koma honum á stærri dekk. Ekki voru taldar forsendur til að skýra endurgreiðsluheimild virðisaukaskattslaga svo rúmt, að hún tæki til slíkra breytinga.

Skortur á blómkáli og brokkolí rakinn til tollalaga
Blómkál er nánast ófáanlegt og lítið er til af spergilkáli í matvöruverslunum á Íslandi um þessar mundir að sögn Félags atvinnurekenda (FA).

Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellusmit
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli en umbúðirnar kunna að vera merktar Ali, Bónus eða FK. Ástæðan er grunur um salmonellusmit. Matfugl hefur innkallað vöruna.

Neytendastofa innkallar andlitsgrímur frá Xiaomi
Neytendastofa hefur innkallað andlitsgrímu af gerðinni Smartmi frá framleiðandanum Xiaomi, sem seld var í verslun Tunglskins ehf. Þá hefur sala og afhending grímunnar jafnframt verið bönnuð.

Smálánafyrirtæki hafði betur í máli gegn Neytendasamtökunum
Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, var óheimilt að fullyrða að lán smálánafyrirtækisins eCommerce 2020 hafi verið úrskurðuð ólögleg. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi ummæli sem hann lét falla í garð fyrirtækisins dauð og ómerk.

„Það virðist hreinlega allt klikka í þessu máli“
Formaður Neytendasamtakanna segir of algengt að fólk standi uppi með mikið tjón vegna vanhæfni verktaka. Það sé þó óvenjulegt að eftirlit með verkefni fari líka úrskeiðis eins og gerðist í tugmilljóna nýframkvæmd í fjölbýli í Breiðholti.

Telja krísu-útrýmingarsölu á perneskum teppum í Kópavogi ekki standast lög
Formaður Neytendasamtakanna segir auglýsingu um „krísu-útrýmingarsölu“ á persneskum teppum, sem birtist í aukablaði með Morgunblaðinu í morgun, ólöglega.

Íbúar æfir: Tugmilljóna króna nýframkvæmd dæmd ónýt
Talsmaður íbúa fjölbýlis í Breiðholti segir eigendur standa uppi ónýtt verk vegna hönnunargalla og ónógs eftirlits að hálfu VSB verkfræðistofu. Stofan hafi fengið verktaka með brotaferil að baki til að vinna verkið sem hafi algjörlega mislukkast.

Landsbankinn spáir einnig stýrivaxtahækkun
Landsbankinn tekur undir spá Íslandsbankans frá því í gær um að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Bankinn telur þó ekki útilokað að stýrivextir hækki um 0,5 prósentustig.

Vara við Sprota-sparibaukum Landsbankans
Neytendastofa hefur varað við Sprota sparibaukum Landsbankans sem bankinn afhendir börnum. Baukarnir eru sagðir geta verið hættulegir og ekki ætlaðir við leik barna, enda kunni smámynt af detta úr baukunum sem geti valdið köfnunarhættu hjá börnum.

Endurgreiðslur vegna Allir vinna nema tæpum sex milljörðum það sem af er ári
Endurgreiðslur vegna átaksins Allir vinna nema tæplega 5,9 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Alls hafa verið afgreiddar um 23 þúsund endurgreiðslubeiðnir af þeim 45 þúsund sem borist hafa.

„Fólk er almennt heiðarlegt og við göngum út frá því“
„Svarið við því er já,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, spurður að því hvort fólki sé treystandi. Tilefnið er nýtt greiðslufyrirkomulag hjá Krónunni, þar sem fólki verður treyst til að „skanna og skunda“ en VÍS hefur um nokkurra ára skeið viðhaft svipað fyrirkomulag varðandi tjónatilkynningar.

Íslandsbanki spáir stýrivaxtahækkun í næstu viku
Íslandsbanki spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi, sem er á miðvikudaginn í næstu viku, þann 6. október. Gangi spáin eftir verða stýrivextir 1,5 prósent.

Innkalla hnetusmjör vegna of mikils magns myglueiturs
Matvælastofnun varar við neyslu hnetusmjörs frá ECO HealthyCo vegna myglueitursins aflatoxíns, sem greindist yfir mörkum. Umræddar vörur eru Peanut Butter Crunchy og Peanut Butter Creamy.

