

Neytendafréttir af íslenskum markaði.
Einar Kristinsson, kaupmaður og eigandi verslunarinnar Mosfells hefur ákveðið að loka versluninni á næstu dögum eftir að hafa rekið hana í fimmtíu og fjögur ár.
Áformað er að reka verslanir Bílanausts í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Selfossi áfram og stefnt er að opnun verslananna á Akureyri og Egilsstöðum síðar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtök Íslands, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag um að bæta merkingar á matvælum.
Fyrirtækið Svanhóll ehf. hefur innkallað um 100 gallaðar pönnukökupönnur.
Starfshópur um úthlutun tollkvóta telur hollenska leið vænlegasta til að koma ávinningi kvótanna í vasa neytenda. Fyrirséð er að tekjur ríkisins af kvótunum muni dragast saman.
Ætlast er til þess að umbúðir áfyllinga í rafrettur verði allar merktar með viðvörun um innihald nikótíns, hvort sem vökvinn innihaldi nikótín eða ekki, samkvæmt reglugerð sem ráðherra hefur kynnt til umsagnar. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir málið furðulegt og villandi fyrir neytendur.
Neytendastofa hefur lagt 250 þúsund króna stjórnvaldssekt á Base Capital ehf. vegna markaðssetningar fyrirtækisins við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Haga sem birt var í dag.
"Ég er svolítið stressuð að kaupa á netinu og geri það ekki mikið sko.“
„Neytendur eiga rétt á því, einnig á veitingastöðum, að fá að vita frá hvaða landi maturinn kemur og það án þess að þurfa að spyrja.“
Verslunarkeðjan Super 1 mun fylla í skarð þriggja Bónusverslana sem loka á höfuðborgarsvæðinu á næstu vikum.
Verslunin opnar mun bjóða upp á nýjungar í vöruúrvali samkvæmt eigandanum.
Árni Sveinsson, íbúi í Þingholtunum, segist hafa staðið í röð í líklega klukkustund þegar hann fór í hverfisbúðina sína í síðasta skipti í dag.
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2018 voru kynntar í dag í tuttugasta skiptið.
Átján ára drengur setti sig í samband við Solveigu Ruth Sigurðardóttur í fyrradag og tjáði henni að þriggja ára dóttir hennar hefði millifært hundrað þúsund krónur á reikning hans.
Þjóðfélagsumræðan í vetur hafði töluverð áhrif á bílasölu. Aftur á móti jókst eftirspurn eftir bílaleigubílum.
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi fyrir súlfít við neyslu á ákveðnum lotum af Piacelli sítrónusafa og límónusafa.
Matvöruverslunin Krónan hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað Blomsterbergs citronfromage vegna ómerktra ofnæmis- og óþolsvalda (hnetur og möndlur).
Útibú Hamborgarabúllu Tómasar í Osló lagði leigusala sinn fyrir þarlendum dómstólum á dögunum.
Toyota á Íslandi hefur ákveðið að innkalla alls 2245 bifreiðar vegna loftpúðagalla.
Íslendingar sofa of lítið, eins og fram hefur komið. Koffínneysla hefur aukist en neysla á sífellt sterkari koffín- eða orkudrykkjum er áhyggjuefni, sérstaklega á meðal barna og ungmenna sem eiga auðvelt með að nálgast þá.
Framtíð verslana Toys R'Us hér á landi er enn í óvissu. Þetta segir Sigurður Þorgeir Jónasson, verslunarstjóri á Smáratorgi.
Neytendur geta hent pappa- og plastumbúðum í verslunum Krónunnar áður en þeir fara með matvörurnar heim.
Ákveðið var að hefja gjaldtöku í kjölfar endurnýjunar salernisaðstöðu húsnæðisins.
Söluskálinn Þrastalundur í Grímsnesi gengur nú í gegnum endurnýjun lífdaga.
Kortavelta íslenskra heimila í nýliðnum desembermánuði nam um 86,5 milljörðum króna, sem jafngildir um 4,5 prósent aukningu frá sama mánuði árið áður.
COS, eins konar systurverslun H&M, mun opna verslun í Reykjavík síðar á þessu ári. COS er í eigu H&M fataverslunarkeðjunnar.
Icelandair þarf að greiða 23 einstaklingum bætur vegna aflýsingar flugfélagsins á flugferðum sem farþegarnir áttu bókað sæti í. Flugferðunum öllum var aflýst vegna verkfalls flugvirkja sem stóð yfir 17. til 19. desember árið 2017.
BL Hyundai, sem starfrækir verslun í Kauptúni í Garðabæ, mun þurfa að innkalla 66 bifreiðar af gerðinni KONA EV.
Segir fáa sakna þess að bíða lengi í röð eftir að kaupa ferð til útlanda.