Fótbolti

Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesús de Miguel var þrítugur framherji spænska B-deildarliðsins CD Tenerife.
Jesús de Miguel var þrítugur framherji spænska B-deildarliðsins CD Tenerife. @CDTOficial

Jesús de Miguel, leikmaður Tenerife, fór í hjartastopp eftir harkalegt návígi í leik í spænsku knattspyrnunni á mánudagskvöld. Á þriðjudagsmorgun var hann úrskurðaður látinn.

Þetta kemur fram í færslu Tenerife á X.

„Með djúpum sársauka, kökk í hálsi og vantrú á það sem gerst hefur þarf CD Tenerife að tilkynna hið sviplega fráfall Jesús de Miguel Alameda, sem varð þriðjudaginn 3. nóvember 2026 klukkan átta,“ skrifaði félagið.

Á mánudagskvöld voru fregnirnar þær að líðan de Miguel væri stöðug en alvarleg eftir hjartastoppið. Í morgun greindi félagið frá því að ástand hans hefði versnað.

Atvikið átti sér stað í uppbótartíma leiksins á mánudag. De Miguel elti boltann og sá ekki að Jesus Owono, markvörður Andorra, kom út á miklum hraða. Owono stökk upp til að hreinsa boltann frá og skall um leið af miklu afli á efri hluta líkama De Miguel.

De Miguel hneig niður á völlinn og þurfti á tafarlausri læknisaðstoð að halda. Owono fékk beint rautt spjald og yfirgaf völlinn samstundis, en hrópin af vellinum urðu til þess að hann sneri sér við til að huga að leikmanni andstæðinganna.

„Það eru engin huggunarorð til. Það er alls ekkert sem getur linað þessa sorgartilfinningu. Við stöndum með niðurbrotinni fjölskyldu hans, ástvinum hans og allri Tenerife-fjölskyldunni, sem grætur í dag þessi hræðilegu endalok,“ segir enn fremur í tilkynningu Tenerife.


Tengdar fréttir

Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel

Ástand spænska knattspyrnumannsins Jesus de Miguel hefur versnað eftir að hann fór í hjartastopp í gærkvöldi í kjölfar harkalegs áreksturs í leik í næstefstu deild á Spáni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×