Varanlegur heilaskaði og 150 milljóna króna bótakrafa 26 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en til vara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás við Moe's bar í Jafnaseli í fyrra. Gerð er krafa í miska- og skaðabætur upp á 150 milljón króna. 3.2.2023 16:09
Gul blikkandi ljós í höfuðborginni valda vandræðum Umferðarljós á stórum gatnamótum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu hafa verið í ólagi nú á fjórða tímanum. Gult ljós blikkar í allar áttir og ökumenn vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið. 3.2.2023 15:55
Nautgripirnir hafi hvorki verið í neyð né horaðir Matvælastofnun segir ekkert tilefni til að bregðast við vegna aðbúnaðar nautgripa á bæ í Skagafirði. Dýraverndarsamband Íslands hefur gert kröfu um tafarlausar aðgerðir í málinu. 3.2.2023 15:16
Þröstur Helgason hættir sem dagskrárstjóri Rásar 1 Þröstur Helgason hættir sem dagskrárstjóri Rásar 1 næstu mánaðamót. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og vísar til fundar Þrastar með starfsmönnum rásarinnar í morgun. 3.2.2023 11:59
Valur Hrafn ráðinn tæknistjóri hjá Stokki Valur Hrafn Einarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri (CTO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Stokki Software. Valur hefur víðtæka reynslu úr tæknigeiranum og hefur frá árinu 2018 stýrt vefþróunardeild Sýnar. 3.2.2023 11:04
Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar. 3.2.2023 10:54
Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. 2.2.2023 16:37
Tvíhöfði snýr aftur í hlaðvarpi Grínistarnir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr ætlar aftur að blaðra frá sér allt vit í þætti sínum Tvíhöfða. Tilkynnt var í sumar að Tvíhöfði yrði ekki á dagskrá Rásar 2 eftir fimm ára endurkomu þáttanna vinsælu. 2.2.2023 13:01
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. 2.2.2023 11:33
Mikil vonbrigði hjá Votlendissjóði og Einar hættir störfum Stjórn Votlendissjóðs og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að draga úr rekstri sjóðsins. Ástæðan er sögð skortur á jörðum til endurheimtar votlendis og áhrif krafna um vottun á fjármögnun verkefna. Þar til alþjóðleg vottun kolefniseininga sjóðsins er í höfn verður dregið úr rekstrinum. 1.2.2023 10:31