Óboðlegar samgöngur til Eyja Fyrir viku síðan steig ég fram í fjölmiðlum og sagði að staðan í samgöngum við Vestmannaeyjar væri óboðleg. Því miður hefur ekkert breyst. Skoðun 26.4.2026 09:30
Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Síðasta föstudag í aprílmánuði ár hvert hefst tónlistarhátíðin Hljómey í Vestmannaeyjum. Þá stíga landsþekktir listamenn á stokk og spila fyrir gesti hátíðarinnar í heimahúsum. Hún er nú haldin í fjórða skipti og meðal þeirra sem koma fram eru Valdimar, Jakob Frímann og Bríet. Tónlist 25.4.2026 12:38
Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Minnisvarði um eldgosið í Heimaey verður vígður þann 12. maí en á athöfninni munu Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra og listamaðurinn Ólafur Elíasson vera meðal ræðumanna. Eyjamenn töldu sumir hverjir að verkið væri röskun á svæðinu en eftir kynningu sem haldin var á íbúafundi virðist sem fólk hafi róast. Þar kom fram að hægt væri að láta verkið hverfa sporlaust. Innlent 24.4.2026 16:55
Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent 21.4.2026 13:16
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. Innlent 15. apríl 2026 18:07
Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Mikill skjálfti er innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og snýr ágreiningurinn um bæjarstjóraefnið Írisi Róbertsdóttur. Hitafundur fulltrúaráðs var haldinn í gærkvöldi þar sem menn töluðu út og víst er að ekki er gróið um heilt vegna klofningsins sem varð 2018 þegar H-listinn var myndaður sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki. Innlent 15. apríl 2026 11:05
Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta Innviðaráðuneytið hefur veitt samþykki fyrir framlengingu á ríkisstyrktu áætlunarflugi fram til næstu mánaðamóta. Leyfið er veitt vegna stöðu mála í Landeyjahöfn. Innlent 14. apríl 2026 17:32
Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu. Innlent 13. apríl 2026 22:00
„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Forstjóri Icelandair segir að verklag og reglugerðir verði áréttaðar við starfsfólk flugfélagsins eftir að reyndur flugstjóri ákvað án samráðs við flugfélagið að fljúga í lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn. Málið er á borði lögreglu. Innlent 13. apríl 2026 16:08
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. Innlent 13. apríl 2026 15:37
Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun. Innlent 13. apríl 2026 14:24
Flugstjórinn þögull sem gröfin Ólafur Bragason flugstjóri, sem lauk ferli sínum sem flugstjóri hjá Icelandair með lágflugi yfir Vestmannaeyjum á laugardaginn, ætlar ekkert að tjá sig um flugið að svo stöddu. Málið er litið alvarlegum augum hjá Icelandair sem hefur tilkynnt málið til lögreglu. Innlent 13. apríl 2026 11:40
„Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum ekki hafa sérstaka skoðun á lágflugi flugstjóra Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ um helgina. Innlent 13. apríl 2026 08:32
Lágflugið vekur athygli erlendis Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum í gær hefur vakið athygli um víða veröld. Fjöldi erlendra miðla hefur greint frá atvikinu. Innlent 12. apríl 2026 18:43
Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Icelandair lítur lágflug sem farið var yfir Vestmannaeyjar í dag grafalvarlegum augum. Flugstjórinn er ættaður frá svæðinu og var að fara sitt seinasta flug áður en hann lætur af störfum vegna aldurs. Innlent 11. apríl 2026 18:52
Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Eyjamönnum brá vægast sagt í brún þegar farþegaþota Icelandair flaug yfir bæinn í um hundrað metra hæð eða svo. Hávaðinn var mikill og héldu margir að flugvélin væri hreinlega að hrapa. Innlent 11. apríl 2026 16:25
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur samþykkt beiðni um að vera bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum í maí. Innlent 10. apríl 2026 07:37
Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust Það er eitthvað skrýtið í gangi. Við erum tilbúin að setja tugi milljarða í að stytta ferðatíma innan Reykjavíkur en á sama tíma er verið að skera niður og fresta framkvæmdum sem halda uppi útflutningssvæðum landsins. Þetta er ekki flókið. Þetta snýst einfaldlega um forgangsröðun. Skoðun 7. apríl 2026 09:45
Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Af myndum að dæma hefur stærðar gámur steypst niður af Fjósakletti og lent á hvolfi við leikvöllinn í Herjólfsdal. Fréttastofu bárust þessar myndir úr Herjólfsdal í Vestmannaeyjum síðdegis í dag. Gámurinn, sem er mjög stór, hefur með einhverju móti oltið og skilið djúpar rákir eftir sig í hlíðinni. Innlent 6. apríl 2026 17:02
„Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Fjöldi björgunarsveitarmanna í Vestmannaeyjum stóð í ströngu við að festa þakkjöl sem var við það að losna af húsi í Fjólugötu í dag. Innlent 6. apríl 2026 14:52
Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Danska fyrirtækið DHI vinnur nú að tillögum er varða lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar í samvinnu við Vegagerðina. Reiknað er með niðurstöðum vinnunnar nú í vor og í kjölfarið verður það stjórnvalda að ákveða næstu skref. Innlent 4. apríl 2026 18:01
Trausti í öðru sæti í Eyjum Sjálfstæðismenn í Eyjum hafa staðfest lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Efstu sæti listans eru óbreytt frá prófkjörinu Innlent 29. mars 2026 21:46
Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Aðalsteinn Leifsson, guðfræðinemi og fyrrverandi ríkissáttasemjari, tók upp millinafnið Lúther fyrir ekki svo löngu síðan. Nafnabreytingin tengist ekkert guðfræðináminu sem Aðalsteinn byrjaði nýverið í heldur er það virðingavottur við afa hans, Aðalstein Lúther Indriðason. Lífið 27. mars 2026 16:27
Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mun sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann tekur við af Magnúsi Kjartani sem stýrði söngnum undanfarin ár. Lífið 27. mars 2026 11:45
Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Herjólfur bíður í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Þorlákshöfn eftir því að sigla að landi. Ófært er eins og er. Skipið lagði af stað klukkan níu í morgun og var áætlað rétt fyrir klukkan 12 að landi. Innlent 26. mars 2026 12:33