

Fréttamaður
Gunnar Reynir stýrir útvarpsfréttum Bylgjunnar.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við áfram um málefni Hvammsvirkjunar en Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi virkjanaleyfið úr gildi í gær.
Lögreglan á Grikklandi hefur handtekið níu aðila sem grunaðir eru um að hafa staðið að smygli á fólki frá Líbíu til Evrópu um borð í yfirfulla fiskibátnum sem sökk á miðvikudaginn.
Í hádegisfréttum verður rætt við formann Þroskahjálpar sem gagnrýnir svör borgarstjóra þegar kemur að húsnæðismálum fatlaðra í borginni.
Að minnsta kosti 79 eru látnir og 100 var bjargað þegar yfirfullum fiskibáti hvolfdi undan ströndum Grikklands í gær. Óttast er um afdrif hundruða til viðbótar en báturinn var að flytja fólk ólöglega yfir hafið til Evrópu.
Í hádegisfréttum verður rætt við formann VR sem segir að sækja þurfi launahækkanir sem séu hið minnsta í samræmi við verðbólgutölur í næstu kjarasamningum.
Í hádegisfréttum verður fjallað um nýja samgönguáætlun sem innviðaráðherra mun kynna í hádeginu.
Syrgjendur í jarðarför aldraðrar konu í Ekvador hrukku í kút á föstudaginn var þegar hin látna lifnaði við.
Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt.
Í hádegisfréttum segjum við frá því að búið er að úthluta fimm smáhýsum til heimilislausra í Reykjavík en borgin hafði legið undir ámæli fyrir seinagang í því að koma húsunum í notkun.
Úkraínumenn saka Rússa um að hafa sprengt aðra stíflu í landinu, í þetta sinn í Zaporizhzhia héraði.