

Olís-deild kvenna
Leikirnir

Seinni bylgjan: Ótrúlega rólegar undir pressu og þjálfarinn sultuslakur
Leikmenn og þjálfari KA/Þórs sýndu aðdáunarverða yfirvegun og öryggi í sigrinum á Val í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta, að mati sérfræðinga Seinni bylgjunnar.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Valur 24-21 | Heimastúlkur tóku forystuna í úrslitaeinvíginu
KA/Þór er komið yfir í úrslitaeinvíginu gegn Val í Olís-deild kvenna en liðin mættust í fyrsta sinn á Akureyri í kvöld. Vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér titilinn.

Lena í Stjörnuna: Rakel Dögg hefur fylgst með henni síðan hún var tíu ára
Handknattleikskonan stórefnilega Lena Margrét Valdimarsdóttir hefur samið við Stjörnuna en hún yfirgefur þar með uppeldisfélagið sitt Fram.

Tjónið minnkað með sænskum línumanni
Sænska handknattleikskonan Emma Olsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við Fram. Hún kemur til Íslands í ágúst og hefur þá æfingar með liðinu.

Úrslitin ráðast á því hvernig Valskonur verjast töfrakonunni Rut
Úrslitin í einvígi KA/Þórs og Vals um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta ráðast að miklu leyti á því hvernig Valskonur verjast Rut Jónsdóttur. Þetta segir Sunneva Einarsdóttir, sérfræðingur Seinni bylgjunnar.

Landsbyggðin eignast fulltrúa í úrslitum í fyrsta sinn í sextán ár
Í dag kemur í ljós hvort KA/Þór eða ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna. Oddaleikur KA/Þórs og ÍBV fer fram í KA-heimilinu og hefst klukkan 15:00.

„Ætluðum að vinna þennan leik“
Patrekur Jóhannesson var ekki sáttur með tap sinna manna gegn Fram í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 29-27 Fram í vil en það breytir ekki þeirri staðreynd að Stjarnan fer í úrslitakeppnina en Fram er komið í sumarfrí.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-19 | Valur komnar í úrslit eftir að hafa sópað Fram í sumarfrí
Valur er komið í úrslitaviðureignina eftir að sópa Fram í sumarfrí. Leikurinn endaði með 5 marka sigri Vals 24-19.

Tímabilið vonbrigði en það er ekki hægt að vinna endalaust
Tímabilinu er lokið hjá Fram eftir að hafa tapað 2-0 í undanúrslitar einvígi á móti Val. Sterkur varnarleikur Vals sá til þess að þær unnu leikinn að lokum með 5 mörkum 24-19. Stefán Arnarson þjálfari Fram var afar svekktur með úrslit leiksins.

Rakel Sara: Við mætum tilbúnar
„Þetta var ljúft. Mjög ljúft. Við unnum þetta á liðsheildinni í dag," sagði Rakel Sara Elvarsdóttir, leikmaður KA/Þórs, eftir sigurinn á ÍBV fyrr í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - KA/Þór 21-24 | Gestirnir tryggðu oddaleik
Eftir sigur KA/Þór í Eyjum er ljóst að ÍBV og KA/Þór þurfa að mætast í oddaleik um sæti í úrslitaeinvíginu í Olís-deild kvenna.

Eyjakonur geta í kvöld komist í lokaúrslitin í fyrsta sinn í sextán ár
Valskonur og Eyjakonur geta í kvöld tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmóts Olís deildar kvenna í handbolta en bæði liðin eru 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígum sínum.

Ólöf Maren gengur til liðs við Hauka
Markvörðurinn Ólöf Maren Bjarnadóttir hefur samið við Hauka um að leika með liðinu næstu árin. Hún gengur til liðs við Hauka frá uppeldisfélagi sínu KA/Þór.

Umfjöllu og viðtöl: Fram - Valur 22-28 | Burst í Safamýri
Valskonur tryggðu sér 1-0 forystu í undanúrslitum um íslandsmeistaratitilinn þegar þær mættu Fram í Safamýrinni 28-22.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - ÍBV 26-27 | Seiglusigur Eyjakvenna fyrir norðan
ÍBV vann 27-26 sigur á KA/Þór í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

HK með pálmann í höndunum
HK er með níu fingur á sæti í Olís deild kvenna á næstu leiktíð eftir 28-18 sigur á Gróttu í fyrri umspilsleiknum.

