Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Smári Jökull Jónsson skrifar 4. september 2026 06:25 Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Árni Sigfússon stjórnarformaður Eyjaganga. Stjórnarráðið Innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf vegna jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja. Nýlega lauk gagnasöfnun svo hægt verði að ráðast í heildstætt fýsileika- og kostnaðarmat á verkefninu.
Greint er frá undirritun viljayfirlýsingarinnar á vef Stjórnarráðsins og þar segir að markmiðið sé að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar í tengslum við verkefnið. Viljayfirlýsingin kveður á um að Eyjagöng ehf. beri ábyrgð á og fjármagni heildstæðar fýsileikarannsóknir sem taki til jarðfræðilegra og tæknilegra forsenda, umhverfisþátta, umferðarspár og fjárhagslegrar uppbyggingar verkefnisins. Ríkið mun styðja við undirbúninginn með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samvinnu um tengingu við vegakerfi landsins. „Það er ánægjulegt að heimamenn í Eyjum hafi tekið frumkvæði að því að fjármagna og leiða svo umfangsmiklar rannsóknir. Það er mikilvægt að ríkið greiði götu verkefnisins á þessu stigi og það gerum við með faglegu samstarfi, miðlun gagna og ráðgjöf,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra. Stefna á að hægt verði að keyra til Vestmannaeyja eftir tíu ár Kjarnaboranir í Eyjum hófust síðastliðið vor en bæði var borað í Vestmannaeyjum sem og suður af Krossi á Landeyjasandi. Hluthafar í Eyjagöngum eru sveitarfélög auk ýmissa fyrirtækja og sagði framkvæmdastjóri Eyjaganga þá að mat félagsins væri að eftir tíu ár væri hægt að keyra á milli lands og Eyja. „Þá værum við að fara í rannsóknarferli núna í tvö til þrjú ár og svo fjármögnunarfasa á seinni hluta þess tíma samhliða. Síðan myndum við fara í borun og framkvæmdir sem myndu taka fjögur til fimm ár frá báðum endum. Í kjölfarið þá þyrfti að steypa göngin þannig að þetta yrði í heildina um tíu ár,“ segir Haraldur að lokum. Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga, ræddi Eyjagöng í Reykjavík síðdegis í gær:
Vestmannaeyjar Samgöngumál Jarðgöng á Íslandi Rangárþing eystra Vegagerð Tengdar fréttir Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Verkefnið um jarðgöng til Vestmannaeyja er ekki lengur aðeins hugmynd á teikniborðinu. Með tilkomu nýrra hluthafa á borð við Landsbankann og N1 nálgast Eyjagöng nú fjárhagslegt markmið sitt hratt, á sama tíma og undirbúningur jarðgrunnsrannsókna fer af stað í lok apríl. 23. mars 2026 13:07