

Veður

Ofsaveður á Suðurlandi í nótt og á morgun
Gera má ráð fyrir mjög hvössum hviðum við fjöll. Ekkert ferðaveður verður á Suðurlandi.

Holtavörðuheiðin lokuð
Holtavörðuheiði er lokuð tímabundið vegna bíla sem eru fastir og hamla mokstri.

"Hörkugaddur framundan“
Búast má við að frost fari niður í 17 - 18 stig á laugardag.

Komið reglulega að Svínafellsjökli í þrjátíu ár en aldrei séð hann svona
"Ef ég hefði ekki verið með fólk í ferð hefði ég verið þarna allan daginn,“ segir leiðsögumaðurinn Börkur Hrólfsson.

Betur fór en á horfðist þegar björgunarsveitarbíll fauk út af
Þrír björgunarsveitarmenn voru í bílnum á leið í óveðursútkall

Unnið að því að losa umferðarstíflur í Grafarvogi
Bílar setið fastir á brúnni milli Grafarvogs og Grafarholts.

Bílar sitja enn fastir á heiðinni en ökumönnum komið í skjól
Áfram verður lokað á Hellisheiði og víðar í nótt vegna veðurs.

Búið að loka Hellisheiði og víðar
Ekkert skyggni segir lögreglan á Suðurlandi.

Stór pollur eða sæmilegt stöðuvatn
Ótrúlegur vatnslegur myndaðist á Völlunum í Hafnarfirði í gær.

Djúp lægð upp að vesturströnd landsins
Djúp lægð kemur hraðbyr upp að vesturströnd landsins í dag og með henni fylgja talsverð hlýindi og úrkoma.

Vara við vatnavöxtum
Veðurstofan spáir mikilli rigningu sunnan og vestanlands á morgun.

Spá fárviðri á Suðurlandi í nótt
Veðurstofan spáir stormi úr austri með suðurströndinni og að í Öræfasveit megi gera ráð fyrir hviðum 35 til 45 metra á sekúndu seint í nótt.

Spáir stormi með suðurströndinni
Spáð er austan stormi með suðurströndinni og í Öræfasveit má gera ráð fyrir vindhviðum 35- 45 metrum á sekúndu seint í nótt.

Mikil hálka eða hálkublettir á öllu landinu
Mikil hálka er á landinu og þurfa ökumenn sem og fótgangandi að fara varlega.

Kröpp smálægð kemur úr vestri
Veðurstofan spáir 15 til 20 metrum á sekúndu, éljum og talsverðu skafrenningskófi þegar ný lausamjöllin fer af stað.

Hálka og snjóþekja víða um land
Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði í Þrengslum og á Mosfellsheiði. Snjóþekja er víða í uppsveitum.

Myndband úr Borgartúni: Mögnuð veðrabrigði á þrettán mínútum
Starfsmaður Reykjavíkurborgar tók "timelapse“ myndband úr út fundarherbergi í Borgartúni.

Reiknað með áframhaldandi hvassviðri
Fremur kröpp lægðarmiðja á Grænlandssundi nálgast norðanverða Vestfirði í kvöld.

Innanlandsflug liggur niðri
Allt innanlandsflug hjá Flugfélagi Íslands liggur niðri eins og staðan er en aðstæður verða kannaðar aftur á tólfta tímanum.

Ófært og óveður á Öxnadalsheiði
Hálka, snjóþekja, éljagangur og skafrenningur er á Norðurlandi.

Hvessir aftur í kvöld og í nótt
Spáð er lægðabylgju úr suðvestri og með henni hvessir heldur aftur í kvöld og í nótt.

Komu í veg fyrir að vegurinn færi í sundur
„Við urðum að moka í burtu snjóskafli undir brúnni til að koma vatninu í gegn,“ segir Ingi Björgvin Reynisson, verkstjóri hjá Vegagerðinni.

Innanlandsflug liggur niðri
Allt innanlandsflug hjá Flugfélagi Íslands liggur niðri eins og staðan er en aðstæður verða kannaðar aftur á ellefta tímanum.

Holtavörðuheiðin opnuð á ný
Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiðina að nýju en heiðin var lokuð í gærkvöldi.

Flæddi inn á sjúkrahús og Bæjarbrekkan varð að stórfljóti
Ljóst er að mikið tjón hefur orðið vegna vatnavaxta og óveðurs í Ísafjarðarbæ í gærkvöldi og í nótt með þeim afleiðinngum að niðurföll höfðu ekki undan og vatn flæddi inn í mörg hús í bænum.

Sextíu ungmenni föst í rútu við Hólmavík
Björgunarsveitarmenn og Vegagerðarmenn eru nú að undirbúa að selflytja yfir 60 unglinga úr Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki úr rútubíl, þar sem þeir hafa hafist við í alla nótt eftir að þjóðvegurinn sunnan Hólmavíkur grófst í sundur vegna vatnavaxta.

Björgunarmenn að störfum víða um land
Útköll hófust strax í morgun.

Vél Icelandair gat ekki lent í Keflavík og fór til Reykjavíkur
Slæm veðurskilirði á Keflavíkurflugvelli komu í veg fyrir að hægt væri að lenda vélinni þar.

Vara vegfarendur við vatnavöxtum
Vegagerðin segir að vatn geti farið yfir vegi þar sem ræsi hafi ekki undan.

Allt á floti á Ísafirði
Bæjarbrekka „eins og stórfljót“