Sorpa bíður niðurstöðu Seltjarnarnesbæjar Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu nema Seltjarnarnesbær hafa samþykkt að Sorpa taki eins milljarðs króna lán vegna viðbótarkostnaðar við gas-og jarðgerðarstöð. 24.9.2019 13:30
Efling segir engan fót fyrir ásökun fjármálastjórans Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingu fjármálastjóra félagsins um vinnubrögð forystu Eflingar eru sagðar ósannar. Fullyrðingar hennar komu fram í yfirlýsingu sem var send til fjölmiðla í gær. 23.9.2019 13:45
Forseti Alþýðusambandsins telur Eflingu virða kjarasamninga í starfsmannadeilu Forseti Alþýðusambands Íslands segir sambandið telja að Efling hafi ekki brotið gegn kjarasamningi í starfsmannadeilu sinni. Hæstaréttarlögmaður tveggja kvenna sem hafa verið í veikindaleyfi í ár segir þær fara fram á að fá fjárhagstjón sitt bætt. Sökum aldurs sé ólíklegt að þær fái aðra vinnu, þær eigi þrjú til fjögur ár til eftirlaunaaldurs. Efling hafi ekki sýnt neinn sáttavilja í starfsmannamálunum. 23.9.2019 12:00
Starfsmenn Arion bíða fregna af uppsögnum Vísir setti sig í samband við Harald Guðna Eiðsson, upplýsingafulltrúa Arion banka, í gærkvöldi sem sagði að það væru engar hópuppsagnir fyrirhugaðar í dag. 23.9.2019 10:00
Átján andlit Ingibjargar Listakona sem greindist með geðhvarfasýki fyrir rúmu ári skrásetti líðan sína með því að taka ljósmyndir af sjálfri sér í bataferlinu. Sýningin heitir Sálræn litadýrð og er liður í hátíðinni Klikkuð menning sem nú fer fram. 22.9.2019 21:00
Jónas Sig tónlistarmaður skoraði kvíðann á hólm Jónas Sig, tónlistarmaður, fór markvisst að skoða kvíðahugsanir sínar og komst því að þarna var andstæðingur hans að tala. Hann fagnar hátíðinni Klikkuð menning í kvöld ásamt fjölda annarra listamanna. 22.9.2019 20:30
Segir landsmenn þurfa að venjast lyfjaskorti Forstjóri Lyfjastofnunar segir að landsmenn þurfi að venjast því að hér sé viðvarandi lyfjaskortur. Lyfjayfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum séu að fást við sama vanda. Nú skorti um hundrað lyf hér á landi og ástandið geti orðið alvarlegt. Skorturinn sé hins vegar helmingi meiri í Noregi. 22.9.2019 19:00
Segja forystu Eflingar haga sér eins og verstu skúrka Fjármálastjóri og bókari Eflingar stéttafélags sem hafa verið í veikindafríi síðan síðasta haust hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem framkoma forystu Eflingar er hörmuð. Veikindi þeirra séu rakin til framkomu og atburða af hálfu stjórnenda á skrifstofu félagsins. Þá er forysta Eflingar sögð hafa sér eins og verstu skúrkar í atvinnurekendastétt. 22.9.2019 17:12
Alþýðusambandið vinnur að leiðbeinandi reglum sem ver starfsfólk stéttarfélaga Forseti Alþýðusambands Íslands segir að í gerð séu leiðbeinandi reglur fyrir stéttarfélög um að sett verði inní ráðningasamninga, að ef starfsfólk félaganna lendir í deilum við þau, fái starfsmenn utanaðkomandi aðstoð. Hún staðfestir að lögmaður hafi óskað eftir aðkomu ASÍ í deilu fyrrverandi starfsmanna Eflingar við félagið en báðir deiluaðilar þurfi að samþykkja að ASÍ skipti sér að málum. 22.9.2019 13:00
Framkvæmdastjóri Eflingar segir háttsetta stjórnendur félagsins hafa verið handgengnir fyrri forystu Framkvæmdastjóri Eflingar tekur undir með formanni VR um að tiltekinn hópur starfsmanna félagsins hafi verið handgenginn fyrri forystu félagsins í kosningabaráttunni í fyrravor. Hann segir ógerning að fara að kröfum fyrrverandi stjórnenda félagsins upp á tugi milljóna króna. Lögmaður starfsfólksins hafi reynt að þvinga Eflingu til að gera óeðlilega samninga. 21.9.2019 19:30