Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Að­stand­endur „Kanna­bis Inc“ dæmdir í fangelsi

Fjórir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram.

Taldi sig mega fara með fimm­tán ára stúlku um borð

Guðmundur Elís Sigurvinsson, 27 ára karlmaður með langan ofbeldisbrotaferil á bakinu, hefur verið dæmdur fyrir barnaverndar- og sifskaparbrot, með því að fara með fimmtán ára stúlku um borð í fiskiskip í Keflavík árið 2023. Hann játaði háttsemina en neitaði sök, þar sem hann taldi sér hafa verið heimilt að fara með stúlkuna um borð.

Hæsti­réttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir

Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Ásgeirs Helga Reykfjörð Gylfasonar vegna dóms Landsréttar í skattamáli, sem varðar tugi milljóna króna. Reikna má með að fimm aðrir fyrrverandi og núverandi lykistjórnendur hjá Kviku banka fengju ekki heldur leyfi til áfrýjunar, óskuðu þeir eftir slíku.

Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða

Lýður Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Bakkavör, keypti á dögunum 3,3 prósenta hlut í Kviku banka. Þá hefur hann gert framvirka samninga upp á önnur 1,78 prósent í bankanum og samanlögð eign hans í bankanum nemur því 5,08 prósentum. Verðmæti eignarhlutarins nemur um 3,6 milljörðum króna.

Gengi Alvotech tekur kipp

Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu.

Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka

Arion banki er íslenska fjármálafyrirtækið sem varð fyrir barðinu á rúmenskum tölvuþrjóti í apríl. Hann nýtti sér villu í kerfi bankans til þess að millifæra á sig um 160 milljónir króna. Arion banki hefur endurheimt fjármunina að mestu leyti.

Endur­greiddi eftir að fjöl­miðlar spurðu út í innkaupakortið

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur endurgreitt borginni alls 28 þúsund krónur vegna óheimillar notkunar á innkaupakorti borgarstjóra. Þrjár af fjórum endurgreiðslum greiddi hún eftir að fjölmiðlar sendu fyrirspurnir vegna innkaupakortsins. 23 skriflegar athugasemdir hafa borist vegna notkunar hennar á kortinu, þar á meðal vegna greiðslu fyrir uppfærslu á fyrsta farrými.

Borgar­stjóri fer í saumana á kortafærslunum

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur notað innkaupakort borgarstjóra á annan máta en forverar hennar í starfi. Dagur B. Eggertsson notaði kortið ekki, Einar Þorsteinsson greiddi fyrir leigubíla og hótelherbergi erlendis en á yfirliti Heiðu Bjargar má sjá færslur frá veitingastöðum á borð við Jómfrúna, leigubílum og kaffihúsum borgarinnar. Heiða Björg segist hafa farið að reglum í einu og öllu varðandi notkun kortsins.

Sjá meira