Tvöfalt fleiri áhorfendur leyfðir á þriðjudag
Frá og með næsta þriðjudegi mega 300 áhorfendur vera í hverju sóttvarnahólfi, í stað 150 áður, á íþróttakappleikjum á Íslandi.

Grótta biðst afsökunar framkomu stuðningsmannanna
Handknattleiksdeild Gróttu hefur sent frá sér afsökunarbeiðni vegna framkomu stuðningsmanna liðsins í leikjunum gegn ÍR í umspili um sæti í Olís-deild kvenna.

Stuðningsmenn Gróttu gerðu grín að vaxtarlagi og útliti ÍR-inga: Kölluðu sextán ára leikmann gíraffa
Karen Ösp Guðbjartsdóttir og stöllur hennar í handboltaliði ÍR fengu yfir sig svívirðingar frá stuðningsmönnum Gróttu í leikjum liðanna í umspili um sæti í Olís-deild kvenna á dögunum. Karen sagði frá upplifun sinni í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 22-28 | Valskonur sendu Hauka í sumarfrí í KFUM slag
Valskonur sendu Hauka í sumarfrí eftir sigur í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Olís-deildar kvenna í dag. Valskonur byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina allan tímann, lokatölur 22-28.

Mikill liðsheildar bragur yfir okkur
Ágúst Þór Jóhannesson, þjálfari Vals var að vonum sáttur eftir að Valskonur tryggðu sér sæti í undanúrslitum Olís-deildar kvenna með sigri á Haukum í dag. Sigur Vals var aldrei í hættu og lokatölur leiksins 22-28.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 26-29 | ÍBV sendi Stjörnukonur í sumarfrí
ÍBV vann öruggan þriggja marka sigur á Stjörnunni, 26-29 á útivelli og tryggði sér þar af leiðandi sæti í undanúrslitum Olís deildarinnar.

„Þær munu koma dýrvitlausar í næsta leik“
„Mér fannst við spila rosalega vel, allar sem ein, í vörn og sókn - þar fannst mér vörnin mjög góð í dag. Bara góður sigur.“ sagði Lovísa Thompson, skytta Vals, eftir 25-19 sigur liðsins á Haukum í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Olís-deild kvenna á Hlíðarenda í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 25-19 | Sterkur sigur Valskvenna
Valur vann 25-19 sigur á Haukum í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð í úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta. Valur er einum leik frá sæti í undanúrslitum.

Þetta var algjörlega til fyrirmyndar
„Ég er mjög sáttur og stoltur af stelpunum,“sagði Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, eftir fjögurra marka sigur liðsins á Stjörnunni í fyrsta leik úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í dag. Lokatölur 21-17 Eyjastúlkum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 21-17 | Heimastúlkur hófu úrslitakeppnina á sigri
ÍBV vann öruggan fjögurra marka sigur á Stjörnunni í fyrsta leik úrslitakeppni Olís-deildar kvenna í handbolta í dag.

HK og Grótta með yfirhöndina
HK og Grótta eru með yfirhöndina eftir fyrri leikina í umspilsleikjum um sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð.

Fagnaðarlæti í flugstöðinni í meistaramyndbandi KA/Þórs
Leikmenn KA/Þórs skráðu sig í sögubækurnar með því að vinna Olís-deildina í handbolta í fyrsta sinn, nú þegar deildin hefur líklega aldrei verið sterkari. Liðið fékk frábærar móttökur við komuna til Akureyrar eftir að hafa tryggt sér titilinn.

Mæðgur léku saman í Olís deildinni
Lokaumferðin í Olís deild kvenna í handbolta fór fram í gær og var merkileg fyrir margra hluta sakir.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA/Þór 27-27 | KA/Þór deildarmeistari í fyrsta skiptið
Fram tók á móti KA/Þór í hreinum úrslitaleik Olís-deildar kvenna upp á deildarmeistaratitilinn. Hörkuleikur sem endaði 27-27 og KA/Þór því deildarmeistari í fyrsta skipti.