„Það er búið að hakka nánast alla hægri vinstri“ Netöryggissérfræðingur segir fjölda íslenskra fyrirtækja og stofnana hafa verið berskjölduð fyrir netárásum vegna alvarlegs öryggisveikleika sem fannst í hinum vinsæla Microsoft Exchange hugbúnaði. 12.3.2021 15:35
Ólíklegt að sprungan nái til sjávar með tilheyrandi öskugosi Ólíklegt er að gossprunga sem opnast suður af Fagradalsfjalli nái til sjávar ef horft er til gossögunnar og jarðfræðirannsókna á svæðinu. Eins og staðan er núna er því ósennilegt að það gjósi neðansjávar með tilheyrandi öskugosi, að sögn vísindaráðs almannavarna. 12.3.2021 14:47
Fáheyrð aukning á hitavatnsnotkun hafði áhrif á rekstur OR í fyrra Tekjur Orkuveitu Reykjavíkur (OR) námu 48,6 milljörðum króna á síðasta ári og jukust frá árinu 2020 þegar þær voru 46,6 milljarðar króna. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á árinu 2020 var 5,6 milljarðar króna og dróst saman úr 6,9 milljörðum á fyrra ári. 12.3.2021 12:35
„Það er ekki nóg að vera frændi einhvers eða hafa verið með honum í grunnskóla“ „Oftar er meira svigrúm til bæta fjárhagslega svigrúmið þitt með því að auka tekjurnar til skamms og meðallangs tíma. Ég vil ekki gera lítið úr því að þurfa að spara og ég er að gera það sjálfur en það er ekki síður mikilvægt að hugsa um það hvernig maður getur aukið tekjur sínar,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill og ráðningarráðgjafi hjá Góðum samskiptum. 12.3.2021 11:00
Búið að útfæra 970 milljóna króna greiðslur til bænda vegna Covid-19 970 milljónir króna verða greiddar út til sauðfjár- og nautgripabænda til að mæta áhrifum heimsfaraldurs Covid-19. Veiting fjármunanna var samþykkt í fjárlögum ársins 2021 en Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur nú lokið við útfærslu á ráðstöfun þeirra. 12.3.2021 10:43
Ekki verið vart við neinn öryggisbrest hjá ráðuneytum Enginn grunur er um að tölvuþrjótar hafi notfært sér alvarlegan öryggisgalla í Microsoft Exchange tölvupóstkerfinu til að brjótast inn í tölvukerfi íslenskra ráðuneyta. Þetta segir framkvæmdastjóri Umbru – þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins sem sér um rekstur miðlægra tölvukerfa fyrir ráðuneytin. 11.3.2021 16:29
Ferjan Baldur vélarvana nærri Stykkishólmi Vélarbilun hefur komið upp í Breiðafjarðarferjunni Baldri en skipið er statt um tíu sjómílur frá Stykkishólmi, mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms. Um borð eru tuttugu farþegar auk átta manna áhafnar. 11.3.2021 15:40
Bóluefni Janssen fær grænt ljós hjá Lyfjastofnun Evrópu Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með því að bóluefni Janssen við Covid-19 verði veitt skilyrt markaðsleyfi í Evrópusambandinu til notkunar hjá einstaklingum sem hafa náð átján ára aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni en íslensk stjórnvöld hafa tryggt sér skammta af bóluefninu fyrir 235 þúsund einstaklinga. 11.3.2021 13:27
Ekki í boði að sækja um viðbótarfrest í ár Lokadagur fyrir skil á skattframtali einstaklinga er á morgun 12. mars en ekki stendur til boða að þessu sinni að sækja um viðbótarfrest líkt og síðustu ár. 11.3.2021 10:09
Nýtir peningana frá Twitter til að opna kaffihús og bíó á uppáhalds staðnum Félagið Unnarstígur ehf., sem er í eigu Haraldar Inga Þorleifssonar, hefur keypt jarðhæðina við Tryggvagötu 11 í Reykjavík. Haraldur er stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno en hann seldi félagið til Twitter um síðustu áramót. Það er því vel við hæfi að hann hafi greint frá fasteignakaupunum á Twitter-síðu sinni í gær. 10.3.2021 16:28
Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Innlent