Hóf störf of snemma eftir kvörtun vegna heimilisofbeldis Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur ávítt lögregluembætti fyrir að heimila lögreglumanni að hefja störf á ný, mánuði eftir að hann var sakaður um heimilisofbeldi. Rannsókn á meintu ofbeldi var felld niður en niðurstaða nefndarinnar var sú að embættið hefði átt að láta kærufrest líða áður en lögreglumanninum var heimilað að mæta til starfa. 24.10.2025 15:27
Sjálfstæðismenn stefna á leiðtogaprófkjör í borginni Stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun leggja tillögu um leiðtogaprófkjör fyrir ráðið. Samkvæmt tillögunni myndi ráðið svo greiða atkvæði um sæti tvö til sjö á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. 24.10.2025 13:13
Sættir sig ekki við sýknu tálbeitunnar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi tálbeitunnar í Gufunesmálinu svokallaða og krefst þess að hún verði sakfelld. Þrír aðrir sakborningar hafa áfrýjað þungum dómum í málinu. 24.10.2025 11:14
Sjóvá hagnast um 666 milljónir það sem af er ári Hagnaður Sjóvár á þriðja ársfjórðungi nam 1.145 milljónum króna og samsett hlutfall, hlutfall iðgjalda og kostnaðar, var 89,6 prósent. Afkoma fjárfestinga fyrir skatta var 552 milljónir króna og afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta var 936 milljónir. Á fyrstu níu mánuðum ársins nemur hagnaður 666 milljónum króna og samsett hlutfall 90,6 prósent. 23.10.2025 16:31
Kampavínsklúbbar, innherjasvik og nú meint skattsvik Kristján Georg Jósteinsson, sem hlaut árið 2019 þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir innherjasvik hjá Icelandair, hefur verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot. Hann er sakaður um að hafa ekki talið fram úttektir úr einkahlutafélögum, sem hann nýtti meðal annars við framkvæmd innherjasvikanna og rekstur kampavínsklúbbanna VIP club og Shooters í Austurstræti. 23.10.2025 14:50
Samstöðin tapaði fimmtíu milljónum Samstöðin ehf., sem rekur fjölmiðil undir sama heiti, tapaði fimmtíu milljónum króna í fyrra, samanborið við 24 milljóna króna tap árið áður. Samstöðin hlaut fjölmiðlastyrk í fyrra en ekki árið áður. 23.10.2025 13:40
Guðmundur til ráðherra og framkvæmdastjóri HK tekur við Þingflokkur Viðreisnar hefur ráðið Söndru Sigurðardóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra HK, til starfa sem framkvæmdastjóra þingflokks. Á sama tíma færir núverandi framkvæmdastjóri þingflokksins sig yfir í starf aðstoðarmanns atvinnuvegaráðherra. 23.10.2025 11:43
Sigmundur seinn: „Er þingmaðurinn í salnum?“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var fyrstur á mælendaskrá þegar óundirbúinn fyrirspurnartími hófst á Alþingi í morgun. Hann mætti ekki í ræðustól þegar forseti reyndi að gefa honum orðið. 23.10.2025 10:48
Hagnaður minnkar um 1,5 milljarða milli ára Hagnaður Icelandair eftir skatta nam sjö milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 8,5 milljarða hagnað á sama tímabili í fyrra. Félagið áætlar að afkoma fyrir vaxtagreiðslur og skatta árið 2025 verði neikvæð um 1,2 til 2,4 milljarða króna. 22.10.2025 16:14
Segir borgina refsa foreldrum til að mæta rekstrarvanda Félag atvinnurekenda varar eindregið við því að tillögum stýrihóps Reykjavíkurborgar í leikskólamálum verði hrint í framkvæmd. Fjárhagslegir hvatar til þess að stytta dvalartíma barna á leikskóla séu í raun refsing. 22.10.2025 15:48