Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, fær ekki áheyrn Hæstaréttar í deilu hans við Landsbankann. Páll tapaði greiðslukorti sínu í París í Frakklandi og óprúttnir aðilar náðu tæpum 600 þúsund krónum út af reikningi hans. Landsréttur taldi Pál hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og Landsbankinn þyrfti því ekki að endurgreiða honum fjármunina. 5.3.2026 10:19
Grásleppufrumvarpið samþykkt Grásleppufrumvarp meiri hluta atvinnuveganefndar hefur verið samþykkt. Með því er kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju. 4.3.2026 17:19
Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, fékk orðið við upphaf þingfundar dagsins áður en gengið var til dagskrár. Það nýtti hann til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í þinginu í gær. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá,“ sagði hann meðal annnars. 4.3.2026 16:01
Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Bandaríkjaher sökkti írönsku freigátunni Iris Dena með tundurskeyti, sem skotið var úr kafbáti, á Indlandshafi í morgun. Að sögn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er þetta í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldar sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti. 4.3.2026 14:54
Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar um sýknu Brims hf. af öllum kröfum foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Málið verður því tekið fyrir á ný í Landsrétti. 4.3.2026 14:09
Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Ríkarður Ríkarðsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Landsnets og mun hefja störf um miðjan apríl næstkomandi. Hann verður staðgengill forstjóra og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins, mun stýra sameiginlegum málefnum í umboði forstjóra og verður stjórn og forstjóra til ráðgjafar í stefnumótun, innleiðingu stefnu og ákvörðunartöku. 4.3.2026 13:15
Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, dregur ekkert úr andstöðu sinni við árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hótað að skera á viðskiptatengsli við Spán vegna hennar. 4.3.2026 11:03
„Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar stigu í ræðustól Alþingis í löngum röðum síðdegis til þess að gagnrýna að þriðja umræða grásleppufrumvarps meiri hluta atvinnuveganefndar hefði verið sett á dagskrá þingfundar dagsins. Jón Gunnarsson sakaði þingmenn meiri hlutans um að horfa fram hjá lögbundnum skyldum sínum og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði það varhugaverða þróun að meiri hlutinn keyrði umdeild mál í gegn sem þingmannamál. 3.3.2026 16:02
Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Fjármálaráðherra segir átök í Mið-Austurlöndum, með tilheyrandi hækkun olíuverðs, slæm tíðindi fyrir baráttuna við þráláta verðbólgu. Hann eigi í góðu samtali við aðila vinnumarkaðar og muni kynna aðgerðir á allra næstu dögum. 3.3.2026 12:08
Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki. 3.3.2026 11:11
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist