Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Birgir Olgeirsson skrifar 18. september 2026 16:19 Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA. Samninganefnd félagsins segir fundað nánast daglega undanfarnar tvær vikur og að samtalið hafi orðið gagnlegra. Vísir/Vilhelm Sáttasemjari hefur hvatt fulltrúa Icelandair til að leggja áherslu á færri mál í kjaraviðræðum við flugmenn, að sögn samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Nefndin telur umfangsmikinn kröfulista félagsins hindra framgang viðræðnanna.
Þetta kemur fram í skilaboðum samninganefndar FÍA til flugmanna Icelandair. Þar segir að kröfurnar snúi bæði að breytingum á gildandi kjarasamningi og nýjungum sem Icelandair vilji festa í sessi. „Svo mörg áhersluatriði muna jafnvel elstu menn ekki eftir að hafa séð mótaðila FÍA leggja fram áður. Það er okkar upplifun að slíkur fjöldi áhersluatriða hindri eðlilegan framgang samningaviðræðna og því höfum við ítrekað skorað á fulltrúa Icelandair að fækka og forgangsraða.“ Samtalið orðið gagnlegra Undanfarnar tvær vikur hefur verið fundað nánast daglega, en í smærri hópum en áður. Samninganefndin lýsir því hvernig breytt fyrirkomulag og aðkoma sáttasemjara hafi haft áhrif á viðræðurnar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Markmiðið um að ljúka kjaraviðræðum við flugmenn fyrir 15. september náðist ekki þrátt fyrir fleiri fundi en upphaflega var áætlað.Vísir/Einar „Það fyrirkomulag er að okkar mati vænlegra til árangurs og þegar við bættist áskorun sáttasemjara til fulltrúa Icelandair um að leggja áherslu á færri mál þá varð samtalið gagnlegra.“ Náðu ekki að ljúka viðræðum á tilsettum tíma Samningsaðilar undirrituðu yfirlýsingu 16. júní þar sem þeir skuldbundu sig til að vinna eftir verkáætlun sáttasemjara. Meginmarkmiðið var að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september. „Því miður tókst okkur það ekki, en fundir hafa þó verið miklu fleiri en ráðgert var þegar fundadagskráin var ákveðin fyrr í sumar.“
Icelandair Flug Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira