Fréttastjóri

Kolbeinn Tumi Daðason

Kolbeinn Tumi er fréttastjóri fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kennarar í Kvennó og MS boðaðir á starfs­manna­fund

Skólameistarar Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund hafa boðað kennara við skólana á fund, hvorn í sínum skólanum, með stuttum fyrirvara. Á fundunum stendur til að kynna fyrir starfsfólki tillögur og verkefni sem snúa að skólunum í tengslum við vinnu stýrihóps menntamálaráðherra.

Undirbúningur byggðar á fullt í Nýja Skerjafirði eftir nýja skýrslu

Starfshópur innviðaráðherra telur ekki þörf á að hætta við byggingarhugmyndir í Nýja Skerjafirði vegna áhrifa breytts vindafars á flugvöllinn. Hópurinn leggur til mögulegar mótvægisaðgerðir sem fela meðal annars í sér að takmarka hæð húsa í nýrri byggð. Innviðaráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa tekið ákvörðun um að hafist verði handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning uppbyggingar.

Leita sem fyrr á öllum unglingum fyrir ball ársins

Unglingar hvaðanæva af landinu eru væntanlegir í höfuðborgina föstudaginn 5. maí þegar blásið verður til balls í Laugardalshöll í tilefni Samfestingsins. Leitað verður á öllum ungmennum sem sækja unglingahátíðina til að tryggja öryggi þeirra.

Gæsluvarðhald yfir sakborningum rennur út á morgun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á gæsluvarðhald yfir ungum karlmönnum sem hafa stöðu sakbornings í rannsókn á manndrápi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Nítján ára karlmaður sem hefur játað aðild að málinu var síðast yfirheyrður vegna málsins á sunnudag.

Refsing þyngd fyrir mann­dráp af gá­leysi í Plast­gerðinni

Hæstiréttur hefur staðfest og þyngt refsingu yfir tveimur yfirmönnum í Plastgerð Suðurnesja fyrir manndráp af gáleysi í verksmiðju fyrirtækisins sumarið 2017. Þeir eru taldir ábyrgir fyrir dauða starfsmanns fyrirtækisins sem klemmdist í vinnuvél.

„Hún var rangt barn, á röngum stað á röngum tíma“

Verjandi sautján ára stúlku sem var handtekin í tengslum við manndráp á tæplega þrítugum karlmanni í Hafnarfirði í síðustu viku telur óeðlilegt að stúlkan sem sé lykilvitni og upplýsti máli í raun og veru sæti enn gæsluvarðhaldi. Hann hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð yfir stúlkunni til Landsréttar. Stúlkan sé barn sem hafi verið á röngum stað á röngum tíma.

Tucker Carlson hættur hjá Fox News

Sjónvarpsmaðurinn Tucker Carlson, einn sá vinsælasti í sínu fagi í Bandaríkjunum, hefur lokið störfum hjá Fox News. BBC greinir frá og vísar til stuttrar tilkynningar frá Fox sjónvarpsstöðinni.

Sjá meira