Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Árni Sæberg skrifar 25. ágúst 2026 11:07 Íris Helga Jónatansdóttir í Héraðsdómi Reykjaness ásamt verjanda sínum, Helgu Völu Helgadóttur. Vísir Héraðsdómur Reykjaness hefur tekið frá heila sex daga í byrjun nóvember næstkomandi fyrir aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar.
Samkvæmt ákæru frá 7. apríl er Íris Helga sökuð um hótanir, ærumeiðingar, rangar sakargiftir, skjalafals og barnaverndarlagabrot á árunum 2022 til 2025. Hún á meðal annars að hafa sakað menn opinberlega um barnaníð, ofbeldi og nauðgun. Þá er hún sökuð um að hafa fengið annan mann til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls. Maðurinn er einnig ákærður í málinu fyrir hlutdeild í hluta brota Írisar. Ítarlega reifun ákærunnar má lesa í fréttinni hér að neðan: Við þingfestingu ákærunnar um miðjan maí síðastliðinn neitaði Íris Helga sök og lagði fram kröfu um að réttarhöld í málinu færu fram fyrir luktum dyrum. Dómari málsins hafnaði þeirri kröfu hennar nokkrum dögum síðar. Karlmaðurinn sem sætir ákæru ásamt Írisi Helgu neitaði jafnframt sök þegar hann mætti fyrir dómara nokkrum dögum á eftir Írisi Helgu. Hann hefur þó gefið út afsökunarbeiðni vegna aðkomu sinnar að málinu. „Ég lét spila með mig, en það breytir ekki ábyrgð minni eða dómgreindarleysi,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu hans. Aðalmeðferð í málinu er nú komin á dagskrá Héraðsdóms Reykjaness og reiknað er með að hún fari fram 2., 3., 4., 6., 9. og 10. nóvember.
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira