Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. 4.3.2024 16:00
Landsmenn kusu fyrir 37 milljónir króna Óhætt er að segja að dramatíkin hafi verið mikil á laugardagskvöldið þegar landsmenn greiddu rúmlega tvö hundruð þúsund atkvæði í símakosningu Söngvakeppninnar. Þátttaka var þó töluverð minni en í fyrra. 4.3.2024 15:33
Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. 4.3.2024 13:34
Leggja til Paul Horner í stað Brynjólfs Tilnefningarnefnd Arion banka leggur til að Paul Horner verði næsti stjórnarformaður bankans. Brynjólfur Bjarnason lætur af störfum sem formaður eftir fimm ár í brúnni. 4.3.2024 11:23
Bubbi óttast púðurtunnu rasismans Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna. 4.3.2024 09:07
Dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos en ekkert hægt að útiloka Jarðeðlisfræðingur sem flaug yfir svæðið þar sem kvikuhlaupið fór af stað segir enga virkni sjáanlega úr lofti. Hins vegar séu dæmigerðar aðstæður fyrir eldgos þegar kvika fer af stað. Hegðunin sé svipuð og í fyrri eldgosum en það sé ekkert hægt að útiloka. 2.3.2024 18:44
Lenti undir snjóflóði í Stafdal Tveir voru á skíðasvæði í Stafdal ofan Seyðisfjarðar þegar snjóflóð féll um fjögurleytið í dag. Annar lenti undir snjóflóðinu en félagi hans náði að koma honum til bjargar. 2.3.2024 17:50
Líkur á minna eldgosi Aflögunin sem nú mælist er mun minni en hefur áður mælst í aðdraganda eldgosa. Það gæti bent til þess að minni kvika sé á ferðinni nú en í fyrri eldgosum. 2.3.2024 17:28
Rasískar íslenskar ömmur tilefni til að hafa áhyggjur Dagur Hjartarson rithöfundur og kennari segir ekkert nýtt að sjá fúla afa tjá sig með rasískum hætti á vefmiðlum. En þegar hann sé farinn að verða jafn var við rasískar ömmur, sömu ömmur og samélagið hangir að stóru leyti saman á, er hann orðinn áhyggjufullur. Það slær hann. 2.3.2024 15:31
Bein útsending: Nóbelsverðlaunahafi um hagfræðina á 21. öldinni Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz í dag. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og stendur frá klukkan 12 til 13:30. Sýnt er frá viðburðinum í beinni útsendingu. 1.3.2024 11:15