Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hafi ó­vart tekið símann með sér en ekki rænt honum

Gabríel Douane Boama, sem sætir ákæru fyrir fjölda brota sem hann játar að mestu, tjáði sig aðeins um tvo ákæruliði af tíu þegar skýrsla var tekin af honum við aðalmeðferð í dag. Í þeim er honum gefið að sök að hafa hótað konu með hnífi og rænt síma af manni á sama tíma. Hann kveðst ekki hafa verið með hníf á sér og hafa óvart tekið símann af manninum en ekki rænt honum.

Innlent
Fréttamynd

Barns­leg gleði, kyn­þokki og ó­hugnaður

Hljómsveitin ex.girls gaf í dag út fyrstu smáskífuna af nýrri plötu sinni, City of Fear, en laginu fylgir óhefðbundið myndefni. Platan var tekin upp á tíu dögum í Rotterdam árið 2023 og hefur mallað hjá sveitinni síðan. Söngkona sveitarinnar lýsir plötunni sem sexý og óhugnarlegri og hún sé samin af barnslegri gleði. 

Tónlist
Fréttamynd

Fólks­fjölgun fór langt fram úr spá á Ísa­firði

Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Rangt svar við raun­veru­legum vanda

Að stytta opnunartíma frístundaheimila, eins og meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt, er skref í ranga átt. Styttingin mun ekki leysa mönnunarvanda, heldur þvert á móti gera hann verri. Nú þegar glímir starfsemin við skort á starfsfólki, sérstaklega á haustin. Ef starfshlutfall er minnkað og störfin gerð enn óstöðugri en þau eru í dag, verður Reykjavík enn síður samkeppnishæf um hæft fólk.

Skoðun
Fréttamynd

The Streets koma fram á Iceland Airwaves

Búið er að tilkynna 28 listamenn sem koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember en fleiri eiga eftir að bætast við. Stærstu nöfnin sem eru nefnd þar eru breska sveitin The Streets, breska söngkonan Shygirl, íslenska stórstjarnan Daði Freyr og hið filipseysk-íslenska Yaolekre.

Lífið
Fréttamynd

Að kaupa burt vandann

Að tryggja öllum börnum aðgengi að leikskólaplássi er ekki „bara“ þjónusta heldur grundvallarstoð í velferðarsamfélagi. Leikskólar sinna ekki aðeins umönnun heldur gegna þeir lykilhlutverki í þroska, menntun og félagsmótun barna á fyrstu árum ævinnar. Rannsóknir á sviði menntunar og barnasálfræði hafa ítrekað sýnt að snemmtæk íhlutun og skipulagt leikskólastarf hefur jákvæð áhrif á málþroska, félagsfærni og síðar námsárangur.

Skoðun
Fréttamynd

Rúta valt á Kjalar­nesi

Tveir voru fluttir til skoðunar eftir að lítil rúta valt á Kjalarnesi um klukkan 14 í dag. Aðgerðum er lokið á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug

Á föstudaginn langa, í gær, var svo mikið að gera í Vesturbæjarlaug að hleypt var inn í hollum. Vaktstjóri segir gesti mega búast við álíka önnum á morgun, páskadag.

Innlent
Fréttamynd

Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar mælir gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni og að göngufólk á höfuðborgarsvæðinu hugi vel að leiðarvali. Í tilkynningu frá snjóflóðavaktinni kemur fram að snjó hafi bætt við víða á landinu í gær og að léleg binding sé við eldri snjó. Víða séu veikleikar í kringum höfuðborgarsvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Brotist inn og gert sig heima­kominn

Lögreglan brást við útkalli þar sem par var sagt rífast hástöfum í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Brotist var inn í íbúð og þegar lögreglu bar að garði hafði viðkomandi gert sig heimakominn og var búinn að róta talsvert í eigum íbúa.

Innlent
Fréttamynd

Hver ber á­byrgð á heimilis­leysi á Ís­landi?

Það er óhætt að segja að enginn kýs að vera heimilislaus, húsaskjól er jú ein af grunnþörfum fólks. Alls konar aðstæður og áföll geta hins vegar komið upp í lífi hvers og eins sem geta gert það að verkum að viðkomandi missir húsnæði.

Skoðun
Fréttamynd

Kostnaður við borgar­stjórn Reykja­víkur

Það er ekki beinlínis fallið til vinsælda að verja kerfi þar sem launakjör kjörinna fulltrúa koma við sögu og ég ætla ekki að gera tilraun til þess. Hinsvegar langar mig að varpa ljósi á kostnaðinn við kjörna fulltrúa í Reykjavík annarsvegar og stærstu sveitarfélaga landsins hinsvegar.

Skoðun
Fréttamynd

Gestum neyðarskýla fækkar veru­lega milli ára

Gestum neyðarskýla Reykjavíkurborgar hefur fækkað verulega á milli ára. Gestir gista jafnframt færri nætur að meðaltali í skýlunum. Deildarstjóri segir ánægjulegt að sjá slíka fækkun og að hana megi rekja til nýrra úrræða og betri þjónustu við heimilislausa í Reykjavík. Reykjavíkurborg stefni að frekari uppbyggingu húsnæðis á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Biðin bitnar á börnunum

Í Reykjavík fer fram öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Slíkt starf styrkir nærsamfélög og hverfabrag og er ómetanlegt fyrir vellíðan og forvarnir barna. En í of mörgum hverfum er aðstaðan ekki í samræmi við það mikilvæga starf sem unnið er.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég stend ekki hér út af minni for­tíð“

Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 ár í fangelsi. 

Innlent
Fréttamynd

Guð­mundur Ingi leiðir Flokk fólksins

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sömu kosningar en var hafnað. 

Innlent
Fréttamynd

Förgun bóka á­þekk því að lóga gælu­dýrum

Þær notuðu bækur sem Bjarni bók­sali Harðar­son í Bóka­kaffinu tekur við í tonna­tali komast, eðli málsins sam­kvæmt, ekki allar í endur­sölu og enda í Sorpu­gámum. Með Bjarna sem milli­lið friðar fólk þó sam­viskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gælu­dýrum.

Lífið