fréttamaður

Berghildur Erla Bernharðsdóttir

Berghildur er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Al­gjör sam­staða sé um að hækka bætur

Forsætisráðherra vísar gagnrýni ASÍ og SA á bug um að óráðlegt sé að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur líkt og kemur fram í frumvarpi um breytingar á almannatryggingum. Um sé að ræða réttlætismál sem ríkisstjórnin sé einhuga um. Breytingin kunni að valda verðbólguþrýstingi ef hún leiði til hækkunar bóta. Það eigi  líka við um aðrar launahækkanir. 

Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“

Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni.

ASÍ og SA telja stjórn­völd á villi­götum

Binding bótagreiðslna við launavísitölu er óráðleg og ótímabær að mati Alþýðusambands Íslands. Samtök atvinnulífsins telja breytinguna geta leitt til þess að bætur hækki hraðar en laun. Gera má ráð fyrir verðbólguþrýstingi og milljarða útgjaldaaukningu samkvæmt greinargerð með frumvarpi um málið.

Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum

Samgöngustofa hefur fengið tvö hundruð ábendingar vegna leigubílaaksturs frá því ný lög tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. Formaður tveggja félaga bifreiðastjóra segir ófremdarástand hafa ríkt á markaðnum síðan og kvartanirnar margfalt fleiri. Hann fagnar drögum að nýrri reglugerð.

Hitni undir olíu­fé­lögum sem þurfi að passa sig

Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi búist við meiri lækkunum á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Þau þurfi að passa sig. Ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum til að ná tökum á verðbólgunni.

Finnist hvergi eins sterk skil­yrði til um­hverfis­verndar í lagareldi

Atvinnuvegaráðherra segir að hvergi, hvorki hérlendis né erlendis finnist eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi og í fiskeldisfrumvarpi hennar. Núgildandi lög séu löngu úrelt og mikil vinna verið lögð í drögin, meðal annars í tíð Svandísar Svavarsdóttur sem ráðherra.

Skýrsla Félagsbústaða kol­svört

Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað í gær að styrkja Félagsbústaði um 2,4 milljarða króna. Það er tvöfalt hærri upphæð en sú lágmarksupphæð sem starfshópur um fjárhagsstöðuna leggur til í nýrri skýrslu. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða gagnrýnir að skýrslunni hafi verið haldið leyndri fyrir minnihlutanum. Málið lykti af prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar.

Segir gagn­rýni minni­hlutans til þess gerða að dreifa at­hygli

Meirihlutinnn í borgarstjórn hefur ákveðið að veita um 2,4 milljörðum til Félagsbústaða á næstu fimm árum. Borgarstjóra er falið að hafa milligöngu um málið. Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir tillöguna hafa verið þvingaða fram. Ákveðið hafi verið að hunsa nýja skýrslu starfshóps í málinu.

Telur Trump gera mis­tök

Grænlenska landsstjórnin telur ólíklegt að Bandaríkjamenn beiti hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þurfi þó að vera undirbúin fyrir óvæntar vendingar í samvinnu við aðrar þjóðir. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir hótanir Bandaríkjanna um tolla á lönd sem styðja Grænland, mistök.

Annasamasti dagur á bráða­mót­töku í lækna minnum

Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu.

Sjá meira