Hundrað og eins árs gamall fyrrum fangavörður dæmdur í fimm ára fangelsi Dómstóll í Brandenburg dæmdi hundrað og eins árs gamlan mann til fimm ára fangelsisrefsingar í dag fyrir hlutverk hans í helförinni. Maðurinn var fangavörður í hinum illræmdu Sachsenhausen útrýmingarbúðum á árunum 1942 til 1945. Hann neitaði sök í málinu og sagðist ekkert hafa vitað af voðaverkunum sem framin voru í Sachsenhausen. 28.6.2022 13:45
Segir með ólíkindum að dómsmálaráðherra fari síendurtekið með rangfærslur Dómsmálaráðherra sagði í viðtali á Vísi í gær að hann hefði kosið gegn frumvarpi um þungunarrof árið 2019 á þeim forsendum að það gerði ráð fyrir að þungunarrof gæti átt sér stað allt að síðustu viku fyrir barnsburð. Þingflokksformaður Pírata segir ráðherrann ítrekað fara með rangfærslur um málaflokka sem hann á að hafa á hreinu. 28.6.2022 11:53
Landsvirkjun hefur föngun koltvísýrings Landsvirkjun ætlar að fanga og dæla niður koldíoxíði frá Þeistareykjastöð og jafnframt draga úr losun koldíoxíðs frá Kröflustöð með stýringu á vinnslu þar. Það er hluti af ætlun fyrirtækisins að verða algjörlega kolefnishlutlaust árið 2025. 28.6.2022 09:46
Sex sjúkrabílar biðu í röð fyrir utan Landspítala Á dögunum kom upp sú leiðinlega staða að sjúkraflutningamenn gátu ekki skilað af sér sjúklingum þar sem ekki var pláss fyrir þá inni á Landspítala. Því þurftu þeir einfaldlega að bíða í röð fyrir utan. 27.6.2022 16:57
Bjóða unglingum frítt í Strætó út júlí Ungmennum á aldrinum tólf til sautján ára stendur til boða svokallað „Sumarkort Strætó“ sem er frítt strætókort sem gildir á höfuðborgarsvæðinu út júlímánuð 2022. 27.6.2022 16:55
Stelpurnar komast á heimsmeistaramótið í tæka tíð Búið er að tryggja öllum dansstelpunum frá danskólanum JSB flugfar frá Íslandi í dag eða á morgun. Að sögn aðstoðarskólastjóra skólans komast þær á áfangastað í tæka tíð til að keppa á heimsmeistaramóti í dansi, þótt litlu hafi mátt muna. 27.6.2022 14:25
Um tuttugu prósent fleiri sóttu um leikskólakennaranám Um tuttugu prósent aukning er í umsóknum í nám leikskólakennarafræði milli ára en sjötíu leikskólakennarar tóku við brautskráningarskírteinum sínum þann 25. júní síðastliðinn, sem er veruleg aukning frá síðustu árum. 27.6.2022 13:07
Kona fannst látin í rústum hússins sem sprakk Slökkviliðið í Vestur-Miðlöndum á Englandi hefur tilkynnt að kona hafi fundist látin í rústum íbúðarhúss sem sprakk í loft upp í Birmingham í gærkvöldi. 27.6.2022 11:45
Skrúfa fyrir rafmagn hjá þeim sem hafa ekki valið raforkusala Samkvæmt nýrri reglugerð hefur fólk aðeins þrjátíu daga til að velja sér raforkusala eftir að hafa flutt í nýtt húsnæði, ellegar verður skrúfað fyrir rafmagnið. Að sögn upplýsingafulltrúa Samorku eru um 700 manns sem eiga á hættu að missa aðgang að rafmagni. 27.6.2022 09:18
Einn í lífshættu eftir að hús sprakk Einbýlishús sprakk í Birmingham á Englandi í nótt með þeim afleiðingum að karlmaður liggur á spítala í lífshættu. 26.6.2022 23:57