Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg

Hannes Valle Þorsteinsson, fyrrverandi starfsmaður leikskólans Múlaborgar, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku á leikskólanum. Hann var sýknaður af ákæru fyrir kynferðislega áreitni gegn annarri stúlku, með því að hafa bitið hana í rassinn.

Vaktin: Hildur valdi Við­reisn og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn hafa myndað tólf manna meirihluta í Reykjavík. Skipting verka og áherslur meirihlutans voru kynnt á blaðamannafundi í Viðey upp úr klukkan ellefu í dag.

Skipu­lags­breytingar hjá Símanum

Stjórn Símans hf. hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Eins og áður hefur verið upplýst er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi.

Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstu­dag

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekkert heyrt í Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, síðan á föstudag. Ekki er von á tíðindum af meirihlutaviðræðum í borginni í dag en dregið gæti til tíðinda á morgun. Hildur var fjarverandi á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar í dag.

Taldi kosningarnar ó­gildar vegna ógilds kjör­seðils

Úrskurðarnefnd kosningamála barst kæra vegna sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík daginn eftir þær þar sem þess var krafist að kosningarnar í heild yrðu úrskurðaðar ógildar, vegna þess að Ríkisútvarpið sýndi kjörseðil í beinni útsendingu á kosninganótt. Nefndin féllst ekki á þá kröfu.

Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hvera­gerðis og Sel­foss

Eigendur Hótels Hjarðarbóls í Ölfusi leita nú að meðfjárfestum og samstarfsaðilum fyrir umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á jörðinni Hjarðarbóli, sem staðsett er á milli Hveragerðis og Selfoss. Nú þegar hafa verið teiknaðar upp hugmyndir að nýju hóteli og frekari uppbyggingu á svæðinu þar sem lögð verður áhersla á sjálfbærni og vistvænar lausnir.

Komu vélar­vana fiski­bát til hjálpar

Skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá litlum fiskibát sem staddur var við Syðrahraun í Faxaflóa. Vélarbilun hindraði frekari för og rafmagn hafði farið af bátnum.

Bein út­sending: Borgar­full­trúar kveðja

Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu hefst klukkan 12. Kveðjuræður borgarfulltrúar eru á dagskrá en nokkuð margir borgarfulltrúa kveðja í dag þar sem 16 ef 23 kjörnum borgarfulltrúum hafa aldrei áður setið í borgarstjórn. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi.

Sjá meira