Fimm ára dómur Norberts staðfestur Árni Sæberg skrifar 25. september 2026 10:29 Landsréttur kvað upp dóm í málinu í gær. Vísir/Viktor Freyr Karlmaður að nafni Norbert Walicki hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir tilraun til manndráps, með því að skera mann á háls með eldhúshnífi. Árásin átti sér stað á gistiheimili í Kópavogi í júní 2023.
Með dómi Landsréttar í gær var dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember í fyrra staðfestur. Reifun á honum má sjá í fréttinni hér að neðan: Í dómi Landsréttar segir að Norbert hafi gengist við því að hafa orðið valdur að áverka á hálsi brotaþola en neitað allt að einu sök. Hann hafi reist varnir sínar annars vegar á því að ekki hefðu verið færðar sönnur á að hann hefði haft ásetning til að skera fórnarlambið á háls. Ef það teldist sannað byggði hann hins vegar á því að ósannað væri að hann hefði haft ásetning til að ráða manninum bana. Landsréttur sló því föstu með vísan til trúverðugs framburðar fórnarlambsins og vitnis fyrir héraðsdómi, sem stoð hafi fengið í framburði annars vitnis hjá lögreglu, að Norbert hefði fyrirvaralaust og með ofbeldi lagt til brotaþola með hnífi og skorið hann þvert yfir framanverðan háls með þeim afleiðingum. Þá taldi Landsréttur að Norberti hefði ekki getað dulist að með atlögu sinni, sem hann gerði með hættulegu vopni og beindi að hálsi brotaþola, stefndi hann lífi hans í hættu og hefði honum hlotið að vera ljóst að langlíklegast væri að brotaþoli hlyti bana af atlögunni. Samkvæmt því hafi einnig talist sannað að Norbert hefði reynt að svipta brotaþola lífi. Hinn áfrýjaði dómur um fimm ára fangelsisrefsingu Norberts hafi því verið staðfestur.
Dómsmál Kópavogur Lögreglumál Tengdar fréttir Grunaður um að skera mann á háls á gistiheimili í Kópavogi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna meintar hnífaárásar sem er sögð hafa átt sér stað skömmu eftir miðnætti föstudaginn 9. júní á gistiheimili í Kópavogi. 12. desember 2024 07:02 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Grunaður um að skera mann á háls á gistiheimili í Kópavogi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna meintar hnífaárásar sem er sögð hafa átt sér stað skömmu eftir miðnætti föstudaginn 9. júní á gistiheimili í Kópavogi. 12. desember 2024 07:02