1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Landspítala Nýr Landspítali ohf. og Reykjavíkurborg deila um hver eigi að bera kostnað af uppbyggingu bílakjallara og bílastæðahúss við nýja Landspítalann við Hringbraut. Nýr Landspítali telur borgina eiga að greiða 1.695 milljónir króna en borgin telur sig aðeins skuldbundna til að greiða 450 milljónir króna. Þar munar því 1.245 milljónum króna eða rúmum 1,2 milljörðum. 27.3.2026 14:25
Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu tillögu sem gengur lengra Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu um fleiri bílastæði við nýbyggingar í Reykjavík en hafnaði kröfu Sjálfstæðisflokksins um að ganga enn lengra og miða almennt við að minnsta kosti eitt bílastæði á hverja íbúð. Málið fer nú áfram til borgarráðs. 27.3.2026 13:01
Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ný matvöruverslun frá Navy Exchange Service Command, NEX, hefur verið opnuð á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða svonefndan Micro Market-sölustað, sem var tekinn í notkun 10. mars og er ætlaður bandarískum hermönnum og öðru liði Atlantshafsbandalagsins á svæðinu. 27.3.2026 06:46
Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina ætla að ná frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið. Á Alþingi í dag sagði hann að það hefði verið „nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun“ að lesa uppsagnarbréf sem honum var birt í auglýsingu í Morgunblaðinu. 26.3.2026 13:37
Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Í þremur þeirra er gert ráð fyrir að nákvæm útfærsla bílastæða verði ekki lengur sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin síðar. 26.3.2026 12:52
Vaxtahækkun í maí blasi við Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra. 26.3.2026 10:42
Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir engin samtöl hafa átt sér stað við Evrópusambandið um svokallaðan „fiskveiðikommissara“ og að ummæli hennar hafi aðeins vísað til léttra vangaveltna Norðmanna. 25.3.2026 10:02
Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra „Við þurfum að vita nákvæmlega hvaða samtöl hafa verið í gangi og um hvað,” sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún ræddi frétt Morgunblaðsins um meint orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. 24.3.2026 15:41
Af og frá að viðræður séu hafnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga. 24.3.2026 13:04
Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars. 24.3.2026 11:24