Diljá ráðin kynningarstjóri Listaháskólans Diljá Ámundadóttir Zoëga, fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur verið ráðin í starf kynningarstjóra Listaháskóla Íslands. Viðskipti innlent 16. ágúst 2023 10:22
Ráðning heilsugæsluforstjóra enn í ferli Ráðning í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiðsins, sem auglýst var laust til umsóknar í maí, er enn í ferli. Innlent 16. ágúst 2023 09:58
Þóra frá Advania til Ríkisútvarpsins Þóra Tómasdóttir fjölmiðlakona hefur látið af störfum hjá Advania og ráðið sig yfir til RÚV, þar sem hún hóf fyrst störf fyrir tæpum tveimur áratugum. Viðskipti innlent 15. ágúst 2023 18:27
Rebekka og Snorri til Mílu Míla hefur ráðið til sín tvo nýja stjórnendur. Rebekka Jóelsdóttir er nýr fjármálastjóri og Snorri Karlsson er framkvæmdastjóri innviðasviðs. Meðfram ráðningunum taka þau bæði sæti í framkvæmdastjórn Mílu. Viðskipti innlent 15. ágúst 2023 15:39
Sigurveig úr Íslandsbanka í Landstólpa Sigurveig Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem nýr fjármálastjóri Landstólpa og mun hefja störf þar um næstu mánaðarmót. Sigurveig fer í Landstólpa úr Íslandsbanka þar sem hún starfaði sem viðskiptastjóri á Selfossi. Viðskipti innlent 15. ágúst 2023 15:08
Tekur við stöðu upplýsingafulltrúa HS Orku Birna Lárusdóttir fjölmiðlafræðingur hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi HS Orku. Viðskipti innlent 15. ágúst 2023 09:05
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Ljósleiðarans til atNorth Erling Freyr Guðmundsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri gagnavers- og ofurtölvufyrirtækisins atNorth og kemur þannig nýr inn í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Viðskipti innlent 15. ágúst 2023 08:18
Stefán tekur við varaformennsku í stjórn Íslandsbanka Stefán Pétursson, sem var fjármálastjóri Arion banka í meira en áratug, hefur verið gerður að varaformanni stjórnar Íslandsbanka í kjölfar niðurstöðu hluthafafundar félagsins í lok síðasta mánaðar. Helga Hlín Hákonardóttir, sem kom sömuleiðis ný inn í stjórn Íslandsbanka, mun taka við sem formaður áhættunefndar bankans. Innherji 14. ágúst 2023 18:59
Þuríður hættir sem formaður og Alma Ýr býður sig fram Alma Ýr Ingólfsdóttir, lögfræðingur Öryrkjabandalags Íslands, hefur boðið sig fram til formanns bandalagsins. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, sitjandi formaður ÖBÍ, lætur af störfum í október eftir sex ára setu. Innlent 14. ágúst 2023 13:48
Silja Mist tekur við markaðssviði N1 Silja Mist Sigurkarlsdóttir er nýr forstöðumaður markaðssviðs N1. Hlutverk Silju verður að leiða markaðsstarf N1, taka þátt í stefnumótun félagsins og hafa yfirumsjón með samfélagsstefnu þess. Viðskipti innlent 14. ágúst 2023 10:28
Alda ráðin framkvæmdastjóri mannauðs hjá Innnes Alda Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs hjá Innnes ehf., sem er ein stærsta matvöruheildverslun landsins. Viðskipti innlent 11. ágúst 2023 13:30
Alda kveður Sýn Alda Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Sýn hf., hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hún var ráðin sem framkvæmdastjóri í nóvember síðastliðnum. Viðskipti innlent 11. ágúst 2023 10:22
Tekur við stöðu áhættustjóra hjá VÍS Birgir Örn Arnarson hefur verið ráðinn til að stýra áhættustýringu VÍS og leiða mótun áhættustýringar í hinu sameinaða félagi VÍS og Fossa. Viðskipti innlent 9. ágúst 2023 13:06
Pétur tekur við af Tryggva sem deildarforseti tónlistardeildar LHÍ Pétur Jónasson gítarleikari hefur verið ráðinn í stöðu deildarforseta tónlistardeildar Listaháskóla Íslands. Hann tekur við starfinu af Tryggva M. Baldvinssyni sem lýkur nú tíu ára ráðningarfestu sinni. Menning 8. ágúst 2023 14:43
Tekur við stöðu skólastjóra Lýðskólans á Flateyri Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur tekið við stöðu skólastjóra Lýðskólans á Flateyri og þá hefur Erla Margrét Gunnarsdóttir tekið við stöðu kennslustjóra. Innlent 8. ágúst 2023 12:51
