„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá meiri umræðu í borgarstjórn um ákvörðun dagsins um að segja upp tugum starfsmanna borgarinnar og að með skipulagsbreytingum sé þjónusta á leið út úr hverfum borgarinnar. Borgarstjóri segir að við breytingarnar verði ekki þjónusturof og að börn muni fá þjónustu óháð því hvar þau búa. 25.8.2026 20:59
Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Borgar- og varaborgarfulltrúar minnihlutans gagnrýna harðlega umfangsmiklar breytingar borgarráðs á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Þau gagnrýna meðal annars tímasetningu ákvörðunarinnar en breytingar af slíkri stærðargráðu eigi ekki að vera teknar á aukafundi. 25.8.2026 18:29
Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Skipulagsbreytingar Reykjavíkurborgar leiða til uppsagna 86 starfsmanna borgarinnar. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður. 25.8.2026 15:33
Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Tólf hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á aðdraganda banaslyss nærri Middlesbrough í Bretlandi, þar sem Volkswagen Passat-bíll og lögreglubíll skullu saman. Sjö létu lífið í árekstrinum á laugardagsmorgun. 24.8.2026 16:44
Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Opnunartími Sundhallarinnar í Reykjavík verður tímabundið með breyttu sniði frá og með morgundeginum. Vegna framkvæmda þarf að miða við nýjan hámarksfjölda í lauginni. 24.8.2026 14:03
Malbika við Baulu í kvöld Áætlað er að malbika 1,6 kílómetra langan kafla þjóðvegar 1 við veitingastaðinn Baulu í kvöld, miðvikudagskvöldið 24. ágúst, og annað kvöld, þriðjudagskvöldið 25. ágúst. Áætlað er að framkvæmdir standi frá kl 20:00 til 07:00 að morgni bæði kvöldin. Umferðarstýring verður á svæðinu en búast má við umferðartöfum. 24.8.2026 13:46
Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Dómsmálaráðherra segir algjört stefnuleysi hafa ríkt um árabil í innflytjendamálum og að stéttskipting hafi í kjölfarið verið flutt inn. Mikilvægt sé að gera bæði kröfur til fólks sem hér sest að og til Íslendinga um móttöku þess fólks. 24.8.2026 13:32
Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Hollenska sjónvarpsstöðin AVROTROS ætlar að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Hollendingar tóku ekki þátt í keppninni í ár og stöðin segir hana ekki lengur vera hlutlausa vegna þátttöku ríkja sem eigi í átökum. 24.8.2026 11:02
Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Frá og með 26. ágúst verður Sýn+ í loftinu sem línuleg sjónvarpsstöð. Rásin mun sýna nýjasta og vinsælasta efni streymisveitunnar Sýn+. Sjónvarpsstöðin Sýn heldur áfram sínu striki í opinni dagskrá. 24.8.2026 09:47
Eldur í bíl í Vesturbænum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í morgun eftir að tilkynnt var um eld í bíl á Víðimel í vesturbæ Reykjavíkur. 24.8.2026 08:28