206 þúsund sótt ferðagjöfina sem rennur út á miðnætti
Um 206 þúsund manns hafa nú sótt ferðagjöfina en hún rennur út á miðnætti. Handhafar ferðagjafarinnar eru í kringum 280 þúsund þannig að um 70 þúsund einstaklingar eiga eftir að sækja gjöfina.

Stytta opnunartíma Landsbankans en auka ráðgjafartíma
Landsbankinn hefur ákveðið að stytta afgreiðslutíma útibúa um klukkustund og verða þau framvegis opin frá 10-16. Um leið lengist sá tími sem fjármálaráðgjöf er í boði símleiðis eða á fjarfundum til klukkan 18 alla daga.

Banna sölu á kertum sem brenna óeðlilega og geta valdið neistaflugi og eldstrókum
Neytendastofa hefur bannað sölu og afhendingu á gylltum og rauðgylltum kertum frá framleiðandanum Premier Decorations Ltd. sem seld voru í verslunum Samkaup.

„Sérstaklega hættulegar“ rafrettuáfyllingar enn til sölu
Enn er verið að selja sérstaklega hættulegar rafrettuáfyllingar með allt of miklu magni nikótíns í sérverslunum með rafrettur á landinu.

Svikahrappar tæmdu kort Halldóru á tíu mínútum
Það var heldur óskemmtilegt fyrir Halldóru Björg Haraldsdóttir að líta á heimabankann sinn í vikunni. Óþekktir og óprúttnir aðilar höfðu látið greipar sópa um bankareikning hennar og eytt um 130 þúsund krónur hjá veðmálafyrirtækinu Betsson á innan við tíu mínútum. Hún segist ekki hafa hugmynd um hvernig þrjótarnir komust yfir reikningsupplýsingar hennar.

Varar við hættu sem getur stafað af papparörunum
„Það voru tvær mæður sem létu mig vita, sama sólarhringinn, að þegar börnin þeirra voru að drekka úr einhverjum umbúðum með papparörum, þá losnaði frá hluti af rörinu og varð eftir í munni barnanna.“

Kynna reglur um stöðluð hleðslutengi fyrir snjallsíma
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti frumvarp að lögum sem myndu skikka framleiðendur snjallsíma til að nota staðlað hleðslutengi fyrir þá. Tæknirisinn Apple hefur þráast við að nota sömu tengi og samkeppnisaðilar hans.

Óvæntar sendingar frá Salómonseyjum eru frá Ali Express
Neytendur þurfa ekki að óttast þótt þeim berist tilkynning um óvæntar pakkasendingar frá Salómonseyjum. Þarna er ekkert vafasamt á ferðinni, heldur sendingar Ali Express frá Kína sem sendir eru gegnum Salómónseyjar.

FÍB segja mögulegt að lækka iðgjöld bifreiðatrygginga um 7 milljarða
Forsvarsmenn Félags íslenskra bifreiðaeigenda telja tryggingafélögin geta lækkað iðgjöld bifreiðatrygginga um 7 milljarða króna á ári og samt skilað ásættanlegri afkomu.

Telur viðskiptahætti Borgunar ekki hafa verið villandi og óréttmæta
Neytendastofa telur ekki tilefni til aðgerða af hálfu stofnunarinnar eftir kvörtun Rapyd Europe hf. þar sem fyrirtækið sakaði samkeppnisaðilann Borgun um villandi og óréttmæta viðskiptahætti.

Leikskólakennari lagði VÍS vegna töfrasprotaslyss
VÍS var í gær dæmt til að greiða konu bætur úr slysatryggingu launþega vegna slyss sem hún lent í á heimili sínu þegar hún var að þrífa svokallaðan töfrasprota. Töfrasproti er geysivinsælt eldhústæki sem getur þó verið vandmeðfarið.

ÁTVR stefnir Arnari og Sante vegna brots á einkarétti til smásölu áfengis
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur stefnt Sante ehf, Santewines SAS og Arnari Sigurðssyni, sem er skráður eigandi beggja fyrirtækjanna, til þess að hætta smásölu áfengis á Íslandi.