María ráðin nýr fjármálastjóri HR María Ingibjörg Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr fjármálastjóri Háskólans í Reykjavík (HR). Hún tekur við starfinu af Ninju Ýr Gísladóttur. Viðskipti innlent 3. ágúst 2023 12:40
Séra Davíð Þór ráðinn tímabundið til Háteigskirkju Séra Davíð Þór Jónsson hefur verið ráðinn tímabundið til Háteigskirkju. Hann hefur verið í veikindaleyfi frá störfum sínum í Laugarneskirkju síðastliðna níu mánuði en sér fyrir sér að snúa aftur tvíefldur eftir stopp í Háteigskirkju. Innlent 3. ágúst 2023 11:17
Brynjar Þór nýr fjármálastjóri VÍS og Fossa Brynjar Þór Hreinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri sameinaðs félags VÍS og Fossa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 28. júlí 2023 13:34
Þessi bjóða sig fram í stjórn Íslandsbanka Ellefu einstaklingar bjóða sig fram til setu í stjórn Íslandsbanka sem kjörin verður á hluthafafundi bankans föstudaginn 28. júlí. Fjögur bjóða sig fram til stjórnarsetu þrátt fyrir að vera ekki á lista tilnefningarnefndar yfir þá sem mælt er með að taki stjórnarsæti. Viðskipti innlent 25. júlí 2023 14:35
Þórður nýr innri endurskoðandi Landsbankans Þórður Örlygsson hefur verið ráðinn innri endurskoðandi Landsbankans en hann hefur gegnt stöðu regluvarðar hjá bankanum. Þórður tekur við af Kristínu Baldursdóttur sem hefur verið innri endurskoðandi Landsbankans frá árinu 2009. Viðskipti innlent 25. júlí 2023 13:48
Kristján Þór snýr sér að mannauðsmálum í Mosó Kristján Þór Magnússon, fyrrverandi sveitarstjóri í Norðurþingi, hefur verið ráðinn sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis í Mosfellsbæ. Ráðning hans var samþykkt á fundi bæjarráðs í dag. Innlent 20. júlí 2023 16:09
Guðrún Sesselja skipuð héraðsdómari Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Guðrúnu Sesselju Arnardóttur í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, frá og með 1. september næstkomandi. Innlent 20. júlí 2023 15:02
Réðu reynslubolta frá Brim sem flytur fjölskylduna til Fáskrúðsfjarðar Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði. Garðar tekur við starfinu af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár. Viðskipti innlent 20. júlí 2023 12:13
Einar ráðinn til Píeta Einar Hrafn Stefánsson hefur verið ráðinn sem markaðs- og kynningarstjóri hjá Píeta samtökunum. Áður starfaði hann sem markaðsstjóri Íslenska dansflokksins frá 2020. Fyrir það var hann markaðsfulltrúi og viðburðarstjóri hjá Ölgerðinni. Viðskipti innlent 19. júlí 2023 12:46
Ástráður skipaður ríkissáttasemjari Ástráður Haraldsson hefur verið skipaður í embætti ríkissáttasemjara til fimm ára frá og með 18. júlí næstkomandi. Sex sóttu um starfið en hæfnisnefnd taldi að tveir umsækjendur væru mjög vel hæfir til að gegna embættinu. Innlent 14. júlí 2023 15:15
Auður og Gísli sækja um erfitt starf Níu einstaklingar sóttu um starf forstöðumanns nýrrar ríkisstofnunar sem mun bera heitið Land og skógur. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfisnefndar. Innlent 14. júlí 2023 11:22
Settur forstjóri glímir við þrjú um stöðuna Fjórar umsóknir bárust um embætti forstjóra Skipulagsstofnunar. Þriggja manna hæfisnefnd mun meta umsækjendur í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Innlent 10. júlí 2023 15:32
Skipuð dómari við Landsrétt Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Ásgerðar Ragnarsdóttur, setts landsréttardómara, í embætti Landsréttardómara frá 21. ágúst 2023. Innlent 7. júlí 2023 14:40
Hrókeringar í utanríkisþjónustunni Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um flutning forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni sem taka formlega gildi á næstunni. Innlent 7. júlí 2023 14:06
Helga ráðin skrifstofustjóri íþróttaborgarinnar Helga Friðriksdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri íþróttaborgarinnar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Nær fimmtíu umsóknir til starfsins bárust. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 13:29