Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Verzló hreppti hljóð­nemann eftir sigur gegn MR

Verzlunarskóli Íslands vann sinn þriðja hljóðnema í kvöld eftir að hafa borið afgerandi sigur úr býtum gegn Menntaskólanum í Reykjavík í æsispennandi úrslitaviðureign Gettu betur, með 36 stigum gegn 25. Þetta er fyrsta úrslitakeppnin þar sem fleiri stúlkur kepptu en strákar.

Lands­kjör­stjórn telur spurningu Þor­gerðar gildishlaðna

Landskjörstjórn telur að orðalag sé gildishlaðið í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort „halda eigi áfram“ aðildarviðræðum við Evrópusambandið enda sé enn deilt um það hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Kjörstjórnin telur að spurningin geti vakið tortryggni um að framsetning hennar kunni að hafa áhrif á afstöðu kjósenda.

Sól­heimar segja upp þjónustusamningnum

Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélög á Suðurlandi þar sem ekki tókst að semja um aukin rekstrarframlög. Samningurinn tryggði búsetu- og atvinnuþjónustu fyrir fatlað fólk í landshlutanum en nú tekur gildi tólf mánaða uppsagnarfrestur. Engar breytingar verða á starfseminni á meðan samningaviðræður halda áfram.

Rúta valt á Kjalar­nesi

Tveir voru fluttir til skoðunar eftir að lítil rúta valt á Kjalarnesi um klukkan 14 í dag. Aðgerðum er lokið á vettvangi.

Yfir­maður leyni­þjónustunnar felldur

Íranski byltingarvörðurinn segir í yfirlýsingu að Majid Khademi, forstjóri yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, hafi verið felldur af Ísraelsher og Bandaríkjaher. Ísraelsmenn gangast við þessu en varnarmálaráðherrann Israel Katz og Ísraelsher lýstu yfir ábyrgð í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum.

Sjá meira