Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála. 9.6.2023 20:01
Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni. 9.6.2023 13:30
Viðbrögð starfsmanna hafi verið alvarleg, ómarkviss og ámælisverð Viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal voru ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun sagði þroskaskertan starfsmann hafa brotið á sér kynferðislega. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála þar sem úrbætur eru boðaðar. 1.6.2023 19:01
Ákvörðunin skiljanleg en breyti ekki viðfangsefninu Formaður VR telur að afsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, muni ekki hafa áhrif á komandi kjaraviðræður. Enginn þrýstingur hafi verið frá hans armi verkalýðshreyfingarinnar um afsögn. 1.6.2023 13:01
„Þetta er eiginlega bara endalaus gleði“ Vitatorgsbandið var í dag heiðrað fyrir störf sín, en bandið spilar vikulega fyrir eldri borgara og þiggur ekki krónu fyrir. Hljómsveitarmeðlimur á tíræðisaldri segir félagsskapinn ómissandi. 31.5.2023 21:01
Segir ákvörðunina alfarið hans eigin „Eftir að hafa verið vakinn og sofinn yfir á þessu verkefni langar mig einfaldlega að breyta til,“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem lætur nú af embættinu. Tvö ár eru eftir af skipunartíma Aðalsteins en ákvörðunina segir hann alfarið hans eigin. 31.5.2023 16:41
Gróður svartur og brenndur eftir vorlægðirnar Plöntur sem alla jafna eru orðnar blómstrandi grænar á þessum árstíma eru margar hverjar svartar og brunnar eftir vorlægðirnar. Þá hefur sumarblómasala verði dræm í rokinu en starfsmaður hjá Garðheimum segir fólk seinna á ferðinni en undanfarin ár. 30.5.2023 20:01
Aðgerðir hafi áhrif á sumarnámskeið barna Formaður BSRB segir að skref hafi verið tekið aftur á bak í deilu bandalagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á óformlegum fundi með ríkissáttasemjara í gær. Í vikunni leggja starfsmenn niður störf í ellefu sveitarfélögum og munu aðgerðir sem hefjast í næstu viku hafa áhrif á sumarnámskeið barna. 30.5.2023 12:59
„Sérstakt“ að sitja inni í réttarsal með Bryan Kohberger Íslensk kona, sem kafað hefur ofan í opinber gögn um stórt morðmál sem átti sér stað í bandarískum háskólabæ í vetur, fékk í vikunni að fara inn í réttarsal þegar hinn grunaði var leiddur fyrir dómara. Hún segir súrrealískt að hafa séð hann og aðstæður með eigin augum eftir að hafa skoðað málið í svo langan tíma. 28.5.2023 21:01
Greiningarprófi að þakka að Fentanýl fannst í kristölum sem sagðir voru hreinir Fentanýl fannst nýlega í MDMA kristölum sem voru í umferð hér á landi og sagðir hreinir. Þetta kom í ljós þegar notandi gerði greiningu á efninu og hætti af þeim sökum við að nota það. Stofnendur fyrirtækis sem flytur inn greiningarpróf vonast til að stjórnvöld hafi áhuga á samstarfi til að tryggja betur öryggi notenda. 25.5.2023 21:23